Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Birnir fékk Range Rover-jeppa í afmælisgjöf

Birgitta Líf og Birnir Boði gæddu sér á gómsætri köku …
Birgitta Líf og Birnir Boði gæddu sér á gómsætri köku í tilefni dagsins. Samsett mynd

Sonur Birgittu Lífar Björnsdóttur, áhrifavalds og markaðsstjóra World Class, og Enoks Vatnars Jónssonar sjómanns, Birnir Boði, fagnaði tveggja ára afmæli sínu í gær.

Birnir Boði fékk heldur betur glæsilega afmælisgjöf frá móður sinni og getur nú rúntað um gangstéttirnar með stæl, en hann fékk svartan Range Rover-jeppa með sérhannaðri númeraplötu með nafni sínu á. Í jeppanum er pláss fyrir tvo.

Birgitta Líf birti þó nokkrar myndir í story af afmælisbarninu, jeppanum og afmæliskökunni, en hann fékk skemmtilega gröfubílaköku.

Slíkir barnajeppar eru ekki beint ódýrir, en þeir kosta um og yfir 80 þúsund krónur samkvæmt erlendum sölusíðum.

Birgitta Líf ók sjálf um á svörtum Range Rover-jeppa um tíma með einkanúmerinu BLB.

Smartland óskar afmælisbarninu til hamingju með daginn og nýja kaggann!

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

tannlæknir svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafisvarar spurningum lesenda

endurskoðandi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

ráðgjafi hjá Fyrsta skrefinu og umsjónarmaður Meðvirknipodcastsins

svarar spurningum um lögfræðileg mál

lýtalæknir svarar spurningum lesenda

fasteignasali svarar spurningum lesenda


[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp