Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Zhejiang

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Zhejiang(kínverska: 浙江;rómönskun: Zhèjiāng) erhérað á austurströnd Alþýðulýðveldisins Kína. Sem strandhérað liggur Zhejiang viðAustur-Kínahaf en handan þess liggjaRyukyu-eyjar. Það er síðan afmarkað af héruðunumFujian í suðri,Jiangxi í suðvestri,Anhui í norðvestri ogJiangsu í norðri, og borghéraðinuSjanghæ í norðaustri. Héraðið nær yfir 101.800 ferkílómetra.

Nafn héraðsins er dregið af aðalfljóti þessQiantang-fljóti sem rennur að ósum Hangzhou-flóa. Fljótið hér áður Zhe Jiang („Krókótt áin“) og gaf héraðinu nafn.

Um aldir hefur Zhejiang verið ein af stóru menningar- og bókmenntamiðstöðvum Kína. Landslag héraðsins er þekkt fyrir mikla fegurð.

Landsvæði Zhejiang var stjórnað af konungsríkinu Yue. Qin keisaraveldið innlimaði það síðar árið 222 f.Kr. Á tímumMing ogTjingveldanna urðu hafnir Zhejiang mikilvægar miðstöðvar alþjóðaviðskipta. Stærsti hluti héraðsins var hernuminn afJapan íseinna kínverska-japanska stríðinu (1937–1945). Eftir ósigur Japans og valdatökuMaó Zedong staðnaði efnahagur Zhejiang mjög.

En eftir efnahagsumbætur síðari ára í Kína, hefur Zhejiang dafnað og er nú talið eitt af auðugustu héruðum Kína. Þrátt fyrir að vera ein minnsta stjórnsýslueiningin meðal héraða Kína, er héraðið engu að síður eitt af þeim þéttbýlli og efnaðri. Það er stundum sagt „burðarás Kína“ þar sem það er stór driffjöður í kínverska hagkerfinu.

Hagkerfi Zhejiang byggist á raf- og efnaiðnaði, framleiðslu textíls, matvæla og byggingarefnis. Héraðið þykir mjög framarlega í framleiðni landbúnaðar og er leiðandi í teframleiðslu og fiskveiða í Kína.

Íbúar Zhejiang héraðsins eru 57 milljónir. Höfuðborg þess og stærsta borgin erHangzhou. Meðal annarra athyglisverðra borga héraðsins eruNingbo ogWenzhou.

Héraðið er einnig fæðingarstaður nokkurra athyglisverðra einstaklinga, þar á meðal leiðtoga kínverska þjóðernissinnaChiang Kai-shek og athafnamannsins Jack Ma.

Myndir

[breyta |breyta frumkóða]
  • Yandangfjöll í Zhejiang.
    Yandangfjöll í Zhejiang.
  • Vesturvatn við höfuðborgina Hangzhou.
    Vesturvatn við höfuðborgina Hangzhou.
  • Buddha líkneski Puji hofinu á eyjunni Mount Putuo í Zhejiang.
    Buddha líkneski Puji hofinu á eyjunni Mount Putuo í Zhejiang.
  • Fiskþurrkun við Pacao höfn í Cangnan sýslu í suðurhluta Zhejiang.
    Fiskþurrkun við Pacao höfn í Cangnan sýslu í suðurhluta Zhejiang.
  • Frá höfuðborginni Hangzhou.
    Frá höfuðborginni Hangzhou.
  • Verðbréfamarkaður Zhejiang er í viðskiptahverfinu Qianjiang í Hangzhou.
    Verðbréfamarkaður Zhejiang er í viðskiptahverfinu Qianjiang í Hangzhou.
  • Höfuðstöðvar Alibaba Group eru í Hangzhou
    Höfuðstöðvar Alibaba Group eru í Hangzhou
  • Shuiting hliðið að borgarmúrum Quzhou.
    Shuiting hliðið að borgarmúrum Quzhou.
  • Bílaframleiðandinn Geely (sem ma. á Volvo og hluta af Daimler Benz) er frá Zhejiang. Hér er bílaframleiðsla Geely í Ningbo.
    Bílaframleiðandinn Geely (sem ma. á Volvo og hluta af Daimler Benz) er frá Zhejiang. Hér er bílaframleiðsla Geely í Ningbo.
  • Dashan pagóðan í Shaoxing borg.
    Dashan pagóðan í Shaoxing borg.

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
Héruð
Sjálfstjórnarhéruð
Borghéruð
Sérstjórnarhérað
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Zhejiang&oldid=1765028
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp