Z80 er 8 bitaörgjörvi sem að er framleiddur afbandaríska fyrirtækinuZilog. Z80 var hannaður afMasatoshi Shima ogFederico Faggin sem voru aðalhönnuðir4004,8008 og8080 örgjörvanna fyrirIntel og má líta á hann sem öflugri útgáfu af 8080. Fyrsta útfærslan var sett á markað árið1976 og hefur verið í framleiðslu alla tíð síðan, en Z80 var vinsælasti örgjörvi til notkunar íeinkatölvum frá 1976 til1984 og er ennþá notaður í iðntölvum. Þó aðCP/M stýrikerfið hafi upprunalega verið hannað fyrir 8080 voru langflestar vélar sem keyrðu það kerfi byggðar í kring um þennan örgjörva.
Auk þess að vera mest seldi örgjörvi allra tíma er Z80 einnig sá er hefur komið út í flestum útgáfum en yfir 100 framleiðendur hafa komið fram með útfærslu af honum, flestar með leyfi frá Zilog veksmiðjunni en mýgrútur af verksmiðum íAustur-Evrópu,Suður-Ameríku ogAsíu framleiddu einnig eftirlíkingar.