Windows 7 (áður þekkt með dulnefninu „Blackcomb“ og seinna „Vienna“) stýrikerfi, sem er ekki lengur stutt, er útgáfa afWindows, sem tók við afWindows Vista. Windows 7 kom út 22. október 2009 og fékkst annað hvort sem32-bita (x86) eða64-bita (x64).
Windows 7 var ein vinsæĺasta útgáfan af Windows, en er árið 2018 sú elsta sem enn er studd (en fæst ekki lengur keypt) fyrir almenna notendur. Á heimsvísu tók Windows 10 framúr Windows 7, og skv. StatCounter var Ísland fyrsta landið til að gera það. Árið 2019 var Windows 7 enn vinsælast í sumum löndum, en ekki lengur, og aðrar útgáfur en Windows 7 ogWindows 10 eru hverfandi lítið notaðar, alla vega ekki á Íslandi.
Windows 7 var gefið út í sex mismunandi útgáfum. Þær eruHome Premium,Enterprise,Ultimate,Professional,Starter ogHome Basic. Einnig komu út undirútgáfurnar N og KN, þar sem Windows forritum á borð viðMedia Player,Windows Media Center ogWindows DVD maker var sleppt.
Þjónustupakki 1 (service pack 1 á ensku) var gefinn út 9. febrúar 2011. Þjónustupakkinn er öryggisuppfærsla sem einnig bætir möguleika og þjónustur í stýrikerfinu, eins og hljóð gegnumHDMI-tengi og prentun með XPS Viewer.
Windows 7 hefur náð áfanga 1 (M1). Áfangi 1 var með útgáfunúmer af 6.1.6519.1. og var sendur til lykil félaga, í bæði 32-bit (x86) og 64-bit (x64), í janúar 2008. Samkvæmt upplýsingum sem voru sendar tilTG Daily hefur áfangi 1 bætt við stuðningi við mörg skjákort sem vinna saman og nýja útgáfu af Windows Media Center.