Fram að júní 2009 féll mestallur texti á Wikipedía undirFrjálsa GNU handbókarleyfið en þá var skipt yfir íCreative Commons Attribution-ShareAlike (CC-by-SA) 3.0.[2] Það þýðir að deila má efni Wikipediu gegn því að það sé endurútgefið undir sama leyfi.Myndir ogmargmiðlunarefni falla stundum undir önnur skilyrði.
Mest af efnisinnihaldi Wikipedía er komið frá notendum. Allt efnið er síbreytilegt og það verður aldrei fullkomnað. Vegna þessa er Wikipedía einstætt viðfangsefni.
Sú hugmynd, að geta safnað allri þekkingu á einn stað, á rætur sínar að rekja allt tilAlexandríusafnsins ogPergamon til forna. Með tilkomuinternetsins, reyndu margir að búa til internetalfræðirit. Talsmaður frjáls hugbúnaðar,Richard Stallman, benti á notagildi „frjálsrar alhliða alfræðibókar og menntunarauðlindar“ árið1999. Hann lýsti stofnun Wikipedía sem „spennandi frétt“ ogfrjálsu hugbúnaðasamtökin hans hvetur fólk til þess að taka þátt og miðla efni.
Þann20. september2004 fóru greinarnar yfir 1 milljón. Milljónasta greinin var á hebresku og var um fánaKazakhstan.
Fyrir utan einstaka tæknilega örðugleika hefur enski hluti Wikipedía starfað óslitið frá15. janúar2001. Nokkuð er hins vegar á reiki hvenær íslenski hlutinn var stofnaður, og fer allt eftir því hvernig er talið.
Fyrsta gagnagrunnsbreytingin á íslenska hlutanum var gerð á greininni „WIKIng“ (sem síðar var eytt) þann6. desember2002 klukkan 19:43UTC+0[1] ádönsku og sú næsta nærári síðar þann24. nóvember2003[2] ánýnorsku, fyrsta viðbótin áíslensku var hins vegar gerð5. desember2003 kl. 11:54 ummorgun og má telja að með henni hafi saga íslensku útgáfunnar hafist.
Hugbúnaðurinn sem upprunalega keyrði Wikipedía hétUseModWiki. Hann var skrifaður afClifford Adams („skref I“). Fyrst þurfti að notaCamelCase fyrir tengla; en fljótlega varð hægt að nota þá aðferð, sem nú er notuð ([[tengill]]). Í janúar2002, byrjaði wikipedía að keyra á PHP wiki kerfi, sem notaðiMySQL gagnagrunnskerfi, og bættust margir nýjir möguleikar við (og í leiðinni gerði CamelCase tengla ónothæfa). Nýja kerfið var sérstaklega skrifað fyrir Wikipedía verkefnið af Magnus Manske („skref II“). Eftir þó nokkurn tíma, hægðist mikið á kerfinu og það var nánast ómögulegt að gera neitt. Ýmsar breytingar og uppfærslur voru gerðar en þjónuðu aðeins tímabundnum tilgangi. Þá endurskrifaði Lee Daniel Crocke allt wiki kerfið frá grunni og hefur nýja útgáfan verið í notkun síðan í júlí 2002 („skref III“). Núverandi hugbúnaður heitirMediaWiki og er hann í notkun í mörgum öðrum verkefnum. Fyrsti fullráðni starfsmaðurinn varBrion Vibber og í dag eru 550 starfsmenn að sjá um rekstur vefþjónana.
Árið2003 hafði sambandsleysi þjónsins rýrt „framleiðslugetu“ notenda. Margir kvörtuðu undan vandamálum með að breyta greinum og miklum hægagangi. Vandamálið var vegna þess að aðeins var einn þjónn að keyra öll wiki verkefnin.
Frá júní2004 til 2014, keyrðu verkefnin á níu tileinkuðum þjónum sem eru staðsettir íFlórída. Uppsetningin samanstóð af einum gagnagrunnsþjóni og þrem vefþjónum, sem allir keyrðu stýrikerfiðFedora. Frá 2014 eru verkefnin á tveimur stöðum, í Texas og Ashburn, Bandaríkjunum og keyra áDebian. Þjónarnir framreiða allar beiðnir, og túlka allar síður til notenda. Til að auka hraða frekar, eru síður sem óskráðir notendur biðja um geymdar í skyndiminni þar til þeim er breytt af einhverjum notanda, sem gerir það óþarfa að túlka vinsælustu síðurnar aftur og aftur. Skyndiminnis vefþjónarnir eru í Amsterdam, San Francisco, Singapore og Marseille.
Í febrúar2005 var haldin söfnun fyrir nýjum vélbúnaði$75.000, söfnunin tókst vel og fór 15% yfir áætlað mark.
Wikipedía hefur oft verið gagnrýnd harkalega, og efast hefur verið um trúverðugleika Wikipedíu, þar sem hún er opin og allir geti breytt umfjöllunarefni hennar, enVísindavefurinn bendir á að hið andstæða sé satt og að það að allir geti breytt Wikipedíu geri hana einungis áreiðanlegri en þær alfræðiorðabækur sem eru aðeins lesnar yfir af fáum einstaklingum:
Benda má á að hver sem er getur skrifað og breytt Wikipedía-síðum, en þar sem svo margir lesa yfir breytingarnar er Wikipedía samt mun áreiðanlegri en vefsíður reknar af einum einstaklingi.
↑Andreas M. Kaplan, Haenlein Michael (2014) Collaborative projects (social media application): About Wikipedia, the free encyclopedia. Business Horizons, Volume 57 Issue 5, pp.617-626