Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

West End (London)

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Shaftesbury Avenue séð fráPiccadilly Circus árið 1949.

West End er hverfi íMið-London áEnglandi. Innan þess eru margir ferðamannastaðir borgarinnar, höfuðstöðvar ýmisa fyrirtækja og verslana ogWest End-leikhúsin. Farið var að nota nafnið undir lok19. aldarinnar um svæðið vestanCharing Cross. Í West End er stærsta verslunarhverfi í Evrópu og þar er fjöldi veitingahúsa, hótela, bara og næturklúbba.

West End-svæðið er vestan við það svæði sem borgin náði yfir á tímumRómverja og á miðöldum. Svæðið varð vinsælt hjá yfirstéttunum af því að vegna ríkjandi vindátta lagði reyk frá borginni sjaldan þangað. Það var líka nærri konungshöllinni og síðar þinghúsinu íWestminster. West End er að mestu innanWestminsterborgar (sem er einn af 32borgarhlutum í London). Svæðið byggðist upp á17.,18. og19. öld og þar voru byggðar hallir, dýr raðhús, tískuverslanir og skemmtistaðir. Á svæðunum næstCity of London:Holborn,Seven Dials ogCovent Garden, bjuggu aðallega fátæklingar, en á 19. öldinni voru þessi svæði enduruppbyggð.

Heitið West End er notað bæði um skemmtistaðina og leikhúsin umhverfisLeicester Square ogCovent Garden, verslunarhverfið sem er umhverfisOxford Street,Regent Street ogBond Street og um þann hluta Mið-London sem liggur vestan við City.

  ÞessiLundúnagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=West_End_(London)&oldid=1386662
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp