Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Washington, D.C.

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Washington, D.C.
District of Columbia
Hvíta húsið í Washington, D.C.
Hvíta húsið í Washington, D.C.
Fáni Washington, D.C.
Fáni
Opinbert innsigli Washington, D.C.
Innsigli
Hverfin í Washington, D.C.
Hverfin í Washington, D.C.
Washington, D.C. er staðsett í Bandaríkjunum
Washington, D.C.
Washington, D.C.
Staðsetning innan Bandaríkjanna
Hnit:38°54′17″N77°00′59″V /38.90472°N 77.01639°V /38.90472; -77.01639 (District of Columbia)
Land Bandaríkin
Nefnd eftirGeorge Washington
Stjórnarfar
  BorgarstjóriMuriel Bowser
Flatarmál
  Borg177 km2
  Land158,32 km2
  Vatn18,71 km2
Hæsti punktur
125 m
Lægsti punktur
0 m
Mannfjöldi
 (2020)
  Borg689.545
  Þéttleiki4.355,39/km2
  Þéttbýli
5.174.759
  Stórborgarsvæði
6.304.975
TímabeltiUTC−05:00 (EST)
  SumartímiUTC−04:00 (EDT)
Póstnúmer
20001–20098, 20201–20599, 56901–56999
Svæðisnúmer202 og 771
ISO 3166 kóðiUS-DC
Vefsíðadc.gov

Washington, D.C. (einnig kölluðWashington-borg eðaD.C.) erhöfuðborg ogstjórnarseturBandaríkjanna. Borgin er nefnd eftirGeorge Washington, fyrstaforseta Bandaríkjanna. Skammstöfunin „D.C.“ stendur fyrir „District of Columbia“, alríkishéraðið sem borgin tilheyrir. Svæðið sem tilheyrir þessu alríkishéraði í dag var upphaflega klofið úr fylkjunumMaryland ogVirginíu. Alríkishéraðið dregur nafn sitt afþjóðartákngervingnumKólumbíu.

Um 690.000 manns búa innan alríkishéraðsins,[1] en borgin teygir sig út fyrir héraðið inn í Maryland og Virginíu. Heildaríbúafjöldi stórborgarsvæðisins er 6,3 milljónir (2023).[2] Stórborgarsvæðið er sjöunda stærsta borgarsvæði Bandaríkjanna. Frá 1973 hefur stjórn alríkishéraðsins verið í höndum borgarstjóra og 13 manna kjörins borgarráðs, enBandaríkjaþing hefur heimild til að fella úr gildi lög alríkishéraðsins. Íbúar alríkishéraðsins hafa ekki kosningarétt á Bandaríkjaþingi, en kjósa sér einn áheyrnarfulltrúa án atkvæðisréttar í neðri deild þingsins. Kjósendur í borginni hafa þrjákjörmenn íforsetakosningum samkvæmt23. viðauka bandarísku stjórnarskrárinnar frá 1961.

Washington-borg markar suðurendaBoston-Washington-beltisins. Borgin hýsirríkisstjórn Bandaríkjanna og er mikilvægheimsborg.[3] Í borginni eru helstu stjórnarbyggingar alríkisstjórnarinnar, eins ogHvíta húsið,Bandaríska þinghúsið,Hæstiréttur Bandaríkjanna og mikill fjöldi alríkisstofnana. Þar eru fjölmörg söfn og minnismerki, þau helstu í almenningsgarðinumNational Mall. Þeirra á meðal eruJefferson-minnismerkið,Lincoln-minnismerkið ogWashington-minnismerkið. Þar eru 177 erlendsendiráð staðsett, auk höfuðstöðvaAlþjóðabankans,Alþjóðagjaldeyrissjóðsins,Samtaka Ameríkuríkja, og fleiri alþjóðasamtaka. Borgin er þekkt sem miðstöð þrýstihópa og þar eru fjölmörg félagasamtök, samtök iðnfyrirtækja, og hugveitur, aðallega viðK-stræti.[4] Washington-borg er líka einn af helstu ferðamannastöðum Bandaríkjanna. Árið 2022 er áætlað að 20,7 milljónir innlendra ferðamanna[5] og 1,2 milljón erlendra ferðamanna hafi heimsótt borgina, sem gerir hana að sjöundu mest heimsóttu borg Bandaríkjanna.[6]

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Washington var stofnuð sem óháðborg og nokkurs konar óháð fylki fyrirríkisstjórn alls landsins. Hið nýjalýðveldi hafði frásjálfstæðisyfirlýsingunni 1776 enga höfuðborg.Þingið kom saman á ýmsum stöðum svo sem íBaltimore,New York ogPhiladelphiu. Til óeirða kom árið1783, þegarherinn fékk ekki laun sín greidd. Þegar ríkisstjórnin fékk hvorki stuðning Philadelphiu né fylkisins, var ákveðið að stofna sérstakt fylki fyrir hana undir stjórn þingsins. Eftir miklar umræður var fallist á stað við Potomac-ána (1791) ogGeorge Washington skipulagði endanlega í smáatriðum.Maryland lét af hendi 179 km² ogVirginia 80 km². Foringi í uppreisnarhernum,Pierre-Charles L'Enfant, góðurarkitekt, var fenginn til að skipuleggja borgina sem ber enn þann svip sem hann gaf henni. Hann komþinghúsinu ogHvíta húsinu fyrir, þar sem þau standa, og tengdi þau með Pennsylvaniabraut.

Frá Capitol-byggingunni liggja 4 götur, Norður-, Suður- og Austur Capitolgötur og Mall. Þær skiptu borginni í fjórðunga, na., nv., sv. og sa. Norður-suður götunum gaf Pierre númer, sem hófust á einum en austur-vestur göturnar fengu bókstafi. Skálægu breiðgöturnar fengu nöfn hinna 13 fylkja sambandsríkisins. Mall var veigamest breiðgatnanna á milli Capitol og Potomac og skyldi gefa borginni opið yfirbragð. Árið1800 var lokið við forsetabústaðinn, þinghúsið og fjármálaráðuneytið svo að þingið gat komið saman í Washington í nóvember sama ár. Þá þegar var farið að tala um stórborg með 100-200 þúsund íbúum, þóttíbúafjöldinn væri aðeins 2.464 auk 623 þræla.

Árið1814 íöðru stríði þeirra við Bandaríkin réðust Bretar á lítt varða borgina og brenndu hana að mestu en skýfall bjargaði því sem bjargað varð og varði hana frá algerri eyðingu. Eyðileggingin var slík, að þingið samþykkti með naumum meirihluta að endurbyggja borgina. Um nokkurra ára bil var hún meiri draumur en veruleiki.Charles Dickens skrifaði eftir heimsókn þangað: „Washington er borg hinna miklu áforma“. Virginíufylki bar sig upp vegna þess, að svæðið, sem það lagði undir Washington væri óskipulagt. Því ákvað þingið árið 1846, að skila því aftur.

Árið1863 hófstþrælastríðið oghergagnaiðnaður komst á legg. Herstjórnin og herdeildir sátu í Washington og Capitol var breytt ísjúkrahús. Að loknu stríðinu fjölgaði íbúum fljótlega vegna 40.000 frelsaðra þræla sem settust þar að. Eftir1870 fjölgaði íbúðar- og stjórn-sýslubyggingum svo mikið að farið var að kalla Washington þjóðarsviðið. Árið1887 fundust aftur hinar gleymdu teikningar L'Enfants en ekki var farið að nota þær aftur fyrr en um1900.

Washington DC tilheyrir engu ríki sem gerir það að verkum að það hefur engan fulltrúa á Bandaríkjaþingi. Lengi hefur verið talað fyrir því að gera Washington DC að 51. ríki Bandaríkjanna en aldrei hefur orðið neitt úr því.

Söfn

[breyta |breyta frumkóða]

Smithsonian-stofnunin rekur fjölda safna, meðal annars:

  • Náttúrugripasafn
  • Flug og geimferðasafn
  • Sögusafn Bandaríkjanna
  • Dýragarð

Íþróttalið

[breyta |breyta frumkóða]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „QuickFacts: Washington city, District of Columbia“. United States Census Bureau.Afrit af uppruna á 28 janúar 2023. Sótt 21 janúar 2023.
  2. „Annual Estimates of the Resident Population for Metropolitan Statistical Areas in the United States and Puerto Rico: April 1, 2020 to July 1, 2023 (CBSA-MET-EST2023-POP)“. United States Census Bureau.Afrit af uppruna á 14. mars 2024. Sótt 19. mars 2024.
  3. Broder, David S. (18 febrúar 1990).„Nation's Capital in Eclipse as Pride and Power Slip Away“.The Washington Post.Snið:ProQuest.Afrit af uppruna á 10 ágúst 2015. Sótt 18 október 2010.
  4. Zak, Dan (19 maí 2023).„K Street: The route of all evil, or just the main drag?“.The Washington Post (bandarísk enska).ISSN 0190-8286. Sótt 2 maí 2024.
  5. „Washington, DC Visitor Research“.washington.org.Afrit af uppruna á 8 nóvember 2023. Sótt 24. desember 2023.
  6. „America's Most Visited Cities“.WorldAtlas (bandarísk enska). 16 júlí 2024. Sótt 10 febrúar 2025.
Fylki
Alríkissvæði
Hjálendur
Yfirráðasvæði eruskáletruð
  ÞessiBandaríkja-tengdagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Washington,_D.C.&oldid=1928394
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp