Vikur er frauðkenntberg, lítt kristallað. Vikur er súrt eða ísúrt glerfrauð sem finnst í misþykku gosseti úr allstórum kornum og getur flotið á vatni. Það er til ljós vikur (líparít) eða dökkur (andesít,basalt). Vikurinn fellur harðstorknaður til jarðar. Hann er mjög efnisléttur, enda flýtur hann ef hann er lagður á vatn.Vikrar nefnist landsvæði sem þakið er þykku vikurlagi.
Vikur er aðallega notaður í byggingariðnaði svo sem íhleðslusteina,léttsteypueiningar og í múrkerfi. Vikur er notaður sem íblöndunarefni í hita og hljóðeinangranir og til eldvarna. Vikur hefur verið fluttur út til að nota ískorsteinseiningar. Vikur hefur einnig verið notaður íkattarsand og sem íblöndunarefni í gróðurmold til að auka rakaheldni hennar.
Fjórar eldstöðvar á Íslandi hafa gosið ljósum vikri áNútíma.Hekluvikur er súr líparítvikur. Margar eldstöðvar hafa hins vegar gosið basísku eða ísúru gjalli eða ösku þ.e. basaltvikri. Frægust þeirra erKatla.