Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Verkfræðisveit Bandaríkjahers

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Merki verkfræðisveitarinnar.

Verkfræðisveit Bandaríkjahers (enska:United States Army Corps of Engineers, skammstafað USACE) er deild innanlandhers Bandaríkjanna sem fæst viðhernaðarverkfræði. Hún hefur þrjú undirsvið:verkfræðiherdeild,hernaðarbyggingar ogmannvirkjagerð. Verkfræðisveitin hefur 37.000 starfsmenn, sem gerir hana að einni stærstu hönnunar- og verkfræðistofu heims.[1] Um 97% starfsfólks sveitarinnar er borgaralegt starfsfólk. Aðeins 3% eru íherþjónustu. Starfsfólk er að mestu staðsett í Bandaríkjunum, Evrópu og nokkrum stöðum í Mið-Austurlöndum.

Staða yfirverkfræðingsBandaríkjahers var stofnuð árið 1775, og sérstök verkfræðisveit var stofnuð 1779. Núverandi verkfræðisveit var stofnuð árið 1802.Landmælingasveit Bandaríkjahers rann saman við verkfræðisveitina árið 1863. Meðal þekktustu verkefna sveitarinnar eru byggingWashington-minnismerkisins íWashington D.C. 1884, gerðPanamaskurðarins 1914, byggingar fyrirManhattanverkefnið 1942-1946, byggingPentagon á aðeins 16 mánuðum 1943, ogKennedy-geimferðamiðstöðin 1961.[2]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „About -- Headquarters U.S. Army Corps of Engineers“. usace.army.mil. Sótt 12 janúar 2015.
  2. Marcia Wendorf (30. mars 2020).„The Dexterous History of the U.S. Army Corps of Engineers“.Interesting Engineering.
  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Verkfræðisveit_Bandaríkjahers&oldid=1931349
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp