Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Vörumerki

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Merki þessa vefs,Wikipediu, er skrásett vörumerki í eiguWikimedia Foundation.

Vörumerki ermerki eða tákn sem gerirneytendum kleift að aðgreina vörur og þjónustu eins aðila frá vörum eða þjónustu annars aðila. Vörumerki þjóna mikilvægu hlutverki við markaðssetningu og eru oft ein verðmætasta eign fyrirtækja. Vörumerkjavernd fæst með skráningu eða notkun vörumerkis, en vörumerkjaskráning gildir í 10 ár í senn og er hægt að endurnýja hana eins oft og eigandi merkisins óskar. Vörumerkjaréttur er landsbundinn, en hægt er að sækja um alþjóðlega skráningu vörumerkja á grundvelli íslenskrar vörumerkjaumsóknar eða skráningar (sbr. Bókunar viðMadridsamninginn, eða svonefnds Madrid-skráningarkerfis).

Vörumerki á Íslandi þurfa að uppfylla tiltekin skilyrði vörumerkjalaga nr. 45/1997, til að fást skráð. Þau geta ekki verið almenns eðlis eða lýsandi fyrir þá vöru eða þjónustu sem þau eiga að auðkenna. Þá má ekki skrá vörumerki sem eru eins eða lík vörumerkjum sem þegar eru skráð fyrir svipaða vöru eða þjónustu.Hugverkastofan skráir vörumerki á Íslandi.

Tengill

[breyta |breyta frumkóða]
Hugverk
Sérstæð réttindi
Takmarkanir
Stofnanir
Samningar
Parísarsamþykkt um vernd eignarréttinda á sviði iðnaðar (1883) ·Bernarsáttmáli til verndar bókmenntum og listaverkum (1886) ·Madrídarsamningur um alþjóðaskráningu merkja (1891) ·Haag-samningur um alþjóðlega skráningu hönnunar á sviði iðnaðar (1934-1999) ·Genfarsamþykkt um höfundarétt (1952) ·Rómarsáttmáli um vernd listflytjenda, framleiðenda hljóðrita og útvarpsstofnana (1961) ·Samstarfssamningur um einkaleyfi (1970) ·Samningur Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar um hugverkarétt í viðskiptum (1994) ·Höfundaréttarsáttmáli Alþjóðahugverkastofnunarinnar (1996) ·Alþjóðasamningur um vernd listflytjenda, framleiðenda hljóðrita og útvarpsstofnana (1996) ·PLT-samningurinn (2000) ·ACTA (2011) ·Beijing-samningurinn um flutning hljóð- og myndefnis (2012)
Gagnrýni
Ýmislegt
Eftir löndum
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Vörumerki&oldid=1668381
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp