Urumqi (eða Urumchi) (kínverska: 乌鲁木齐;rómönskun: Wūlǔmùqí; úígúrska ئۈرۈمچى) (stundum stytt sem „Wushi“kínverska:乌市; ;rómönskun: Wūshì), er höfuðborgsjálfstjórnarhéraðsinsXinjiang í norðvesturhluta Alþýðulýðveldisins Kína. Hún er staðsett í 1.000 metra hæð yfir sjávarmáli í norðanverðum miðhluta Xinjiang héraðs, í frjóu belti gróðurvinjar meðfram norðurhlíð Tianshan-fjalla á báðum bökkumUrumqi fljóts. Borgin svæðismiðstöð fyrir lesta-, vega- og flugsamgöngur. Árið 2020 bjuggu á stórborgarsvæði Urumqi um 5,3 milljónir manna.
Urumqi var mikilvægur áningarstaður viðSilkveginn á tímaTangveldisins (618-907) í Kína og þróaði orðspor sitt sem leiðandi menningar- og verslunarmiðstöðTjingveldisins á 19. öld. Nafnið Urumqi er dregið úr á mongólsku og þýðir „fallega engi“.
Moska í Urumqi borg.
Urumqi þróast hratt síðan á tíunda áratug síðustu aldar og þjónar nú sem svæðisbundin miðstöð samgangna, menningar, stjórnmála og viðskipta í Xinjiang héraði. Umalþjóðaflugvöll borgarinnar fóru 23 milljónir farþega árið 2018.
Urumqi er næststærsta borgin í norðvesturhluta Kína, sem og sú stærsta í Mið-Asíu miðað við íbúafjölda. Menningarlega er borgin talin úígúrsk borg. Borgarbúar eru þó langflestir Han-kínverjar (75 prósent árið 2010), enÚígúrar (um 12 prósent) og kasakstanar (um 2 prósent) eru langflestir múslimar. Úígúrska þjóðin talar tungu af tyrkneskum stofni, sem er alls óskyld kínversku.