
Ulbricht-kenningin (nefnd eftir austur-þýska leiðtoganumWalter Ulbricht) var utanríkisstefna á tímumkalda stríðsins sem gerði ráð fyrir því aðAustur-Þýskaland ogVestur-Þýskaland gætu ekki átt í eðlilegu stjórnmálasambandi nema með því skilyrði að bæði ríkin viðurkenndu fyrirvaralaust fullveldi hvers annars. Ulbricht-kenningin var á skjön við vestur-þýskuHallstein-kenninguna, sem var byggð á þeirri stefnu að Vestur-Þýskaland væri eina lögmæta þýska ríkið og að viðurkenning á sjálfstæði og fullveldi Austur-Þýskalands væri með öllu óásættanleg.
Stjórn Austur-Þýskalands naut stuðnings annarra kommúnistaríkja á borð viðTékkóslóvakíu,Pólland,Ungverjaland ogBúlgaríu fyrir stefnu sinni. Þessi ríki féllust öll á að eiga ekki í eðlilegu stjórnmálasambandi við Vestur-Þýskaland nema að undangenginni viðurkenningu þess á fullveldi Austur-Þýskalands.
Að endingu ákváðu stjórnvöld Vestur-Þýskalands að láta af Hallstein-kenningunni og tóku hennar í stað upp svokallaðaAusturstefnu (þýska:Ostpolitik). Í desember árið 1972 gerðu Austur- og Vestur-Þýskaland með sér samning sem fól í sér gagnkvæma viðurkenningu á sjálfstæði beggja ríkjanna. Samningurinn gerði ríkjunum jafnframt kleift að skiptast á sendiráðum og að gerast fullgildir aðilar aðSameinuðu þjóðunum.