Frá lokum 13. aldar hófuOttómanar að sameina þessi furstadæmi og enduðu á því að skapa heimsveldi sem náði yfir stærstan hluta Suðaustur-Evrópu,Vestur-Asíu ogNorður-Afríku. Ottómantyrkir höfðu flust til Anatólíu í kjölfarið á Seljúktyrkjum og með veldi þeirra hófst saga ríkisins sem í dag er þekkt semTyrkjaveldi eða Ottómanveldið. Árið 1453 náðu TyrkirKonstantínópel (núverandiIstanbúl), höfuðborg Austrómverska ríkisins, á sitt vald og gerðu að höfuðborg sinni. Ríkið náði hátindi sínum undir stjórnSúleimans mikla á 16. öld. Það var áfram stórveldi næstu tvær aldirnar þar til atburðir á 19. og 20. öld urðu til þess að það missti flest lönd sín í Evrópu. Þar með dró verulega úr styrk og ríkidæmi heimsveldisins. Eftirvaldaránið í Tyrkjaveldi 1913 var landið undir stjórnþriggja pasja sem ákváðu að ganga til liðs viðMiðveldin íFyrri heimsstyrjöld. Í stríðinu voru framinþjóðarmorð áarmenskum,assýrískum oggrískum íbúum landsins. Eftir stríðið var löndum Tyrkjaveldisskipt upp.Mustafa Kemal Atatürk hóf þásjálfstæðisstríð Tyrklands gegn setuliðiBandamanna. Soldánsdæmið var afnumið 1922 og lýðveldi stofnað árið eftir undir forsæti Atatürks. Atatürk réðist í miklar samfélagsumbætur sem margar voru undir áhrifum frávestrænni heimspeki og stjórnmálahugsun.
Tyrkland er eitt af stofnríkjumSameinuðu þjóðanna, gerðist snemma aðili aðAtlantshafsbandalaginu,Alþjóðagjaldeyrissjóðnum ogHeimsbankanum, og stofnaðiliOECD,OSCE,BSEC,OIC ogG-20. Eftir að verða eitt af fyrstu aðildarríkjumEvrópuráðsins 1949 fékk Tyrkland aukaaðild aðevrópska efnahagssvæðinu, gerðist aðili aðevrópska tollabandalaginu 1995 og hóf aðildarviðræður viðEvrópusambandið árið 2005. Þær viðræður voru stöðvaðar af Evrópusambandinu árið 2017 vegna þróunar stjórnar Tyrklands í átt til alræðis. Tyrkland hefur verið stórveldi í sínum heimshluta, meðal annars vegna staðsetningar sinnar. Það er veraldlegt, miðstýrt ríki sem áður bjó viðþingræði en breyttist íforsetaræði með stjórnarskrárbreytingu árið 2017 sem tók gildi í forsetakosningum árið 2018. Núverandi stjórnarleiðtogi erRecep Tayyip Erdoğan sem hefur unnið að því að aukaíslömsk áhrif og afnema eldri samfélagsumbætur, þar með taldar umbætur sem Atatürk stóð fyrir.
Tyrkland er miðstýrt, óskipt ríki sem er helsta einkenni tyrkneskrar stjórnsýslu. Önnur stjórnsýslustig hafa lítið sem ekkert sjálfstæði gagnvart ríkisvaldinu í Ankara. Sýsluskiptingin er hugsuð sem farvegur fyrir opinbera þjónustu á hverjum stað. Sýslurnar og bæirnir heyra undir sveitarstjóra og bæjarstjóra sem skipaðir eru af stjórninni. Aðrir opinberir starfsmenn eru ýmist skipaðir af stjórninni eða kosnir í sveitarstjórnarkosningum. Sveitarfélög í Tyrklandi eru með lögþing sem taka ákvarðanir um málefni sveitarfélagsins.
Innan þessa ramma er Tyrklandi skipt í 81 sýslu. Hver sýsla skiptist í umdæmi sem eru alls 923. Tyrklandi er skipt í 7 landfræðileg héruð og 21 undirhérað til að auðvelda utanumhald og tölfræði. Héruðin eru ekki stjórnsýslueining. Sumir fræðimenn hafa gagnrýnt miðstjórnarfyrirkomulagið fyrir að hindra góða staðbundna stjórnsýslu. Það veldur oft togstreitu í bæjum þar sem meirihluti íbúa tilheyrir minnihlutahópi eins og í héruðum Kúrda. Skref sem stigin hafa verið í átt til aukinnar valddreifingar frá 2004 hafa reynst mjög umdeild.Evrópusáttmáli um sjálfsstjórn sveitarfélaga hefur drifið þessa þróun áfram.
Asíuhluti Tyrklands, sem er 97% landsins, greinist frá Evrópuhlutanum viðBospórussund,Marmarahaf ogDardanellasund. Evrópuhluti Tyrklands,Austur-Þrakía, er 3% landsins. Tyrkland er ferhyrningslaga, yfir 1600 km á lengd og 800 km á breidd. Það liggur milli 35. og 43. breiddargráðu norður og 25. og 45. lengdargráðu austur. Landið er 783.562 km² að stærð. Þar af eru 755.688 km² í Asíu og 23.764 km² í Evrópu. Tyrkland er 37. stærsta land heims. Þrjú stór innhöf liggja að því:Svartahaf í norðri,Eyjahaf í vestri ogMiðjarðarhaf í suðri. Marmarahaf er lítið innhaf á milli Eyjahafs og Svartahafs í norðvestri.
Austur-Þrakía, Evrópuhluti Tyrklands, liggur að landamærum Grikklands og Búlgaríu. Asíuhlutinn er að mestu leyti Anatólíuskaginn eða Litla-Asía. Á skaganum er miðhálendisslétta og mjóar strandlengjur. Í norðri eruKöroğlu-fjöll ogPontusfjöll og í suðri eruTárusfjöll.Austur-Tyrkland, sem er á vesturhlutaArmenska hálendisins, er fjalllendara. Þar eru upptök margra fljóta, eins ogEfrat,Tígris ogAras. Þar er líka fjalliðArarat, hæsta fjall Tyrklands, 5.137 metra hátt, ogVanvatn, stærsta stöðuvatn landsins.Suðaustur-Tyrkland er norðurhlutiEfri Mesópótamíu.
Líffjölbreytni er mikil í Tyrklandi. Í Anatólíu eru margar nytjajurtir sem hafa verið ræktaðar frá upphafilandbúnaðar upprunar, og villtir forfeður margra helstu matjurta mannkyns vaxa enn í Tyrklandi. Dýraríkið er jafnvel enn fjölbreyttara en jurtaríkið með um 80.000 dýrategundir (yfir 100.000 ef undirtegundir eru taldar með), en til samanburðar eru um 60.000 dýrategundir í allri Evrópu.
Anatólíuhlébarði er útdauð hlébarðategund, náskyldpersneskum hlébarða. Síðasti anatólíuhlébarðinn var drepinn íBeypazarı árið 1974. Persneskur hlébarði finnst enn í suðausturhéruðum Tyrklands.Kaspíatígur lifði í austustu héruðum Tyrklands fram yfir miðja 20. öld, en síðasta dýrið dó í Uludere 1970 svo vitað sé.Evrasíugaupa ogevrópskur villiköttur eru aðrar kattartegundir sem lifa í skógum Tyrklands.
Í strandhéruðum Tyrklands sem liggja að Eyjahafi og Miðjarðarhafi ríkir miltMiðjarðarhafsloftslag með þurr og heit sumur og raka og svala vetur. Í strandhéruðum við Svartahaf er miltúthafsloftslag með heit og rök sumur og kalda og raka vetur. Mest úrkoma í Tyrklandi fellur við strönd Svartahafs. Það er eina hérað Tyrklands sem fær úrkomu allt árið um kring. Í austlægustu strandhéruðunum er ársúrkoma 2.200 mm sem er það mesta í landinu.
Við Marmarahaf, milli Eyjahafs og Svartahafs, er millibilsloftslag með heit, í meðallagi rök, sumur og kalda og raka vetur. Snjór fellur við strönd Marmarahafs og Svartahafs á nær hverju ári en bráðnar venjulega fljótt. Snjókoma er sjaldgæf við strönd Eyjahafs og mjög sjaldgæf við Miðjarðarhafsströndina.
Fjalllendið við ströndina kemur í veg fyrir að Miðjarðarhafsloftslagið nái inn til landsins. Á hásléttunni ríkir þvímeginlandsloftslag með skýrt aðgreindum árstíðum. Í austurhlutanum eru vetur mjög harðir og frostið getur orðið allt að 40 gráður. Snjór getur verið jarðfastur í 120 daga á ári. Í vestri er meðalhiti á veturna um 1 gráða. Sumrin eru heit og þurr og hitinn nær oft 30 gráðum yfir daginn. Árleg úrkoma er um 400 mm en breytileg eftir hæð yfir sjávarmáli. Mestu þurrkahéruðin eruKonyasléttan ogMalatyasléttan þar sem ársúrkoma er oft undir 300 mm. Mest úrkoma er að jafnaði í maí en minnst í júlí og ágúst.