Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Tonga

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Konungsríkið Tonga
Pule'anga Fakatu'i 'o Tonga
Kingdom of Tonga
Fáni TongaSkjaldarmerki Tonga
FániSkjaldarmerki
Kjörorð:
Ko e Otua mo Tonga ko hoku tofi'a (tongska)
Guð og Tonga eru mín arfleifð
Þjóðsöngur:
Koe Fasi Oe Tu'i Oe Otu Tonga
Staðsetning Tonga
HöfuðborgNúkúalófa
Opinbert tungumáltongska ogenska
StjórnarfarÞingbundin konungsstjórn
KonungurTupou 6.
ForsætisráðherraFatafehi Fakafānua
Sjálfstæði
  fráBretlandi4. júní1970 
Flatarmál
  Samtals
  Vatn (%)
175. sæti
748 km²
4
Mannfjöldi
  Samtals (2021)
  Þéttleiki byggðar
199. sæti
104.494
139/km²
VLF (KMJ)áætl.2019
  Samtals0,655 millj.dala
  Á mann6.496 dalir
VÞL (2019)Hækkun 0.725 (104. sæti)
Gjaldmiðillpanga (TOP)
TímabeltiUTC+13
Þjóðarlén.to
Landsnúmer+676

Tonga (áður þekkt sem „Vináttueyjar“), opinberlegaKonungsríkið Tonga (tongska:Puleʻanga Fakatuʻi ʻo Tonga), erpólýnesískt land ogeyjaklasi sem nær yfir169 eyjar, þar af 36 byggðar.[1] Samanlögð stærð eyjanna er um það bil 750 ferkílómetrar og þær dreifast um 700.000 ferkílómetra hafsvæði íSuður-Kyrrahafi. Árið 2021 voru íbúar Tonga 104.494 talsins.[2] 70% þeirra búa á eyjunniTongatapu.

Eyjar Tonga raðast á um það bil 800 km langa línu frá norðri til suðurs. Næstu eyjar eruFídjieyjar ogWallis- og Fútúnaeyjar í norðvestri,Samóa í norðaustri,Nýja-Kaledónía ogVanúatú í vestri,Niue í austri ogKermadec-eyjar í suðvestri. Tonga er um 1.800 km fráNorðureyNýja-Sjáland.

Frá 1900 til 1970 var Tongabreskt verndarríki. Bretar sáu um utanríkismál Tongverja samkvæmt vináttusamningi, en Tonga létfullveldi sitt aldrei af hendi. Árið 2010 tók stjórn Tonga skref í átt frá hefðbundnueinveldiþingbundinni konungsstjórn, eftir lagabreytingar sem leiddu til fyrstu þingkosninga landsins.

Árið 2022 varð gríðarstórt eldgos íHunga Tonga-eldstöðinni sem myndaði flóð og höggbylgju út um allan heim.

Heiti

[breyta |breyta frumkóða]

Á mörgumpólýnesískum málum, þar á meðal tongsku, er orðiðtonga dregið affakatonga sem merkir „suðurátt“. Eyjaklasinn er nefndur svo af því hann er syðsti eyjaklasinn í miðhlutaPólýnesíu.[3] Orðiðtonga er skylthavaíska orðinukona sem merkir „hléborðs“ og kemur fyrir í nafniKonaumdæmis.[4]

Tonga varð þekkt á Vesturlöndum sem „Vináttueyjar“ af því skipstjórinnJames Cook hlaut vinsamlegar viðtökur þegar hann kom þangað fyrst árið 1773. Þegar hann kom stóð hin árlegainasi-hátíð yfir sem gengur út á að gefa konungi eyjanna,Tu'i Tonga,fyrstu ávextina, svo Cook fékk boð um að mæta á hátíðina. Samkvæmt rithöfundinumWilliam Mariner hugðust leiðtogar eyjarskeggja raunar drepa Cook á hátíðinni, en hættu við því þeir gátu ekki sammælst um hernaðaráætlun.[5]

Stjórnmál

[breyta |breyta frumkóða]

Stjórnsýslueiningar

[breyta |breyta frumkóða]
Héruð Tonga.

Tonga skiptist í fimm héruð sem aftur skiptast í 23 umdæmi.


NafnAths.HöfuðstaðurStærð (km2)Stærð
byggðra eyja (km2)
Íbúar (manntal 2016)Þéttleiki byggðar
(íbúar/km2)
Tongatapuhluti afTongatapu-eyjumNúkúalófa275.527274.611274
VavaʻuNeiafu161131,313.73892,7
HaʻapaiPangai132.11114,26.12550,2
ʻEuahluti afTongatapu-eyjum'Ohonua88.3884.94556,8
Ongo Niuaundir beinni stjórnNúkúalófaHihifo7271.91,23217.8
TongaNúkúalófa728.8677,4100.651142,1

Mínervurif eru almennt talin tilheyra Tonga, en þau heyra ekki undir neitt umdæmi.

Íþróttir

[breyta |breyta frumkóða]

Rúbbí er þjóðaríþrótt Tongabúa og hefur landslið Tonga sex sinnum komist í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í greininni frá árinu 1987. Bestur var árangurinn árin 2007 og 2011 þegar Tonga vann tvær af fjórum viðureignum sínum í riðlakeppninni en komst í hvorugt skiptið áfram.

Greinar sem sverja sig í ætt við rúbbí njóta margar hverjar vinsælda á Tonga. Má þar nefna ástralskan fótbolta, ellefu manna rúbbí (rugby league) ogbandarískan ruðning, en íþróttamenn frá Tonga hafa keppt íNFL-deildinni.

Mikil hefð er fyrir bardagaíþróttum á Tonga.Súmóglíma,júdó oghnefaleikar eru allt dæmi um það.

Tonga sendi fyrst keppendur á Ólympíuleikana íLos Angeles 1984 og hefur tekið þátt síðan. ÍAtlanta 1996 vann landið til sinna fyrstu og einu verðlauna þegar hnefaleikakappinn Paea Wolfgramm fékk silfurverðlaun í hnefaleikum. Hann hóf í kjölfarið atvinnumannaferil með takmörkuðum árangri. Á vetrarólympíuleikunum 2014 og 2018 tefldi Tonga fram einum keppanda, í sleðabruni. Þátttaka hans varð harðlega gagnrýnd, þar sem hann breytti nafni sínu íBruno Banani fyrir leikana í samræmi við nafn aðalstyrktaraðila hans, nærfataframleiðanda fráÞýskalandi.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „The World Factbook: Tonga: Geography“. Sótt 16 nóvember 2018.
  2. „Population Statistics | Tonga Statistics Department“.
  3. „Search | English – Tongan Translator“.www.tongantranslator.com.Afrit af uppruna á 29 apríl 2018. Sótt 29 apríl 2018.
  4. Jolliffe, Lee, ritstjóri (2010).Coffee Culture, Destinations and Tourism. Channel View Publications. bls. 112.ISBN 9781845411923.
  5. Mariner, William ogMartin, John (1817).An account of the natives of the Tonga islands in the south Pacific Ocean: With an original grammar and vocabulary of their language. Compiled and arranged from the extensive communications of Mr. William Mariner, several years' resident in those islands, Volume 2,pp. 64–65Geymt 12 apríl 2016 íWayback Machine. Sótt 3. nóvember 2010.
  Þessilandafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Lönd íEyjaálfu
Ástralía
Melanesía
Míkrónesía
Pólýnesía
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Tonga&oldid=1940452
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp