Teheran (persneska:تهرانTehrān) er höfuðborgÍran ogTeheransýslu. Um 9,8 milljónir búa í borginni sjálfri og 14,4 milljónir á stórborgarsvæðinu.[1] Teheran er líka fjölmennasta borg Íran ogVestur-Asíu, og með annað stærsta stórborgarsvæði íMið-Austurlöndum, á eftirKaíró. Á heimsvísu er Teheran í 24. sæti yfir fjölmennustu þéttbýlissvæði. Teheran er þekkt fyrir hraða útþenslu og nýstárlegan arkitektúr, eins ogMilad-turninn ogFereshteh Pasargad-hótelið sem arkitektinnZaha Hadid hannaði.
Ífornöld stóðmedíska borginHrages á hluta þess svæðis sem Teheran nær nú yfir. Sú borg var lögð í rúst nokkrum sinnum, í kjölfar innrásaAraba,Tyrkja ogMongóla.Ray er nú úthverfi í Teheran.
Teheran var fyrst gerð að höfuðborg í valdatíðAgha Mohammad Khan árið 1786 vegna nálægðar við lönd undir írönskum yfirráðum íKákasus sem þá voru bitbein Persa og Rússa ístríðum Rússa og Írana. Höfuðborg Persíu hefur oft verið flutt til í tengslum við átök ættarvelda. Teheran er 32. höfuðborg Persíu. Víðtækt niðurrif og enduruppbygging hófst á 3. áratug 20. aldar og alla 20. öld voru miklir fólksflutningar til borgarinnar.
Í Teheran er að finna ýmsa sögulega staði, eins og hallirnarGolestan,Sa'dabad ogNiavaran, þar sem tvö síðustu ættarveldi keisaradæmisins höfðust við. Meðal einkennisbygginga í borginni eruAzadi-turn, reistur 1971, í valdatíðMohammad Reza Shah, í tilefni af 2.500 ára afmæli keisaraveldisins;Milad-turn, sjötti hæsti turn heims; ogTabiat-brú sem var opnuð 2014.
Flestir íbúar borgarinnar eruPersar sem talapersnesku sem móðurmál, en þar búa líka stórir hópar með önnur móðurmál sem tala persnesku sem annað mál. Um 99% íbúa borgarinnar tala og skilja persnesku.
Helstu vandamál sem borgin glímir við eruloftmengun og hætta ájarðskjálftum. Vegna þessa hefur komið til tals að flytja höfuðborgina annað. Árið 2016 var Teheran metin í 203. sæti yfir borgir eftir lífsgæðum. Sama ár var borgin líka í topp 10 yfir mest vaxandi ferðamannastaði.