Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Tacoma

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Höfnin með Mount Rainier í bakgrunni.
Tacoma er við sunnanvert Puget-sund.
South J. Street, sögulegt hverfi í borginni.
Höfnin í Tacoma.

Tacoma er borg íWashingtonfylki Bandaríkjanna. Borgin er 51 kílómetra suður afSeattle viðPuget-sund. Borgin er sú þriðja stærsta í fylkinu með um 208.000 íbúa (2015). Tacoma er frumbyggjanafn yfir fjalliðMount Rainier.

Uppruna borgarinnar má rekja til Svíans Nicolas Delins sem byggði sögunarmyllu sem knúin var með vatnsafli árið1852. Árið1864 var byggt pósthús og1887 var endastöð norður-Kyrrahafslestarinnar lögð þangað. Frá1880 til1890 fór íbúafjöldinn frá um 1000 manns yfir í 36.000.

Frá1990 hefur miðbærinn verið verið í enduruppbyggingu. Ný söfn eins ogWashington State History Museum (1996),The Museum of Glass (2002),Tacoma Art Museum (2013) ogAmerica's Car Museum (2011) hafa verið byggð.

Höfnin í Tacoma er ein sú stærsta á norðvestur-Kyrrahafssvæðinu.

Víðmynd.

Heimild

[breyta |breyta frumkóða]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistTacoma.

Fyrirmynd greinarinnar var „Tacoma, Washington“ áensku útgáfuWikipedia. Sótt 7. feb. 2017.

Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Tacoma&oldid=1659380
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp