Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Tútankamon

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gríman af múmíu Tútankamons.

Tútankamon (stundum skrifaðTútankamún eðaTútankamen;fornegypska:twt-ˁnḫ-ı͗mn eðatVwa:t-ʕa:nəx-ʔaˡma:n; um 1341 f.Kr. – 1323 f.Kr.) varfornegypskurfaraó afátjándu konungsættinni á tímaNýja ríkisins. Upphaflega kemur nafn hans fyrir í heimildum semTútankaten sem merkir „lifandi myndAten (sólskífunnar)“ en Tútankamon merkir „lifandi myndAmons (sólguðsins)“. Hann komst til valda níu ára gamall og tók við afSmenkare eðaNeferneferuaten. Hann ríkti í tíu ár. Algengasta tilgátan um ætterni hans er sú að hann hafi verið sonurAkenatens ogKiju sem var ein af eiginkonum hans. Valdatíð Tútankamons einkenndist af afturköllun þeirra trúarlegu og stjórnarfarslegu breytinga sem Akenaten hafði staðið fyrir.

Gröf Tútankamons fannst óhreyfð íDal konunganna afHoward Carter og vinnumönnum hans árið árið1922. Fundurinn vakti gríðarlega athygli um allan heim og gat af sér aukinn áhuga á Egyptalandi til forna. Gullgríman sem var yfirmúmíunni hefur orðið að vinsælli táknmynd fyrir menningu Fornegypta.

  Þettaæviágrip erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Tútankamon&oldid=1593057
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp