Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Syn

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Syn er gyðja ínorrænni goðafræði sem gætir dyra og tengist þingum og lagavörnum. SamkvæmtSnorra-Eddu er orðið „synjun“ dregið af nafni hennar.[1]

Ritaðar heimildir um Syn

[breyta |breyta frumkóða]

Í 35. kaflaGylfaginningar í EdduSnorra Sturlusonar er upptalning áásynjum þar sem Syn er sú ellefta í röðinni. Þar er sagt um hana:

Ellefta Syn. Hún gætir dura í höllinni og lýkur fyrir þeim er eigi skulu inn ganga og hún er sett til varnar á þingum fyrir þau mál er hún vill ósanna. Því er það orðtak að syn sé fyrir sett þá er maður neitar.[2]

Syn er einnig nefnd á nafn íSkáldskaparmálum í skáldskaparkenningunni „mjúkstallur mens mildrar Synjar“.[3] ÍÞórsdrápu kemur nafn Synjar fyrir í kenningunni „salvaniður Synjar“. Talið er að sú kenning eigi viðjötun sem heimsækir oft sal Synjar og er þá ef til vill gefið í skyn að Syn sé jötnaættar líkt og margir æsir og ásynjur.[4]

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. „Ásynjur“.Ásatrúarfélagið. Sótt 25. apríl 2019.
  2. Snorri Sturluson.„Gylfaginning“. Snerpa. Sótt 25. apríl 2019.
  3. „Skáldskaparmál“. Heimskringla.no. Sótt 15. apríl 2019.
  4. Guðmundur Finnbogason (1. janúar 1924).„Um Þórsdrápu“.Skírnir. Sótt 25. apríl 2019.
Helstu goð
Æsir
Ásynjur
Vanir
Aðrir
Jötnar
Dvergar
Skepnur
Aðrir
Staðir
Hlutir
Atburðir
Rit
Goðakvæði og sögur
Trúfélög
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Syn&oldid=1633141
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp