Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Symon Petljúra

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Symon Petljúra
Симон Петлюра
Petljúra á þriðja áratugnum.
Forseti Alþýðulýðveldisins Úkraínu[a]
Í embætti
11. febrúar1919 – 25. maí1926
ForsætisráðherraSerhíj Ostapenko
Borys Martos
Ísaak Mazepa
Vjatsjeslav Prokopovytsj
ForveriVolodymyr Vynnytsjenko
EftirmaðurAndríj Lívytskyj
Persónulegar upplýsingar
Fæddur22. maí1879
Poltava,Úkraínu,rússneska keisaradæminu
Látinn25. maí1926 (47 ára)París,Frakklandi
ÞjóðerniÚkraínskur
StjórnmálaflokkurÚkraínski sósíaldemókratíski verkamannaflokkurinn
MakiOlha Petljúra (1885–1959, g.1910)
Börn1
HáskóliKirkjuháskólinn í Poltava
Undirskrift

Symon Vasylovytsj Petljúra (úkraínska: Си́мон Васи́льович Петлю́ра) varúkraínskur stjórnmálamaður, herforingi og blaðamaður. Hann var leiðtogi úkraínska hersins og forsetiúkraínska alþýðulýðveldisins á stuttum tíma úkraínsks sjálfstæðis frá 1918 til 1921, eftir hrunrússneska keisaradæmisins árið 1917.

Petljúra er umdeild persóna og mikið hefur verið deilt um arfleifð hans. Sumir úkraínskir þjóðernissinnar líta á hann sem sjálfstæðishetju en hins vegar hefur Petljúra víða verið fordæmdur vegna fjöldamorða áGyðingum (pogrom) sem framin voru af hermönnum hans. Í orði kveðnu fordæmdi Petljúra slík morð og lagði við þeim þungar refsingar, en gagnrýnendur hans telja hann ekki hafa gert nóg til að stöðva ofbeldið. Petljúra var ráðinn af dögum íParís árið 1926 afSholem Schwarzbard, Gyðingi sem vildi hefna fjöldamorðanna. Schwarzbard var í kjölfarið sýknaður af vígi Petljúra í ljósi Gyðingaofsóknanna sem höfðu viðgengist undir stjórn hans.

Æviágrip

[breyta |breyta frumkóða]

Symon Petljúra tók þátt í stofnunÚkraínska sósíaldemókratíska verkamannaflokksins árið 1905 og var ritstjóri tveggjasósíalískra vikublaða. Þegarfyrri heimsstyrjöldin braust út árið 1914 varð Petljúra liðsforingi í rússneska hernum.[1]

Þegarrússneska keisaradæmið hrundi írússnesku byltingunni árið 1917 gekk Petljúra til liðs viðmiðstjórn Úkraínu (rada), sem lýsti yfir sjálfstæði landsins frá Rússlandi. Í júlí 1917 var Petljúra útnefndur stríðsmálaráðherra nýjaúkraínska alþýðulýðveldisins.[1]

Eftir að stjórnbolsévika dró Rússland úr fyrri heimsstyrjöldinni meðBrest-Litovsk-sáttmálanum árið 1918 hertókuÞjóðverjar Úkraínu og settu á fótleppstjórn undir stjórnPavlo Skoropadskyj, sem tók sér tignhöfuðsmanns. Þegar Þjóðverjar hörfuðu frá Úkraínu undir lok styrjaldarinnar tók Petljúra sér forystuhlutverk í úkraínsku sjálfstæðishreyfingunni og tókst að kollvarpa stjórn Skoropadskyj. Petljúra hlaut sæti í fimm manna framkvæmdaráði alþýðulýðveldisins og varð æðsti hershöfðingi (ataman) herafla þess.[1]

Írússnesku borgarastyrjöldinni börðust Petljúra og bandamenn hans bæði gegnrauða hernum, sem vildi koma Úkraínu aftur undir rússneska stjórn í nafni kommúnismans, oghvíta hernum sem vildi endurreisa keisaradæmið. Hvítliðar hertóku Úkraínu og kollvörpuðu stjórn Petljúra undir lok ársins 1918. Þegar hvítliðar urðu að hörfa frá Úkraínu haustið 1919 komst Úkraína undir stjórn bolsévika.[1]

Í apríl 1920 gekk Petljúra í bandalag viðJózef Piłsudski, leiðtogaPóllands, í von um að geta með hans hjálp rekið Sovétmenn frá Úkraínu. Petljúra og her hans studdu Piłsudski ístríði Póllands og Sovétríkjanna. Pólverjar sigruðu Sovétmenn í stríðinu en íRiga-sáttmálanum þar sem samið var um vopnahlé tókst ekki að semja um sjálfstæði Úkraínu.[1]

Petljúra bjó íVarsjá í nokkra mánuði en flutti síðan tilParísar ásamt útlegðarríkisstjórn sinni.[1]

Hlutverk í Gyðingaofsóknum

[breyta |breyta frumkóða]

Ofbeldi gegnGyðingum var útbreitt meðal allra deiluaðila í Úkraínu á tíma rússnesku borgarastyrjaldarinnar. Alls er talið að um 35.000 til 50.000 Gyðingar hafi verið drepnir á þessum tíma. Af um 1.236 árásum á Gyðinga (pogrom) sem gerðar voru í Úkraínu bar her alþýðulýðveldisins undir stjórn Petljúra ábyrgð á 493.[2][3]

Deilt hefur verið um hlutverk Petljúra í Gyðingaofsóknunum. Bent hefur verið á að Petljúra hafi reynt að stöðva ofbeldi gegn Gyðingum og hafi lagtdauðarefsingar gegn því að fremjapogrom.[4] Þann 26. ágúst 1919 gaf Petljúra út yfirlýsingu þar sem hann fordæmdipogrom og lýsti því yfir að þeir sem fremdu þau skyldu reknir úr her alþýðulýðveldisins og að litið yrði á þá sem svikara. Í yfirlýsingunni sagði Petljúra að líkt og Úkraínumenn hefðu Gyðingar verið hnepptir í þrældóm og sviptir þjóðfrelsi sínu, og að „Gyðingaþjóðin [hefði verið] með okkur frá örófi alda og [hefði] deilt með okkur örlögum og eymd okkar.“[5] Eftir að Petljúra tók við stjórn framkvæmdaráðs alþýðulýðveldisins skipaði hann jafnframt rannsóknir á Gyðingamorðum sem framin höfðu verið íKamjanets-Podílskyj ogProskúrív og krafðist þess að fremjendur þeirra yrðu dregnir fyrir herrétt.[6]

Petljúra hefur engu að síður verið gagnrýndur fyrir að gera ekki nóg til að koma í veg fyrirpogrom og fyrir að hafa verið tregur til að refsa herforingjum sem ofsóttu Gyðinga af ótta við að glata stuðningi þeirra.[7][8] Meðal annars hefur verið bent á að hann heimsótti borginaZjytomyr í mars 1919 á meðan ofbeldishrina gegn Gyðingum var yfirstandandi en stöðvaði hana ekki.[9]

Morðið á Petljúra og eftirmálar

[breyta |breyta frumkóða]

Þann 25. maí 1926 var Petljúra skotinn til bana á götum Parísar afSholem Schwarzbard, Gyðingi sem hafði misst ættingja sína í fjöldamorðunum í Úkraínu og vildi ná fram hefndum. Réttarhöldin yfir Schwarzbard vöktu mikla athygli á sínum tíma og fjöldi frægra manna á borð viðAlbert Einstein,Henri Bergson,Maksím Gorkíj ogPaul Langevin bar vitni. Þar sem Schwarzbard gekkst frjálslega við því að hafa drepið Petljúra gekk vörn hans út á að sýna fram á voðaverkin sem framin hefðu verið gegn Gyðingum af stjórn úkraínska alþýðulýðveldisins. Eftir átta daga réttarhöld kom kviðdómur saman og sýknaði Schwarzbard eftir 32 mínútna umræður.[10]

Neðanmálsgreinar

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Í útlegð frá 18. mars 1921.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. 1,01,11,21,31,41,5Symon Petlyura. 21. maí 2021. Sótt 9. mars 2022.
  2. Richard Pipes.A Concise History of the Russian Revolution. Vintage Books. 1996. bls. 262.
  3. Famous Assassinations in World History: An Encyclopedia, Michael Newton, two volumes, ABC-CLIO, 2014, bls. 418-420
  4. Hunczak, Taras (Júlí 1969).„A Reappraisal of Symon Petliura and Ukrainian-Jewish Relations, 1917-1921“.Jewish Social Studies.31 (3). Indiana University Press:163–183. Sótt 9. mars 2022.
  5. The Jewish card in Russian operations against Ukraine,Kyiv Post (30. júní 2009)
  6. Сергійчук, Володимир.Симон Петлюра і єврейство. Київ: національний університет імені Тараса Шевченка; Центр українознавства, 2006. 152 стор.: стор.90-97. 2-ге вид.ISBN 966-2911-02-2
  7. Hostages of modernization: studies on modern antisemitism,1870-1933/39 2. bindi, ritstj. Herbert Strauss. (1993). Berlin: Walter de Gruyter and Company pg: 1321
  8. Friedman, Saul S.Pogromchik: The Assassination of Simon Petliura. New York : Hart Pub, 1976.
  9. Christopher Gilley (13. febrúar 2019).„Was Symon Petliura "an antisemite who massacred Jews during a time of war"?“ (enska).Open Democracy. Sótt 14. mars 2022.
  10. Schur, Anna (2007).„Shades of Justice: The Trial of Sholom Schwartzbard and Dovid Bergelson's Among Refugees“.Law and Literature.19 (1). Taylor & Francis, Ltd., Cardozo School of Law:15–43, .doi:10.1525/lal.2007.19.1.15. Sótt 9. mars 2022.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Symon_Petljúra&oldid=1899337
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp