Sviss er landlukt ríki íMið-Evrópu og er í miðjumAlpafjöllum. Sviss er þekkt fyrirhlutleysisstefnu sína og hefur ekki tekið þátt í neinum stríðsátökum á20. eða21. öld. Sviss hefur talsverða sérstöðu á Vesturlöndum sökum mikils beins lýðræðis og þjóðaratkvæðagreiðslna. Sviss er ekki aðili að Evrópusambandinu en þar eru þó skrifstofur ýmissa alþjóðastofnanna, svo semSameinuðu þjóðanna.
Opinbert heiti landsins, Confoederatio Helvetica (Svissneska ríkjasambandið eðaEiðsambandið Sviss), er á latínu til þess að forðast að gera upp á milli hinna fjögurra tungumála landsins. Landið á sér einnig opinber heiti á öllum fjórum tungumálum sínum og eru þau þessi:Schweizerische Eidgenossenschaft (þýska);Confédération Suisse (franska);Confederazione Svizzera (ítalska);Confederaziun Svizra (rómanska). Confoederatio merkirsamband eðabandalag.Helvetica er nefnt eftir gamla keltneska þjóðflokknum Helvetum sem bjó á svæðinu á tímum Rómverja.
Heitið Sviss er dregið af bæjarnafninuSchwyz, sem síðar gaf kantónunni Schwyz nafn, en hún var ein af héruðunum þremur sem mynduðu upprunalega bandalagið. Íbúar Schwyz voru þekktir fyrir að vera dugandi hermenn og gátu sér gott orð sem slíkir, ekki síst eftir orrustuna við Sempach 1386. Það var þó ekki fyrr en meðSigismundi keisara í upphafi15. aldar að hugtakið Sviss náði almennri útbreiðslu.
Nafnið á þorpinu Schwyz er fyrst skrásett árið 972 og þá á forminuSvittes (Suittes). Líklegt má telja að þetta orð merki sveitir, það er að segja hersveitir. Menn frá Schwyz eru nefndir Schwyzer og með tíð og tíma var Schwyzerland notað yfir Sviss allt.
Opinbert innsigli Helvetíska lýðveldisins með myndefni úr Tellsögninni
Svæðið sem nú heitir Sviss tilheyrðiheilaga rómverska ríkinu um aldir.Friðrik II. keisari gerði borgirnar Bern, Zürich, Schaffhausen og Freiburg að fríborgum til að tryggja sér aðgöngu að Alpaskörðunum og þjóðleiðunum til Ítalíu. Að öðru leyti réð Habsborgaraættin yfir svæðinu í kring.Vilhjálmur Tell er þjóðhetja Svisslendinga. Sagan segir að Tell hafi blöskrað yfirráð fógetans Gesslers, sem var á mála hjá Habsborgurum. Gessler setti til dæmis upp hatt sinn á stöng í borginniAltdorf íUri og fyrirskipaði að allir ættu að hneigja sig fyrir honum. Tell hafi þó neitað þessu og gengið framhjá hattinum án þess að virða hann. Þá tók Gessler til bragðs að handtaka Tell og fyrirskipaði honum að skjóta epli af höfði syni sínum. Þegar honum tókst það, fékk Tell að halda frelsi sínu. En skömmu seinna sat Tell fyrir Gessler og skaut hann til bana með lásboga sínum. Þetta varð til þess að íbúar þriggja héraða hittust í fjalllendinu Rütli við Vierwaldstättersee og gerðu með sér bandalag gegn yfirráðum Habsborgara. Í dag er ekki vitað hvort sögnin af Tell er sönn en hún er skráð í ýmsum heimildum, þar á meðal íÞiðreks sögu sem rituð var á norrænu á miðöldum.
Hvað sem Tellsögninni líður, hittust fulltrúar þriggja héraða (Uri, Schwyz og Nidwalden) árið1291 og stofnuðu bandalag til varnar yfirgangi Habsborgara. Stofnskjalið er enn til og er geymt í skjalasafni íSchwyz. Á skjalinu eru fulltrúar Nidwalden mættir en þeir notuðu innsigli Obwalden. Nidwalden og Obwalden eru hálfkantónur og mynda saman kantónuna Unterwalden. Því má segja að fjórar kantónur hafi stofnað Sviss sem eiðssamband. Það var þó ekki fyrr en1315 að Habsborgarar náðu að safna saman liði og gengu til orrustu við uppreisnarmenn í Sviss. Það var Leópold, bróður gagnkonungsins Friðriks frá Austurríki, sem leiddi liðið til orrustu. En Svisslendingar voru reiðubúnir og sátu fyrir herliðinu í þröngum dal við Morgarten á landamærum Uri og Schwyz. Þar beið Habsborgarherinn algjöran ósigur. Á næstu áratugum gengu fleiri héruð til liðs við svissneska sambandið.1332 var þaðLuzern,1351 Zürich,1352Glarus ogZug, og loksBern1353. Um miðja14. öld var svissneska sambandið orðið að nokkuð sterku ríki, þrátt fyrir að Habsborgarar reyndu enn að þvinga héruðin til hlýðni og sameina þau undir yfirráð sín.
1386 réðust Habsborgarar á ný inn í Sviss. Það dró til orrustu sem háð var við Sempach. Orrusta þessi var hápunktur í baráttu Habsborgara við hina eiðsvörnu. Í henni sigruðu Svisslendingar og með þessum sigri var stórt skref stigið í átt að sjálfstæði landsins. Tveimur árum síðar voru Habsborgarar aftur á ferð. Í orrustunni við Näfels sigruðu Svisslendingar enn á ný en þetta var síðasta orrustan milli þessara tveggja aðila. Eftir tap Habsborgara sömdu þeir frið við hina eiðsvörnu, fyrst til sjö ára, en síðan til 20 ára. Þeir hættu öllu tilkalli til landa hinna eiðsvörnu og misstu þar með þjóðleiðirnar yfir Alpaskörðin. Sviss naut því friðar næstu aldir.1474 fór svissneskur her að tilstuðlan keisaransFriedrichs III. til Búrgundar og eyddu því ríki. Svisslendingar þóttu nefnilega afbragðs hermenn og voru eftir þetta vinsælir málaliðar. Til dæmis eru varðmenn páfa eingöngu skipaðir Svisslendingum allt frá1506. Eftir sigurinn á Búrgundum var Sviss orðið sterkt ríki í Mið-Evrópu. Það hélt að sama skapi áfram að vaxa.1481 bættustFribourg (Freiburg) ogSolothurn við sem kantónur. Eftir Sváfastríðið1499, sem Svisslendingar tóku þátt í, viðurkenndiMaximilian I. keisari Sviss sem sjálfstætt ríkjasamband fyrir hönd hins heilaga rómverska ríkis. Lögformlega séð var það þó enn hluti af því ríki allt til1648, er friðarsamningarnir eftir30 ára stríðið voru gerðir.1501 bættust viðSchaffhausen og Basel (sem seinna klofnaði íBasel-Stadt ogBasel-Landschaft). Loks bættist Appenzell við1513. Næstu kantónur bættust ekki við fyrr en tæpum 300 árum síðar.
Ulrich Zwingli hóf fyrstur manna siðbótina í Sviss
1515 töpuðu svissneskir málaliðar orrustunni við Marignano á Norður-Ítalíu gegnFrans I. Frakklandskonung. Þetta varð til þess að Sviss lýsti yfir hlutleysi og hefur það haldist æ síðan. Einn af þeim sem lifði orrustuna við Marignano af var SvisslendingurinnUlrich Zwingli. Hann hóf síðan eigin siðbót á kristinni trú í heimaborg sinni Zürich, sem leiddi til þess að stofnuð var ný kirkja1522 (Reformierte Kirche). Þetta var fimm árum eftir mótmæliLúthers íWittenberg, en þó áður en lútherska kirkjan varð til. Nýja kirkjan breiddist hratt út í Sviss, sérstaklega um norðanvert landið. Í austanverðu landinu varkaþólska kirkjan hins vegar enn alls ráðandi. Þetta leiddi til nokkurra innanríkisátaka (kölluð Kappeler-stríðin). Um miðja16. öldina hóf Jean Cauvin (Jóhann Kalvín) siðbótarstarf sitt í borginniGenf (sem þá var ekki hluti ríkjasambandsins, en þó tengd því). Úr því varð einnig ný kirkja sem breiddist hratt út, ekki bara í Sviss, heldur víða í Evrópu.Kalvínisminn skaut sterkum rótum í Frakklandi,Englandi ogNiðurlöndum en þaðan barst hann tilAmeríku. Gagnsiðbót kaþólsku kirkjunnar seint á 16. öld tókst ekki að hindra útbreiðslu nýju kirknanna, en hún varð til þess að kantónan Appenzell klofnaði í tvennt1597 íAppenzell Innerrhoden ogAppenzell Ausserrhoden, sem tilheyrðu sitthvorri kirkjunni. Svissneskir meðlimir nýju kirknanna studduHúgenotta í trúarstríðinu í Frakklandi af miklum dugnaði.
1798 ruddust Frakkar inn í Sviss og hertóku landið. Að tilstuðlan Napóleons, sem þá var orðinn einvaldur, var Sviss breytt í lýðveldi sem fékk heitið Helvetíska lýðveldið. Frakkar höfðu einnig hertekið nærliggjandi landsvæði og stækkuðu lýðveldið talsvert.1803 voru héruðinSt. Gallen,Graubünden,Aargau,Thurgau,Ticino ogVaud sameinuð lýðveldinu en Genf var innlimað í Frakkland. Sviss var í raun leppríki Frakka á þessum tíma meðan Napóleons naut við. Eftir hrakfarir hans íRússlandsleiðangrinum leystist Helvetíska lýðveldið upp og hið gamla ríkjasamband tók gildi á nýjan leik. Nokkurrar spennu gætti þó milli hinna gömlu og nýju kantóna þannig að lá við borgarastríði. Það var þó ekki fyrr enVínarfundurinn úrskurðaði1815 að nýju kantónurnar skyldu tilheyra ríkjasambandinu að friður komst á. Auk þess var Genf bætt við á ný, og sömuleiðisValais ogNeuchâtel. Hlutleysi landsins var auk þess alþjóðlega viðurkennt.
Með19. öldinni þróaðist Sviss á öllum sviðum þjóðfélagsins. Byltingarkenndir straumar bárust þangað og leiddi þetta til þess að róttækar breytingar voru gerðar á innviðum þjóðfélagsins.1847 var nútíma sambandsríkið stofnað, ári fyrir byltinguna miklu í Evrópu. Ákveðið var að kalla saman þing árlega í borginni Bern en að sama skapi var ákveðið að Bern yrði ekki höfuðborg, heldur sambandsborg (Bundesstadt). Nýstjórnarskrá tók gildi1848. Kantónurnar viðhéldu stórum hluta sjálfstæðis síns og fengu að ráða yfir flestum málefnum sínum. Atkvæðagreiðslur innan hverrar kantónu urðu almennar, en sökum íhaldssemi í mörgum þeirra fóru breytingar fram hægt. Til dæmis var kosningaréttur kvenna ekki lögleiddur fyrr en1971. Íheimsstyrjöldinni fyrri viðhélt Sviss hlutleysi sínu. Landið bauð þó stríðshrjáðum löndum líknaraðstoð, svo sem með því að taka að sér særða hermenn og flóttamenn. Einn þeirra varLenín en hann bjó í Sviss milli1914-17. Í stríðslok sótti vestasta hérað Austurríkis,Vorarlberg, um inngöngu í Sviss en var neitað.1920 gekk Sviss íÞjóðabandalagið, sem hafði höfuðstöðvar sínar í Genf. Íheimsstyrjöldinni síðari viðhélt Sviss einnig hlutleysi sínu. Landið tók á ný við fjölda flóttamanna, sérstaklega Frökkum þegarnasistar réðust inn í Frakkland. Þrátt fyrir hlutleysið kom það mýmörgum sinnum fyrir að þýskar flugvélar eða flugvélar bandamanna rufu svissneska lofthelgi og í nokkur skipti urðu svissneskir bæir fyrir loftárásum af misgáningi. Alvarlegast var er borginSchaffhausen varð fyrir loftárásum bandamanna1. apríl1944. Eftir stríð gekk Sviss hvorki í Sameinuðu þjóðirnar né íNATO. Á hinn bóginn var Sviss einn stofnmeðlimaEFTA árið1960 og landið gekk einnig íEvrópuráðið1963. Enn í dag er Sviss ekki íEvrópusambandinu. Árið1979 var síðast stofnuð kantóna í Svissneska sambandinu,Júra, sem áður var frönskumælandi partur Bernarkantónu. Það var ekki fyrr en árið2002 að Sviss gekk til liðs við Sameinuðu þjóðirnar eftir þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hinir þrír meginhlutar Sviss. Brúnt merkir Alpana, gult merkir dalina og grænt merkir Júrafjöll.
Sviss er landlukt og á landamæri aðÍtalíu fyrir sunnan,Frakklandi fyrir vestan,Þýskalandi fyrir norðan ogAusturríki ogLiechtenstein fyrir austan. Í grófum dráttum má skipta landinu í þrjá meginhluta. Alpana í suðri, dalina í norðri og vestri og svoJúrafjöll í norðvestri. Mikið af vötnum og ám er í landinu, sem langflest eru náttúruleg afurð Alpafjalla. Miklir fjalladalir skera Alpana þvers og kruss, og mynda nokkurs konar samgönguæðar um landið. Aðeins syðsti hluti kantónunnarTicino (Tessin) nær suður fyrir Alpafjöll niður á norðurítalska láglendið. Litla svæðið Büsingen í Schaffhausen (viðRínarfljót), nyrst í Sviss, er eysvæði og tilheyrir Þýskalandi. Sömuleiðis er litla svæðið Campione við Luganovatn í suðri að öllu leyti innan Sviss en tilheyrir þó Ítalíu.
Engar milljónaborgir eru í Sviss. Stærsta borgin er Zürich með tæplega 400 þúsund íbúa. Þó búa rúmlega 1,1 milljón manns á stórborgarsvæðinu. Nær allar stærstu borgir landsins eru í norðri og vestri, það er að segja í þýsku- og frönskumælandi hluta landsins. Stærstu borgir í Sviss:
Tveir aðalfjallgarðar eru í Sviss. Sá stærri þeirra eru Alpafjöll, en þau ná yfir gjörvallt miðbik og suðurhluta landsins. Þau eru svo stór að þeim er skipt niður í margar minni einingar. Minni fjallgarðurinn er Júrafjöll fyrir norðvestan og mynda þau þar náttúruleg landamæri við Frakkland. Svisslendingar telja fjöll sín í tindum. Þannig teljast tveir tindar á sama fjalli til tveggja fjalla. Hæsti fjallgarður Alpanna í Sviss erMonte Rosa-fjöllin en hæsti tindur þeirra er Dufourtindurinn sem nær upp í 4.634 metra hæð.Matterhorn er trúlega þekktasta fjallið í landinu en það nær 4.478 metra hæð.
Vegna Alpafjallanna eru mýmargar ár í Sviss, sem flestar renna til norðurs og vesturs. Helsta áin í Sviss er Rín, en hún á upptök sín suðaustast í landinu. Lengstu ár innanlands í Sviss:
Sviss er mikið vatnaland. Þar eru nokkur af stærstu stöðuvötnum Mið-Evrópu, en þau eru í flestum tilfellum gömul jökulvötn frá ísaldartímanum. Stærstu vötn í Sviss:
Sviss er sambandsríki 26 kantóna sem hver fyrir sig er nokkuð sjálfstæð. Sérhver kantóna er með eigið þing og þar er kosið um allar meiri háttar ákvarðanir í íbúakosningum. Sambandsþingið situr í Bern. Þar er starfandi forseti en hann er frekar valdalítill. Þingið er í tveimur deildum, þjóðráðinu (Nationalrat) og kantónuráðinu (Ständerat). Í þjóðráðinu eru 200 þingmenn, kosnir af þjóðinni. Í kantónuráðinu eru 46 þingmenn, tveir úr hverri kantónu. Í flestum tilvikum er hér um aukastarf þingmanna að ræða. Sviss hefur þá sérstöðu að nota þjóðaratkvæðagreiðslur að miklu leyti til að útkljá mál, en frá1848 hafa verið haldnar þar á sjötta hundrað þjóðaratkvæðagreiðslur. Hver og einn ríkisborgari getur stofnað til þjóðaratkvæðagreiðslu, sem getur fellt sett lög, nái hann að safna 50.000 undirskriftum því til stuðnings. Vegna þessa er sterk hefð fyrir þjóðstjórnum í landinu og allt frá árinu 1959 hafa fjórir helstu stjórnmálaflokkarnir nánast undantekningarlaust myndað ríkisstjórn landsins.[1]
Formlega (de jure) er engin höfuðborg í Sviss. 1848 var borgin Bern þó kosin sem sambandsborg (ekki höfuðborg) þar sem þingið hittist. Þingið sjálft hafði rökrætt málið lengi og komist að þeirri niðurstöðu að engin borg í Sviss ætti að kallast höfuðborg landsins. Því var heitið sambandsborg (Bundesstadt) valið. Tæknilega er Bern þó höfuðborg landsins.
Gjaldmiðill Sviss er svissneskur franki. Fram að1798 var mynt landsins á vegum hverrar kantónu fyrir sig. ÞegarNapóleon stofnaði Helvetíska lýðveldið í landinu, var í fyrsta sinn farið að nota samræmda mynt sem kallaður var franki, enda notuðu Frakkar einnig franka. Eftir fall Napóleons notaði Sviss erlenda mynt, gull- og silfurmynt frá Frakklandi,Belgíu, Ítalíu ogGrikklandi. Einnig voru notuð gyllini, eins og í Austurríki. Árið1852 fór Sviss að gefa út eigin mynt, svissneska frankann, en allar útlendu myntirnar voru þó enn notaðar með um sinn. Smærri mynteiningin heitir Rappen og er einn franki 100 Rappen. Heitið Rappen kom fráFreiburg í Þýskalandi. Þar var slegin mynt með erni á 13. öld. En örninn var óskýr og menn fóru að kalla hann hrafn (Rabe á þýsku). Þaðan kom heitið Rappen.
Þjóðfáni Sviss er hvítur jafnarma kross á rauðum ferningi. Hann er mjög líkur fána kantónunnarSchwyz og mótaður eftir honum. Herir hins unga bandalags byrjuðu mjög snemma að nota krossinn, fyrst í orrustunni við Laupen1339 svo vitað sé. Skjaldarmerkið er nánast eins útlits en þó skjaldarlaga. Merkið var tekið upp1889.
Ríkið Sviss mynda 26 kantónur, misstórar og misfjölmennar. Upphaflegu kantónurnar voru þrjár (Uri,Schwyz og Unterwalden) en þær mynduðu Sviss þegar árið 1291. Unterwalden er sett saman úr tveimur hálfkantónum (Nidwalden ogObwalden). Bern er stærsta kantónan, tæplega 6.000 km², enBaselborg er minnst, aðeins 37 km². Fjölmennust erZürich með 1,2 milljón íbúa en íAppenzell Innerrhoden búa aðeins 17 þúsund manns. Þrátt fyrir þennan mun eru þingmenn kantónanna jafnmargir og jafnréttháir.
Kort af útbreiðslu tungumála í Sviss (2026). Rautt = þýska, fjólublátt = franska, grænt = ítalska og gult = rómanska.
Sviss er ekki land einnar þjóðar, heldur bandalag mismunandi héraða sem ákváðu að tengjast af pólitískum ástæðum. Upphaflegu kantónurnar voruþýskumælandi en eftir því sem fleiri héruð bættust við, bættustfrönsku- ogítölskumælandi íbúar við. Af sömu ástæðu eru einnig fleiri en eitt tungumál talað í landinu. Þjóðtungurnar eru fjórar: þýska (svissnesk þýska) um allt miðbik landsins, franska í vestri, ítalska fyrir sunnan ogrómanska fyrir austan. Síðastnefnda málið er minnst útbreitt af málum þessum og er samblandlatínu og germönsku frá tímum Rómverja. Langflestir tala þó þýsku eða tæp 64%. Um 20% tala frönsku. Að mestu leyti eru málamörkin skýr, sérstaklega í sveitum. En í nokkrum borgum eru tvö mál töluð, til dæmis í Fribourg (Freiburg), Neuchâtel (Neuenburg) og Biel (Bienne), þar sem bæði er töluð þýska og franska.
Menntun í Sviss er afar fjölbreytileg vegna þess aðstjórnarskrá Sviss kveður á um aðskólakerfið sé málefni kantónanna.[2] Bæðiopinberir skólar ogeinkaskólar eru starfræktir í landinu, þar á meðal einkareknir alþjóðlegir skólar. Í nær öllum kantónum hefst skólagangan um sex ára aldur en flestar kantónur starfrækja einnig ókeypis „barnaskóla“ fyrir fjögurra og fimm ára börn.[3] Fyrsta erlenda málið sem börn lærðu var ávallt eitt af hinum tungumálum landsins (eftir því hvert fyrsta mál barnanna var) en undanfarið hefur enskan verið að ryðja sér til rúms í nokkrum kantónum sem fyrsta erlenda mál.
Í Sviss eru tólfháskólar en tíu þeirra eru kantónuskólar. Elsti háskólinn erHáskólinn í Basel en hann var stofnaður árið1460.
Jean-Jacques Rousseau var rithöfundur og áhrifamikill heimspekingurá 18. öld. (Stytta af honum íGenf)
Þegar ríkið var stofnað árið1291 voru langflestir Svisslendingarþýskumælandi og því eru elstu bókmenntir Svisslendinga á þýsku. Á18. öld varfranska móðins íBern og víðar og áhrif frönskumælandi landa urðu meira áberandi.
Meðal merkra frönskumælandi höfunda má nefna heimspekinginnJean-Jacques Rousseau (1712 – 1778) ogGermaine de Staël (1766 – 1817). Meðal yngri höfunda eruCharles Ferdinand Ramuz (1878 – 1947), en bækur hans lýsa lífi bænda og fjallabúa við erfiðar aðstæður, ogBlaise Cendrars (fæddur Frédéric Sauser, 1887 –1961). Ítölskumælandi höfundar hafa verið mun færri.
Ef til vill er frægasta bókmenntapersóna SvisslendingaHeiða, sem er munaðarlaus stúlka sem býr hjá afa sínum í Ölpunum. Bækurnar um Heiðu urðu vinsælarbarnabókmenntir en eru einnig táknmynd Sviss. Höfundur bókanna,Johanna Spyri (1827 – 1901), samdi einnig fjölmargar bækur aðrar um svipuð efni.
Í Sviss eru vinsælustu íþróttirnar vetraríþróttir á borð viðskíðaíþróttir ogfjallgöngur en landafræði Sviss hentar ástundun slíkra íþrótta vel.[4] Einnig tengist ferðamannaiðnaður Sviss iðkun vetraríþrótta en margir ferðamenn koma til Sviss á hverju ári til að iðka skíðaíþróttir. Svissneskir skíðaíþróttamenn á borð viðPirmin Zurbriggen ogDidier Cuche hafa náð miklum árangri í sínum greinum.
Matarmenning Sviss er margbrotin. Sumt, eins ogfondue,raclette ogrösti, er fáanlegt alls staðar í landinu en í sérhverjum landshluta hafa einnig þróast sérstakar venjur.[5] Í hefðbundinni svissneskri matargerð eru notuð áþekk hráefni og í öðrum Evrópulöndum, auk sérstakra svissneskra hráefna, til dæmismjólkurvara ogosta á borð viðGruyère eðaEmmental, sem eru framleiddir íGruyères-dal ogEmmental-dal. Fjöldi veitingahúsa í landingu er mikill, einkum í vesturhluta landsins.[6][7]
Svisslendingar hafa búið tilsúkkulaði frá því á18. öld en það varð ekki frægt fyrr en undir lok19. aldar þegar nútímasúkkulaðigerð, sem gerði mögulegt að framleiða gæðasúkkulaði, varð til. UppfinningDaniels Peter ámjólkursúkkulaði árið1875 var einnig stór og mikilvægur áfangi. Svisslendingar neyta meira súkkulaðis en nokkur önnur þjóð.[8][9]