![]() | Það þarf að skrifa þessa grein út frá alþjóðlegu sjónarmiði. Vinsamlegastbættu greinina eða ræddu málið áspjallsíðunni. |
Svifryk eru agnir í andrúmsloftinu, bæði í vökvaformi og föstu formi, sem eru smærri en 10míkrómetrar í þvermál. Svifryki er oftast skipt eftir kornastærð í PM10 og PM2,5 agnir. PM er stytting á enska heitinu „particulate matter“ en talan táknar mestu mögulegu stærð í míkrómetrum (μm). Undanfarið hefur athyglin beinst í auknum mæli að örfínum ögnum (PM1 og PM0,1) sem smjúga inn umfrumuhimnur og hafa áhrif áæðaveggi ogheilavef.
Á Íslandi er svifryk aðallega afurð bæjarumferðar[heimild vantar]. Litlu agnirnar geta verið ýmisefnasambönd en hinar stærri eru að mestu uppspæntmalbik.Dieselknúnar (5 x PM2,5)bifreiðar ánagladekkjum (100 x PM10) framleiða mest svifryk. Dreifing svifryks fer eftir veðri, vindum, umferðarþunga og umferðarhraða. Að öllu jöfnu setjast stærstu agnirnar eftir um klst. en minni agnir svífa mun lengur og berast þar af leiðandi lengri leið. Þær smæstu geta endað nánast hvar sem er á jörðinni.
Gróft svifryk er að mestutjara,gúmmí og önnur hörð efni, ekki síst fínn grjótmulningur úr malbiki. Fínt svifryk er að mestu efnasambönd sem verða til við brunaeldsneytis. Þau efni sem eru sérstaklega vöktuð á Íslandi eru:
Önnur efni sem fylgst er með eru meðal annars:
Fínt svifryk getur borist í blóðstraum fólks og annarra lífvera gegnumlungun en stærri agnirnar setjast að í lungunum. Talið er að agnirnar geti valdið heilsubresti og vitað er að þær magna þau veikindi sem fyrir eru.[1]
Meðal kvilla sem svifryk hefur áhrif á erastmi,ofnæmi,hjartsláttaróregla oglungnateppa. Börn (sem eru að taka út lungnaþroska) eru sérstaklega næm fyrir svifryksmengun. Lífsgæðaskerðing barna, aldraðra og sjúklinga er veruleg.[2]
Ef hlutfall þeirra sem deyja fyrir aldur fram af völdum svifryks á Norðurlöndunum (sbr. neðangreindar heimildir) er yfirfært á Ísland, þá gætu á annað hundrað Íslendingar dáið fyrir aldur fram árlega af völdum svifryks. Brýnt er að rannsaka hvort að svo geti verið.[3]
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin leggur áherslu á að ekki séu nein sérstök mörk þar sem svifryksmengun er „góð“ en fari hún yfir ákveðin mörk þá sé hún enn verri.
Umhverfisstofnun Íslands annast mælingar svifryks íReykjavík. Fastar mælistöðvar eru viðGrensásveg og íHúsdýragarði. Gert ráð fyrir að magn PM10 agna megi ekki fara yfir hættumörk sín hvern sólarhring og árlega. Dagshámarkið er 50 míkrógrömm (μg) að jafnaði en með árshámark að jafnaði 20 μg. Svigrúm til að fara yfir dagshámark sjö sinnum árlega er þegar fullnýtt fyrir árið 2010, og gott betur. Ársmagn milli maí-mánaða 2009 og 2010 er yfir mörkum.
Aukinn skilningur á skaðsemi svifryks hefur orðið til þess að grasrótarsamtök, bæjarfélög, ríkisstofnanir og alþjóðleg samtök hafa tekið höndum saman gegn þessarri vá. Á Íslandi hafa ákveðnir einstaklingar og íbúasamtök unnið grasrótarstarf, en Reykjavíkurborg,Veðurstofa Íslands og Umhverfisstofnun hafa vakið athygli á þessum mikla vanda sem opinberir aðilar. Fyrir utan mælingar og upplýsingagjöf til almennings hafa kraftarnir beinst að eftirfarandi atriðum:
Reykjavíkurborg hefur lagt áherslu á auglýsingaherferð gegn nagladekkjum, en hefur einnig lagt til að nagladekkjagjald verði tekið upp hér á landi. Það mál er í farvegi, en gæti átt langt í land þó svo að umræðan hafi staðið lengi. Drög að lagabreytingu munu heimilasveitarfélagi að leggja á nagladekkjagjald að höfðu samráði viðVegagerðina. Þá er eftir að fara í viðræður sveitarfélaga um samræmingu gjalda sem gæti orðið tímafrek. Reykjavíkurborg vill einnig þrengja nagladekkjatímabilið. Sekt við að keyra á nagladekkjum eftir 15. apríl er 5.000 kr. á dekk.
Ekkert hefur verið gert til að fækka díselknúnum bifreiðum í bæjarumferð Reykjavíkur. Þeim hefur fjölgað umfram bensínknúnar bifreiðar undanfarin ár, sérstaklega frá 2005 vegna stjórnvaldaðgerða sem miða að fjölgun þeirra. Umhverfisráðuneytið,Orkustofnun Íslands og fleiri aðilar hafa hvatt til notkunar þeirra vegna lægri eyðslu og minna framlags til gróðurhúsaáhrifa. Í samræmi við það gerir fjölskipuð nefnd Vettvangs um vistvænt eldsneyti ráð fyrir því að gjöld á bifreiðar miðist við CO2 framleiðslu þeirra, án tillits til framleiðslu NO2 eða svifryks. Sérfræðinefnd Umhverfisráðuneytisins 2009 gerði tillögu um kerfisbundna útrýmingu bensínknúinna bifreiða.