Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Svifdiskur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Maður grípur svifdisk.

Svifdiskur eðafrisbí (stundum stafaðfrisbee) er disklagaleikfang úrplasti, með rúnnaða brún, og um 20 til 25 cm aðþvermáli. Lögun disksins ervængsnið íþverskurði sem veldur því að hann geturflogið með því að lyfta sér þegar hann snýst áfram íloftinu. Að kasta og grípa frisbeediska er bæði tómstundagaman og hluti margra mismunandi flugdiskaíþróttagreina. Á markaðnum eru margar tegundir flugdiska.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Elsti þekkti disklaga hluturinn sem kastað var erchakram, sem notað var semvopn íIndlandi til forna. Nú á dögum hafa flugdiskar verið notaðir í tómstundum.Leirdúfur sem notaðar eru tilleirdúfuskotfimi, og sem eru nánast eins í lögun og flugdiskar, voru hannaðar á19. öld.

Seinna urðu til flugdiskar sem eru sérstaklega hannaðir og framleiddir til sölu. ÍBridgeport,Connecticut íBandaríkjunum framleiddiThe Frisbie Pie-fyrirtækið bökur og seldu þær til margraháskóla áNýja Englandi. Svangir háskólastúdentar uppgötvuðu fljótt að þeir gátu kastað á milli sín og gripið tóm bökumótin og varð það þeim til skemmtunar um langa hríð.

Árið1946 teiknaðiWalter Frederick Morrison uppdrátt að diski sem hann kallaðiWhirlo-Way, og var það fyrsti svifdiskurinn úr plasti sem framleiddur var sem söluvara. Hann var ekki sérlega vinsæll. Árið1955 framleiddi Morrison nýjan svifdisk úr plasti sem kallaður varPluto Platter. Reyndi hann með því að höfða til aukinna vinsældafljúgandi furðuhluta (UFO) meðal bandarísks almennings. Pluto Platter-hönnunin varð svo grunnurinn að hönnun seinni svifdiska. Árið1957 hófWham-O fyrirtækið framleiðslu á uppgötvun Morrisons og var hún markaðssett með nafninu Frisbee. Árið eftir var Morrison úthlutað bandarísku vörumerki (US Design Patent 183.626) vegna svifdiska sinna.

Svifdiskaíþróttir

[breyta |breyta frumkóða]

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Svifdiskur&oldid=1740265
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp