Svartiskógur eðaMyrkviður (þýska:Schwarzwald) er stærsti fjallgarðurÞýskalands utanAlpanna, bæði hvað varðar umfang og hæð, og tekur alls yfir um 12.000 ferkílómetra svæði. Hæstitindur fjallanna erFeldberg, sem nær í 1.493 m.y.s. Hann er hæsti tindur Þýskalands utan Alpanna.
Svartiskógur er í suðvesturhorni Þýskalands og nær frásvissneskulandamærunum í suðri að heita má alla leið tilKarlsruhe í norðri, eða um 200 km, en breiddin er um 60 km. Fyrir vestan erRínardalurinn en fyrir austan tekur fjallgarðurinnSvafnesku alparnir við. Svartiskógur er alþakinnskógi, sem löngum hefur verið notaður til smíða. Áður voru helstu trjátegundirnarbeyki oggreni og þær eru enn algengastar í dölum og lægðum en uppi í hlíðunum og á fjallstindum errauðgreni algengast. Einnig er mikið umfuru. Vegnaskógarhöggs og breyttrar landnýtingar þekur skógur nú miklu minna landsvæði en áður var.
Helsta borgin í Svartaskógi erFreiburg. Á svæðinu eru upptök margrafljóta, meðal annarsDónár (íDonaueschingen) ogNeckar. Í Svartaskógi eruvatnaskil milli vesturs og austurs og renna því ár þaðan bæði tilAtlantshafs ogSvartahafs. Bergið er auðugt að ýmsum málmum og á miðöldum var Svartiskógur eitt helstanámavinnslusvæði Evrópu. Þar voru meðal annars silfur-, blý-, kopar- og járnnámur. Svartiskógur er nú mikilvægt ferðamannasvæði sem meðal annars er þekkt fyrirtréskurðarlist oggauksklukkur. Svæðið er líka vel þekkt fyrirmatargerð.
Svartiskógur hétMarciana Silva á timumRómverja, en það merkirLandamæraskógur. Vegna þess hve þéttur skógurinn var náði sólin hvergi nærri að skína á skógarbotninn og þar varð því mjög skuggsælt, sem varð til þess aðGermanir nefndu svæðiðSvartaskóg.