Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Sun Microsystems

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Loftmynd af höfuðstöðvum Sun Microsystems

Sun Microsystems var stórt alþjóðlegt fyrirtæki sem framleiddi og selditölvur, tölvuíhluti,hugbúnað og þjónustu á sviðiupplýsingatækni. Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru íSanta Clara íSilicon Valley íKaliforníu. Sun var keypt af Oracle fyrirtækinu og lagt niður 2010. Oracle tók því við Java hugbúnaðinum/forritunarmálinu og t.d. MySQL (sem Sun hafði keypt áður) og viðheldur báðu (MySQL hefur þó breyttar útgáfur, t.d. MariaDB, frá öðrum). Auk annars hugbúnaðar en ýmiss hugbúnaður sem Sun framleiddi hefur Oracle lagt niður ásamt vélbúnaðarframleiðsu (t.d. SPARC örgjörva).

Fyrirtækið var stofnað árið 1982 af nemendum fráStanford-háskóla í kringum framleiðslu og sölu áSun-1-einmenningstölvum sem notuðust viðMotorola 68000-örgjörvann og voru hugsaðar fyrirCAD-vinnslu. Nafnið á fyrirtækinu var upphaflega skammstöfun fyrirStanford University Network sem var þáInternet Stanford-háskóla. Sun-tölvurnar notuðust viðSun OS-stýrikerfið sem varUnix-útgáfa. Árið 1992 setti fyrirtækið svo stýrikerfiðSolaris á markað. Um svipað leyti varJava-forritunarumhverfið þróað af Sun.

Meðal þekktustu vörulína fyrirtækisins eruSPARC-örgjörvinn, stýrikerfiðSolaris, forritunarumhverfiðJava, skrifstofuvöndullinnOpenOffice.org (keyptur 1999) og gagnaþjónninnMySQL (keyptur 2008).

  Þessifyrirtækjagrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Sun_Microsystems&oldid=1726127
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp