Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Sumarólympíuleikarnir 1952

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
15. sumarólympíuleikarnir
Bær:Helsinki,Finnlandi
Þátttökulönd:69
Þátttakendur:4.932
(4.411 karlar, 521 konur)
Keppnir:149 í 17 greinum
Hófust:19. júlí1952
Lauk:3. ágúst1952
Settir af:Juho Kusti Paasikivi forseta
Íslenskur fánaberi:Friðrik Guðmundsson
Paavo Nurmi tendrar Ólympíueldinn í Helsinki.

Sumarólympíuleikarnir 1952 voru haldnir íHelsinki íFinnlandi frá19. júlí til3. ágúst. Áður hafði staðið til að Helsinki hýstileikana árið 1940, en þeir féllu niður vegnasíðari heimsstyrjaldarinnar. Fjöldi landa tók þátt í Ólympíuleikum í fyrsta skipti í Helsinki, þar á meðalSovétríkin ogAlþýðulýðveldið Kína.

Aðdragandi og skipulag

[breyta |breyta frumkóða]
Ólympíuleikvangurinn í Helsinki, myndin er tekin í kringum heimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum 2005.

Ólympíuleikarnir 1940 áttu að fara fram íTókýó íJapan. Vegna stríðs Japana og Kínverja ákvað Alþjóðaólympíunefndin á árinu 1938 að leikarnir skyldu haldnir í Helsinki, sem lent hafði í öðru sæti í staðarvalinu. Finnar voru vel undir verkefnið búnir. Framkvæmdir við Ólympíuleikvanginn höfðu hafist þegar árið 1934 og var hann tekinn í notkun á árinu 1938. Arkitektar hans voru þeir Yrjö Lindegren og Toivo Jäntti, en þeir voru ásamtAlvar Aalto leiðandi í þróun finnskrarbyggingarlistar um miðja tuttugustu öld.

Árið 1947 var ákveðið hvar halda skyldi leikana fimm árum síðar. Helsinki vann þar afgerandi sigur í keppni viðAmsterdam,Minneapolis,Los Angeles,Detroit,Chicago ogFíladelfíu.

Þjóðverjar og Japanir tóku á ný þátt eftir heimsstyrjöldina, auk þess sem Sovétríkin og Kína bættust í hóp þátttökuþjóða. Sú ráðstöfun varð þó til þess aðFormósa sniðgekk leikana af pólitískum ástæðum.

Keppnisgreinar

[breyta |breyta frumkóða]

Keppt var í 149 greinum. Fjöldi keppna í einstökum íþróttaflokkum er gefinn upp í sviga.

Einstakir afreksmenn

[breyta |breyta frumkóða]

Bandaríkin unnu til flestra gullverðlauna. Næstir komu nýliðar Sovétmanna, en í þriðja sæti varðUngverjaland sem telja mátti eitt mesta íþróttaland heims þótt íbúarnir væru einungis rétt um átta milljónir.

Emil Zátopek ásamt silfurverðlaunahafanum í Maraþonhlaupi á leikunum 1952, Reinaldo Gorno frá Argentínu.

Kringlukastarinn Nina Romashkova vann til fyrstu gullverðlauna Sovétmanna í Ólympíusögunni. Sovétríkin hlutu raunar líka silfrið og bronsið í greininni.

Emil Zátopek fráTékkóslóvakíu þótti mestur afreksmaðurfrjálsíþróttakeppninnar. Hann sigraði í 5.000 metrahlaupi, 10.000 metrum og íMaraþonhlaupi, þrátt fyrir að hafa aldrei áður hlaupið þá vegalengd og ákveðið á síðustu stundu að taka þátt. Hann setti Ólympíumet í öllum þremur greinunum.

Eiginkona Emils, Dana Zátopková, fékk gullverðlaunin íspjótkasti. Átta árum síðar, áÓlympíuleikunum í Róm, vann hún til silfurverðlauna í sömu grein, þá 37 ára að aldri.

Ingemar Johansson og Floyd Patterson berjast um heimsmeistaratitilinn í þungavigt árið 1959. Báðir voru þeir meðal verðlaunahafa á leikunum í Helsinki.

Joseph Barthel hlaut gullið í 1.500 metra hlaupi og varð þar með óvæntasti sigurvegari frjálsíþróttakeppninnar. Hann er eini gullverðlaunahafiLúxemborgar í sögu Sumarólympíuleikanna.

Bandaríkjamaðurinn Walter Davis sigraði íhástökki. Á barnsaldri veiktist hann aflömunarveiki og gat ekki gengið í þrjú ár, en náði að yfirvinna fötlun sína. Eftir Ólympíuleikana gerðist hann atvinnumaður íkörfubolta og lék íNBA um nokkurra ára skeið.

Ungverjar urðu Ólympíumeistarar íknattspyrnu. Gullaldarlið þeirra, meðFerenc Puskás fremstan í flokki, vakti í fyrsta sinn verulega athygli á leikunum og var næstu misserin talið það besta í heimi.

Bandaríkjamenn unnu körfuknattleikskeppnina að vanda. Sovétmenn voru andstæðingar þeirra í úrslitaleiknum og gripu til þess ráðs að keyra niður hraðann. Úrslitin urðu því sérkennileg, 36:25.

Meðal þátttakenda íhnefaleikakeppninni voru nöfn sem síðar áttu eftir að lifa í hnefaleikasögunni. Bandaríkjamaðurinn Floyd Patterson hlaut gullið í millivigt og Svíinn Ingemar Johansson fékk silfurverðlaunin í þungavigt. Báðir áttu eftir að verða heimsmeistarar atvinnumanna í þungavigt. Gullverðlaunin í þeim þyngdarflokki á leikunum komu hins vegar í hlut Ed Sanders, sem gerðist atvinnumaður líkt og hinir en lést í hnefaleikahringnum árið 1954.

Íþróttin Pesäpallo varsýningargrein á leikunum. Það er afbrigði afhafnarbolta sem er nær einvörðungu spilað í Finnlandi og af fólki af finnskum uppruna annars staðar í heiminum.

Þátttaka Íslendinga á leikunum

[breyta |breyta frumkóða]

Íslendingar lögðu ríka áherslu á að komaglímunni inn á dagskrá Ólympíuleikanna sem sýningargrein. Ekki var orðið við þeim óskum, en glímuflokkur á vegumÁrmanns hélt þó til Helsinki og sýndi íþróttina þar í borg á sama tíma og leikarnir fóru fram.

Knattspyrnumenn höfðu hug á að taka þátt á leikunum, enda fullir sjálfstrausts eftir óvæntan 4:3 sigur á Svíum áMelavellinum 1951. Kostnaður við slíkt ævintýri reyndist þó að lokum of mikill. Einnig var hætt við að sendasundfólk á leikana af sömu ástæðu.

Níu frjálsíþróttamenn kepptu fyrir Íslands hönd, allt karlar. Það voruhlaupararnir Ásmundur Bjarnason, Pétur Fr. Sigurðsson, Guðmundur Lárusson, Hörður Haraldsson, Ingi Þorsteinsson og Kristján Jóhannsson.StangarstökkvarinnTorfi Bryngeirsson ogkringlukastararnir Friðrik Guðmundsson og Þorsteinn Löve.

Tíundi íþróttamaðurinn vartugþrautarkappinnÖrn Clausen. Miklar vonir voru bundnar við þátttöku hans, en Örn tognaði illa eftir að til Helsinki var komið og gat því ekki tekið þátt. Kristján Jóhannsson setti eina Íslandsmetið á leikunum þegar hann náði 26. sæti í 10.000 metra hlaupi. Aðrir keppendur voru nokkuð frá sínu besta.

Árangurinn olli verulegum vonbrigðum á Íslandi, þar sem væntingarnar höfðu verið mjög miklar.

Verðlaunaskipting eftir löndum

[breyta |breyta frumkóða]
Nr.LandGullSilfurBronsSamtals
1 Bandaríkin40191776
2Sovétríkin22301971
3Fáni UngverjalandsUngverjaland16101642
4 Svíþjóð12131035
5 Ítalía89421
6Tékkóslóvakía73313
7 Frakkland66618
8 Finnland631322
9 Ástralía62311
10 Noregur3205
11 Sviss26614
12Suður-Afríka24410
13Jamæka2305
14 Belgía2204
15 Danmörk2136
16Tyrkland2013
17 Japan1629
18 Bretland12811
19Argentína1225
20Pólland1214
21Kanada1203
Júgóslavía1203
23Rúmenía1124
24 Brasilía1023
Nýja Sjáland1023
26 Indland1012
27Lúxemborg1001
28 Þýskaland071724
29Holland0505
30Íran0347
31Chile0202
32 Austurríki0112
Líbanon0112
34Írland0101
Mexíkó0101
Spánn0101
37Suður-Kórea0022
Trínidad og Tóbagó0022
Úrúgvæ0022
40Búlgaría0011
Egyptaland0011
Portúgal0011
Venesúela0011
Alls149152158459
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistsumarólympíuleikunum 1952.
Sumarleikarnir
Vetrarleikarnir
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Sumarólympíuleikarnir_1952&oldid=1891441
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp