Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Stjórnlagaþing

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Stjórnlagaþing er þing manna, sem stofnað er til í þeim tilgangi að semja nýja eða breyta eldristjórnarskrá ríkis. Á málilögfræðinnar er sagt aðstjórnarskrárgjafinn (þ.e.fólkið) setji stjórnskipunarlög (þ.e. stjórnarskrána) en slíkt er ekki á færilöggjafarvaldsins,framkvæmdavaldsins eðadómsvaldsins.

Dæmi um stjórnlagaþing

[breyta |breyta frumkóða]

Sem dæmi um stjórnlagaþing má nefna að1848 var kosið til stjórnlagaþings íDanmörku og var útkoma þeirrar vinnu stjórnarskrá, sem afnameinræði í Danmörku og kom áþingbundinni konungsstjórn.Stjórnlagaþing Ítalíu var boðað 1946 til að setja landinu nýja stjórnarskrá eftir afnámflokksræðisfasista og þannig mætti áfram telja.

Að öðrum stjórnlagaþingum ólöstuðum var frægasta stjórnlagaþing sögunnar haldið íFíladelfíu íBandaríkjunum á tímabilinu25. maí til17. september1787. Þetta stjórnlagaþing er talið einn merkasti atburður ísögu Bandaríkjanna. Þar hittust 55 fulltrúar fylkja Bandaríkjanna, en meðal þeirra voruJames Madison,George Washington ogBenjamin Franklin. Formlega var tilgangur þingsins að breyta eldri stjórnarskrá. Í raun var þó ásetningur margra að skrifa nýja stjórnarskrá og varð sú raunin. Sústjórnarskrá er í gildi enn í dag.

Stjórnlagaþing Frakklands (Assemblée nationale constituante) var einnig frægt og stóð frá 9. júlí 1789 til 30. september 1791 en það tók við afStéttarþingi Frakklands (Les États-Généraux) sem markaði upphaf Frönsku byltingarinnar. Á tímabilinu 17. júní til 9. júlí 1789 starfaði svokallaðurÞjóðfundur um stjórnarskrá í Frakklandi (Assemblée nationale) áður en stjórnlagaþingið hófst.Stjórnarskrá Frakklands (Constitution de 1791) tók gildi er stjórnlagaþingið leystist upp ogLöggjafarsamkoma Frakklands (L’Assemblée nationale législative) tók til starfa.

Stjórnlagaþing á Íslandi

[breyta |breyta frumkóða]

Frá því fyrir lýðveldisstofnun á Íslandi1944 hafa verið uppi hugmyndir um að efna til stjórnlagaþings, sem setti Íslandi stjórnskipunarlög. Þannig var á Alþingi sumarið1942 rætt af miklum þunga um slíkt þing, en frá þeirri hugmynd var horfið síðar sama sumar.[1]

Árið1949 sleitFramsóknarflokkurinn stjórnarsamstarfi áAlþingi og boðaði til kosninga. Meðal helstu kosningamála flokksins var að boðað skyldi til stjórnlagaþings en þær hugmyndir urðu ekki að veruleika.[2]

Næstu áratugi skaut hugmyndin upp kollinum af og til. Þannig hvattiJóhanna Sigurðardóttir til boðunar stjórnlagaþings í pistli árið1996[3]

Hugmyndir í kjölfar falls bankanna

[breyta |breyta frumkóða]

Í kjölfarbankahrunsins heyrðust raddir í þjóðfélaginu um að boða skyldi til stjórnlagaþings. Þannig var komið á fót vefsíðunni nyttlydveldi.is, auk þess sem ýmsir málsmetandi menn skrifuðu greinar um efnið og komu fram í fjölmiðlum.

Hugmyndir Framsóknarflokksins

[breyta |breyta frumkóða]

Á flokksþingiFramsóknarflokksins19. janúar2009 var samþykkt að efna skyldi til stjórnlagaþings.[4] Í framhaldi af því gaf flokkurinn út yfirlýsingu29. janúar2009 þar sem greint var frá því að skilyrði þess að flokkurinn styddi minnihlutastjórnSamfylkingar ogVinstri grænna væri að flokkarnir tveir féllust á hugmyndir Framsóknarflokksins um að efnt yrði til stjórnlagaþings.[5]

Sama dag kynnti Framsóknarflokkurinn frumvarp til stjórnskipunarlaga en í því var gert ráð fyrir að kosnir yrðu 63 fulltrúar í almennum kosningum samhliðaAlþingiskosningum vorið 2009. Þá gerði frumvarpið meðal annars ráð fyrir:

  • Að um einstaklingskosningu yrði að ræða, þ.e. hver sem er gæti boðið sig fram til setu að því gefnu að hann safnaði 300 meðmælendum. Alþingismenn, ráðherrar og dómarar hefðu ekki framboðsrétt.
  • Stjórnlagaþingið sæti í sex til átta mánuði og fengi þjóðin síðan að kjósa um tillögu þingsins að stjórnarskrá í almennum kosningum.
  • Ef meirihluti kjósenda samþykkti tillögu þingsins yrði tillagan að stjórnskipunarlögum (þ.e. stjórnarskrá Íslands).
Viðbrögð við hugmyndum Framsóknarmanna
[breyta |breyta frumkóða]

Jóhanna Sigurðardóttir ogSteingrímur J. Sigfússon sögðust síðla dags 29. janúar 2009 hafa fallist á tillögur Framsóknarmanna í aðalatriðum. Lét Steingrímur J. Sigfússon þó í ljós efasemdir um fýsileika þess að kjósa til stjórnlagaþingsins þá um vorið, enda taldi hann frestinn of stuttan. Gæti slíkt tímahrak leitt af sér að þeir sem hefðu hug á að bjóða sig fram sæju sér það ekki fært.Sjálfstæðismenn tjáðu sig lítið um tillöguna enBjörn Bjarnason, fráfarandi dómsmálaráðherra, lét þó hafa eftir sér á fundiSjálfstæðismanna á Grand Hótel í Reykjavík30. janúar að hann teldi breytingar á stjórnarskrá ekki brýnt verkefni.

Stjórnlagaþingsferlið á Íslandi 2010 - 2011

[breyta |breyta frumkóða]

Lög voru samþykkt á Alþingi um stjórnlagaþing. Helstu dagsetningar eru sem hér segir

Þjóðfundur um stjórnarskrá 2010

[breyta |breyta frumkóða]

Þjóðfundur með 1000 þátttakendum sem á að endurspegla þjóðina, verður haldinn 6. nóvember 2010, og er nánar nefndur Þjóðfundur til undirbúnings stjórnlagaþingi.

Stjórnlagaþing 2011

[breyta |breyta frumkóða]

Dagsetningar :

  • 18. október 2010 Framboðsfrestur rennur út
  • 3. nóvember 2010 Nöfn frambjóðenda, starfsheiti og sveitarfélag birt.
  • 10. nóvember 2010 Utankjörfundaratkvæðagreiðsla hefst.
  • 27. nóvember 2010 Kjördagur.
  • Seinast í febrúar 2011 skal setja Stjórnlagaþing og mun það standa yfir í 2 mánuði hið minnsta.
Úrslit kosninga til stjórnlagaþingsins 2011
[breyta |breyta frumkóða]

Neðanmálsgreinar

[breyta |breyta frumkóða]

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Stjórnlagaþing&oldid=1928927
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp