Théo Mancheron keppir í stangarstökki á franska meistaramótinu í frjálsum íþróttum árið 2013.
Stangarstökk eríþróttagrein þar sem keppt er í að stökkva sem hæst með aðstoð sveigjanlegrar stangar. Líkt og íhástökki fær keppandinn þrjár tilraunir til að reyna við hverja hæð. Stöngin sem er notuð er misjafnlega löng og stíf og gerð fyrir mis mikinn þunga, en er á milli 3,05 og 5,30 metrar á lengd. Keppandi tekur atrennu að ránni sem stokkið er yfir og setur enda stangarinnar í stálklæddan stokk sem er undir henni og notar svovogarafl ogskriðþunga til að hefja sig upp á stönginni og yfir rána. Ráin er laus og fellur niður ef keppandinn eða stöngin rekst í hana.
Þriðju ólympíuverðlaunin sem íslenskir keppendur hafa unnið voru bronsverðlaun semVala Flosadóttir vann í stangarstökki áólympíuleikunum árið 2000. Hún stökk 4,5 metra.
Heimsmethafi karla er SvíinnArmand Duplantis sem stökk 6,27 metra árið 2025, hefur hann slegið eigin met 11 sinnum.[1]