Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Staðgengilsbrúðkaup

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Staðgengilsbrúðkaup erbrúðkaup þar sem annaðhvort brúður eða brúðgumi, hugsanlega bæði, eru fjarstödd en staðgengill svarar fyrir þann fjarstadda. Slík hjónabönd eru þó ekki lagalega bindandi nú á tímum nema í fáeinum löndum.

Fyrr á öldum voru staðgengilsbrúðkaup algeng hjá konungs- og aðalsættum Evrópu. Þegar konungsdóttir eða hefðarjómfrú giftist til fjarlægs lands eða héraðs sendi brúðguminn oft fulltrúa sinn sem giftist brúðinni sem staðgengill hans og flutti hana svo til nýrra heimkynna, þar sem önnur giftingarathöfn fór yfirleitt fram. Stundum leið þó alllangur tími þar til brúðhjónin hittust. Þannig giftist til dæmisKatrín af AragóníuArthúr prinsi af Wales19. maí1499 en þau sáust fyrst4. nóvember1501 og var giftingarathöfn haldin tíu dögum síðar. Eitt þekktasta dæmið á síðari öldum er brúðkaupNapóleons Bónaparte ogMaríu Lovísu, síðari konu hans, en hún giftist staðgengli keisarans11. mars1810 og síðan honum sjálfum1. apríl sama ár.

Hjónabandið taldist þó ekki fullkomið fyrr en hjónin höfðu haft kynmök og þótt staðgengisbrúðkaup væri lagalega bindandi var yfirleitt auðveldara að ógilda slík hjónabönd en önnur og stundum var ekki einu sinni hirt um það.Anna hertogaynja af Bretagne giftistMaxímilían 1. af Austurríki1490 með staðgengli en þau höfðu enn aldrei hist þegarKarl 8. Frakkakonungur þvingaði hana til að giftast sér ári síðar ogInnósentíus VIII páfi lýsti svo hjónaband þeirra löglegt þar sem hjónaband Önnu og Maxímilíans hefði aldrei verið fullkomnað.

Staðgengilsbrúðkaup tíðkast enn sumstaðar, oftast vegna þess að annað hjónanna getur ekki verið viðstatt vegna herþjónustu, fangelsisvistar, farbanns eða af öðrum gildum ástæðum. Lagalegt gildi þeirra er þó misjafnt. Í nokkrum ríkjum Bandaríkjanna geta hermenn í þjónustu erlendis þó notað staðgengil til að giftast maka sínum löglega. RússneskigeimfarinnJúríj Maletsjenko giftist Jekaterínu Dmítríjevu með staðgengli10. ágúst2003. Hann var þá ígeimstöð á sporbaug um jörðu en hún íTexas.

Heimild

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Staðgengilsbrúðkaup&oldid=1921809
Flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp