St Davids (velska:Tyddewi „hús Davíðs“) er borg og sveitarfélag íWales. Borgin liggur við ánaAlun.Davíð heilagur, verndardýrlingur Wales, er grafinn í borginni og er hún því nefnd eftir honum. St Davids er fámennasta borgBretlands, en íbúar hennar voru 1.841 árið 2011.[1]
Á 6. öld stofnaði Davíð heilagur klaustur við bakka Alun-ár. Á þeim tíma hét svæðiðMynyw á velsku. Byggðin sem óx upp í kringum klaustrið var kölluðTyddewi eða „hús Davíðs“. Dómkirkja var reist þar en var henni oft rænt afVíkingum. Hún brann til kaldra kola árið 1087.Normannar reistu nýja dómkirkju, sem lifir af ennþá daginn í dag, og geymdu marga muni þar (á meðal þeirra voru líkamsleifar Davíðs heilags).
St Davids var fyrst viðurkennd sem borg á 16. öld. Borgin missti viðurkenninguna árið 1886 en endurheimti hana árið 1994.