Grikkir rekja upphaf Spörtu til goðsögulegs tíma. Lakedæmón, sonurSeifs er sagður hafa stofnað borgina. Hann giftist bróðurdóttir sinni Spörtu. Veldið nefndi hann eftir sjálfum sér en nefndi höfuðborgina eftir konunni sinni.
Á tímumTrójustríðsins varMenelás Atrifsson Konungur Spörtu en kona hans varHelena Fagra sem París tók með sér tilTróju og kom Trójustríðinu af stað.
Frá 12. öld f.kr. streymdi inn fólki til Spörtu sem leiddi til þess að Spartverjar þurftu meira af ræktuðu landi til að brauðfæða allt fólkið í borginni. Allir spartverskir karlmenn voru í hernum og stunduðu þeir endalusar heræfingar þegar þeir voru ekki í stríði og þannig gátu þeir haldið yfirráðum sínum. Spartverskar konur stunduðu einnig mikla líkamsrækt því Spartverjar töldu að þannig myndu þær eignast heilbrigð börn. Spartverjar héldu marga þræla, Helóta, sem unnu þá erfiðisvinnu sem þurfti í ríkinu.
Sparta var ásamtAþenu,Þebu ogKórinþu eitt valdamesta borgríki Grikklands á6. öld f.kr. Þessi borgríki voru búin að yfirtaka smærri ríki, borgir og sveitir í nágreninu. Aþena og Kórinþa voru öflug sjóveldi, einnig voru öll þessi ríki búin að koma sér vel fyrir og var því verslunin þeirra góð. Aþena og Sparta voru miklir keppinautar og hafði það mikil áhrif á stjórn Grikklands. Borgríkin stóðu þó saman þegar að þeim stafaði ógn utan frá, eins og þegarXerxes Persakonungur reyndi að gera innrás í Grikkland. Landeigendur héldu sínum völdum í Spörtu og voru völd þeirra treyst í stjórnarskrá Lýkúrgosar. Sparta komst undir varanlega herstjórn með tveimur konungum. Sparta drottnaði yfir öðrum borgríkjum á Pelópsskaga aðArgos ogAkkaju undanskildum.
Deilur í kjölfar styrjaldar við Persa leiddi til Pelópsskagastríðanna árið431 f.kr. til404f.kr. Sparta stóð við fljótiðEvrótas á sunnanverðum Pelópsskaga. Hápunktur Spörtu var frá 6.öld f.kr. fram á4.öld f.kr. Borgin skiptist í tvo hluta sem hétuLakónía eðaLakedæmónía ogMessenía.
Þegar Pelósskagastríðið var búið var Sparta valdamesta borgríki Grikklands, en örfáum arum síðar hafði veldinu hnignað mikið.