Spænska (español eðacastellano) erindóevrópskt tungumál af ættrómanskra tungumála. Málið á uppruna sinn ílatínu. Það telst til undirflokksinsíberórómönsk mál og er annað til fjórða mest talaða tungumál í heimi. Um það bil 480 miljónir tala spænsku semmóðurmál (fyrsta mál), en ef þeir eru taldir með sem hafa spænsku sem annað mál verða talendur 550 miljónir (2018). Flestir spænskumælendur búa íSuður- ogNorður-Ameríku aukSpánar.
Íberórómönsku málin þróuðust út frá nokkrum mállýskumalþýðulatínu sem voru talaðar áÍberíuskaga eftir fallVestrómverska ríkisins á 5. öld. Elstu ummerkin um spænsku í latínutextum eru frá norðurhluta skagans á 9. öld,[1] og fyrsta dæmið um að spænska hafi verið skrifuð með kerfisbundnum hætti er fráTóledó á 13. öld. Spænskan barst til varakonungsdæmaSpænska heimsveldisins frá 1492, sérstaklega tilAmeríku,Afríku ogFilippseyja.[2]
Spánverjar kalla tungumál sittespañol („spænska“) til að aðgreina það frá öðrum þjóðtungum eins ogensku eðafrönsku. En til að aðgreina það frá öðrum tungumálum á Spáni er það kallaðcastellano („kastilíska“), eftir héraðinuKastilíu. Önnur mál töluð á Spáni eru m.a.galisíska,baskneska,katalónska ogleónska. ÍKatalóníu ogBaskalandi er venjulega talað um kastilísku þegar átt er við spænsku. Annars staðar í heiminum er málið ýmist kallað „español“ eða „castellano“, það fyrra mun algengara.
Stjórnarskrá Spánar frá 1978 skilgreinir kastilísku sem ríkismál Spánar, til aðgreiningar frá öðrum spænskum málum, sem eru líka skilgreind sem opinber mál.Konunglega spænska akademían sem skilgreinir opinbera málstaðalinn fyrir spænsku á Spáni, kallar máliðespañol, en kallaði það áðurcastellano frá 1713 til 1923. Í opinberu orðabók akademíunnar,Diccionario panhispánico de dudas, er tekið fram að litið sé á þessi tvö heiti sem samheiti.[9]
Spænska er fyrsta mál í 20 löndum heims. Árið 2020 var áætlað að 463 milljónir manna töluðu spænsku semmóðurmál. Spænska er þannig annað mest talaða móðurmál heims, á eftirmandarín. Að auki tala um 75 milljónir spænsku semannað mál, þannig að spænska er fjórða mest talaða mál heims, á eftirensku, mandarín oghindí, með alls 538 milljón málhafa.[11] Spænska er þriðja mest notaða tungumálið á Internetinu, á eftir ensku og kínversku.[12]
Í Evrópu er spænska töluð áSpáni og auk þess algengt mál áGíbraltar og íAndorra.[13] Spænska er eitt af opinberum málumEvrópusambandsins. Spænska er auk þess töluð af samfélögum spænskumælandi innflytjenda í öðrum Evrópulöndum.[14]
Samkvæmt manntali frá 2006 töldu 44,3 milljónirBandaríkjamanna sig vera af spænskum eða spænsk-amerískum uppruna.[17] 38,3 milljónir, eða 13% íbúa yfir fimm ára aldri, töluðu spænsku heima.[18] Hluti þeirra landsvæða sem í dag eru hluti Bandaríkjanna voru eitt sinn hlutiSpænska heimsveldisins, eins ogSuðvesturríki Bandaríkjanna,Louisiana,Flórída ogPúertó Ríkó. Spænska er langalgengasta annað mál Bandaríkjamanna og 50 milljónir tala hana allt í allt.[19] Spænska er víða notuð í stjórnsýslunni og er opinbert stjórnsýslumál við hlið ensku íNýju-Mexíkó.[20]
Miðbaugs-Gínea er eina Afríkuríkið þar sem spænska er opinbert mál, við hlið frönsku og portúgölsku.[21] Spænska er auk þess langalgengasta málið þar, en samkvæmt Cervantes-stofnuninni tala 87,7% íbúa spænsku.[22] Spænska er eitt af opinberum málumAfríkusambandsins. Spænska er líka töluð á yfirráðasvæðum Spánar í Afríku:Kanaríeyjum,Ceuta ogMelilla. Spænska var áður töluð íVestur-Sahara en ekki er vitað hve margir tala spænsku þar í dag.[23][24]
Þegar Spánverjar lögðuFilippseyjar undir sig árið 1565 varð spænska ríkismál á eyjunum og hélt þeirri stöðu til 1973. Á nýlendutímanum var spænska stjórnsýslumál, viðskiptamál og kennslumál í spænska skólakerfinu sem komið var upp undir lok 19. aldar. Útbreiðsla spænsku meðal almennings var hins vegar takmörkuð og mest bundin við litla hópa menntamanna í borgum sem nefndustIlustrados auk fólks af spænskum uppruna.[25] Eftir ósigur Spánar ístríði Spánar og Bandaríkjanna 1898 tók enska við sem stjórnsýslumál, en spænska var áfram vinsælt bókmenntamál. Þegar Filippseyjar fengu sjálfstæði 1946 varð spænska að opinberu máli, ásamt ensku ogtagalog. Í dag er talið að um 1,8 milljónir Filippseyinga tali spænsku.[26]
Spænska deilir málfræðilegum og formgerðarfræðilegum einkennum með öðrumrómönskum málum. Spænska erbeygingamál.Nafnorð ogsagnorð beygjast eftirkyni ogtölu.Greinir, sumfornöfn ogákvæðisorð eru líka með hvorugkynsmyndir í eintölu.Beygingarmyndir sagna eru um 50 talsins, með þrjártíðir (þátíð, nútíð og framtíð), tvöhorf (lokið og ólokið), fjórahætti (framsöguhátt, viðtengingarhátt, skildagahátt og boðhátt), þrjárpersónur (fyrstu, aðra og þriðju persónu), tvær tölur (eintölu og fleirtölu), þrjárástandsmyndir (nafnhátt, nafnyrðingu lýsingarháttar og lýsingarhátt þátíðar). Framsöguháttur erómarkaður meðan viðtengingarháttur lýsir óvissu og kemur oft fyrir með skildagahætti. Boðháttur lýsir skipun og er oft eitt orð með upphrópunarmerki.
Í spænsku tíðkast að notaþérun til að ávarpa fólk í formlegum aðstæðum.
Hefðbundin orðaröð í spænsku erfrumlag-sögn-andlag, en orðaröðin er annars mjög breytileg og ræðst af áherslum fremur en setningafræði. Spænska erfornafnafellumál þar semnúllfrumlag er algengt í upphafi setningar – það er aðpersónufornafn í frumlagsstöðu er fellt út þar sem það skilst af sagnbeygingunni.
Hefðbundin orðaröð heldur sér í spurnarsetningum og spurningin skilst því oft aðeins af tónfalli í talmáli.
Konunglega spænska akademían (spænska:Real Academia Española) var stofnuð árið 1713 til að staðla spænskt ritmál.[29] Hún hefur áhrif á staðlað spænskt málsnið með útgáfu orðabóka og útbreiddra handbóka um málfræði og stíl.[30]Stöðluð spænska er almennt notuð sem bókmenntamál, fræðimál og fjölmiðlamál.
Cervantes-stofnunin (Instituto Cervantes) er sjálfseignarstofnun sem starfar á heimsvísu, búin til af spænsku ríkisstjórninni árið 1991. Stofnunin er með aðsetur í 20 löndum með 75 miðstöðvar sem eiga að breiða út spænska og spænsk-ameríska menningu, tungumál og bókmenntir. Markmið stofnunarinnar eru að efla menntun, rannsóknir og notkun spænsku sem annars máls, styðja við þróun spænskukennslu og styrkja útbreiðslu spænskrar og spænsk-amerískrar menningar í löndum þar sem spænska er ekki töluð. Samkvæmt skýrslu stofnunarinnar frá 2015 var fjöldi spænskumælandi á heimsvísu áætlaður 559 milljónir. Ársskýrsla stofnunarinnar frá 2018 taldi 577 spænskumælandi um allan heim. Meðal heimilda skýrslunnar erManntalsstofnun Bandaríkjanna sem áætlar að fjöldi spænskumælandi Bandaríkjamanna muni ná 138 milljónum árið 2050 og að í Bandaríkjunum verði mesti fjöldi spænskumælandi fólks af öllum löndum heims, þar sem um þriðjungur íbúa hafi spænsku að móðurmáli.[55]
↑Robles, Heriberto Camacho Becerra, Juan José Comparán Rizo, Felipe Castillo (1998).Manual de etimologías grecolatinas (3.. útgáfa). México: Limusa. bls.19.ISBN968-18-5542-6.
↑„Background Note: Andorra“. U.S. Department of State: Bureau of European and Eurasian Affairs. janúar 2007.Afrit af uppruna á 22 janúar 2017. Sótt 20 ágúst 2007.
↑„Population Census, Major Findings“(PDF). Belize: Central Statistical Office, Ministry of Budget Management. 2000. Afrit afupprunalegu(PDF) geymt þann 21 júní 2007. Sótt 20. desember 2007.
↑Galván, Javier (26 febrúar 2020).„El Boom del Español en Filipinas“[The Boom of Spanish in the Philippines].RedibInforma (spænska). Ibero-American Network for Innovation and Scientific Knowledge. Afrit afupprunalegu geymt þann 29 apríl 2021. Sótt 4 apríl 2021.