Andspyrnu gegn einræðisstjórnnasista í Þýskalandi.
Foreldrar
Robert Scholl og Magdalena Müller
Sophia Magdalena Scholl (9. maí 1921 – 22. febrúar 1943) varþýskur stúdent og pólitískur aðgerðasinni. Hún var virk innanHvítu rósarinnar, friðsamlegrar andspyrnuhreyfingar gegn stjórnnasista íÞýskalandi.
Scholl var dæmd fyrir landráð eftir að hún var gómuð við að útbýta dreifibréfum með áróðri gegn stríði meðal nemenda íLudwig-Maximilian-háskólanum ásamt bróður sínum,Hans. Hún var í kjölfariðhálshöggvin undirfallöxi.
Sophie Scholl fæddist þann 9. maí 1921 í bænumForchtenberg í þýskaWeimar-lýðveldinu. Faðir hennar var þar bæjarstjóri og Sophie ólst upp á trúræknulútersku heimili þar semkristin gildi voru í hávegum höfð. Æskuár hennar voru mikill rósturtími í Þýskalandi ogAdolf Hitler ogNasistaflokkurinn komust til valda í landinu þegar hún var unglingur.[1]
Sophie studdi Hitler í fyrstu og varð meðlimur í æskulýðshreyfingu Nasistaflokksins ásamt eldri bróður sínum,Hans Scholl. Faðir þeirra var ekki hrifinn af Hitler og fordæmdi þátttöku barna sinna í ungliðahreyfingunni. Systkinin urðu bæði afhuga nasismanum eftir að þeim var ljóst hverjar fyrirætlanir Hitlers voru og Hans komst í kynni við andnasíska hugsuði íLudwig-Maximilian-háskólanum íMünchen.[2] Afstaða þeirra gegn Hitler varð enn harðari eftir að nasistar gerðuinnrás í Pólland árið 1939 ogseinni heimsstyrjöldin hófst.[1]
Líkt og bróðir sinn gekk Sophie í Ludwig-Maximilian-háskólann, þar sem hún namheimspeki oglíffræði. Á námsárum sínum stofnaði Hans Scholl andspyrnuhreyfingunaHvítu rósina ásamt félaga sínum,Alexander Schmorell. Sophie gekk von bráðar til liðs við hreyfinguna ásamt nokkrum samnemendum sínum og prófessorum við háskólann.[1]
Eftir að nasistar hófu hópflutninga áGyðingum í fangabúðir sumarið 1942 hófu meðlimir Hvítu rósarinnar að prenta dreifibréf þar sem bent var á glæpi nasistastjórnarinnar og Þjóðverjar voru hvattir til friðsamlegrar andspyrnu gegn henni. Jafnframt var athygli Þjóðverja beint að ofsóknum nasista á Gyðingum á hernámssvæðum sínum í Póllandi.[3] Í fyrstu var bréfunum einungis dreift í München en smám saman fóru umsvif hreyfingarinnar að ná til borga í suðurhluta Þýskalands og norður tilBerlínar. Auk þess stóðu meðlimir Hvítu rósarinnar fyrir veggjakroti með slagorðum á borð við „Frelsi!“ og „Niður með Hitler!“.[2]
Þann 18. september 1942 voru Hans og Sophie að dreifa nýjustu útgáfu af dreifibréfum Hvítu rósarinnar. Þau skildu eftir tösku fulla af bæklingum við innganginn á aðalbyggingu háskólans þar sem þess var krafist í nafni þýsku þjóðarinnar að almenningur hlyti almenn mannréttindi á ný. Sophie gekk upp á efstu hæð skólans og henti eintökum af bæklingunum út af svölum til þess að dreifa þeim yfir skólalóðina.[1] Húsvörður við skólann stóð systkinin að verki og tilkynnti þau tilGestapo. Sophie og Hans voru í kjölfarið handtekin ásamtChristoph Probst, öðrum meðlimi andspyrnuhreyfingarinnar, og dregin fyrir rétt.[2]
Réttarhöldin gegn meðlimum Hvítu rósarinnar vorusýndarréttarhöld þar sem systkinin voru sökuð umlandráð en fengu ekki að svara fyrir sig eða halda uppi málsvörn. Systkinin neituðu að gefa upp nöfn félaga sinna í Hvítu rósinni en engu að síður tókst nasistunum að handsama þá alla. Sophie og Hans voru dæmd sek og tekin af lífi meðfallöxi þann 22. febrúar 1943.[1]
Eftir seinni heimsstyrjöldina og fall nasistastjórnarinnar hefur nafni Sophie og Hvítu rósarinnar mjög verið haldið á lofti sem tákn umfriðsamlega óhlýðni gagnvart harðstjórn. Systir þeirra,Inge Aicher-Scholl, lagði sig mjög fram við að halda minningu þeirra lifandi það sem hún átti eftir ólifað.[4]