Skyrta er oftast fínþráðóttflík sem klæðir efrilíkama, hvort sem er karla eða kvenna, og er oft höfð innan undir jakka eða peysu. Skyrtan skiptist íkraga,ermar ogermalíningar. Þær eru opnar að framan og hnepptar saman meðtölum. Algengt er að menn klæði sig í skyrtu og klæðist þeim viðjakkafötum oghálsbindi.
Skyrtur eru af mismunandi gæðum. Fínustu skyrturnar eru gerðar úr tveimur lögum af egypskribómull, sem gefur skyrtunni glans og þýðir að skyrtan krumpast minna í notkun.Saumagæðin eru einnig mikilvæg eigind skyrta. Þegar saumað er með þéttum saumi í einum þræði endast bæði skyrtan og sniðið lengur. Einnig ef tölurnar eru saumaðar í meðkrosssaumi er ólíklegra að þær detta af.
Skyrtur fást með ýmiss konar flibbum og ermalíningum. Til dæmis eru til venjulegar ermalíningar með tölum og „franskar tvífaldar ermalíningar“ sem festa má meðermahnöppum.