Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Skoðanakönnun

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Skoðanakönnun erkönnun áalmenningsáliti með notkunúrtaks. Skoðanakannanir geta snúist um allt milli himins og jarðar: stuðning viðstjórnmálaflokka, smekk ámatvöru eða afstöðu tilþungunarrofs svo nokkur dæmi séu nefnd. Niðurstöður skoðanakannanna eru birtar með fyrirvara umskekkjumörk, svonefndöryggismörk. Skoðanakannanir eru ekki alltaf áreiðanlegar.

Saga

[breyta |breyta frumkóða]

Fyrsta þekkta dæmi þess að skoðanakönnun hafi verið framkvæmd gerðist árið1824 íBandaríkjunum í dagblaðinuThe Harrisburg Pennsylvanian. Í þeirri könnun var athugað fylgi við forsetaframbjóðendurnaAndrew Jackson ogJohn Quincy Adams, í ljós kom að Jackson hafði stuðning 335 og Adams 169. Slíkar kannanir urðu vinsælar í kjölfarið þótt þær væru óvísindalega unnar og endurspegluði ekki ávalltþýðið. Árið1916 framkvæmdi bandaríska vikublaðiðThe Literary Digest póstskoðanakönnun fyrir allt landið og gat spáð fyrir um sigurWoodrow Wilsons í bandarísku forsetakosningunum það ár. Næstu fjórar forsetakosningar beiti blaðið þeirri aðferð að senda út könnunina meðpósti og töldu svörin sem þeim bárust aftur.

Árið 1936 brást The Literary Digest bogalistin en þá buðuAlf Landon ogFranklin D. Roosevelt sig fram tilforseta Bandaríkjanna. Úrtak vikublaðsins var með meira en tvær milljónir lesendur en ritstjórar þess gerðu sér ekki grein fyrir því að þeir endurspegluðu ekki kjósendur í heild sinni þar sem þeir voru mikið til vel stæðir Bandaríkjamenn sem studduRepúblikanaflokkinn. The Literary Digest gaf því út að forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins myndi fara með sigur af hólmi. Um sömu mundir vannGeorge Gallup könnun með minna þýði sem hafði verið valið með vísindalegri aðferð. Honum tókst að spá fyrir um stórsigur Roosevelts í kosningunum. The Literary Digest var lagt niður skömmu seinna en meiri eftirspurn varð eftir skoðanakönnunum.

Tilvísanir

[breyta |breyta frumkóða]
      Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
    Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Skoðanakönnun&oldid=1917388
    Flokkar:
    Falinn flokkur:

    [8]ページ先頭

    ©2009-2025 Movatter.jp