Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Skip

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
ÍtalskafullreiðaskipiðAmerigo Vespucci íNew York-höfn.

Skip er samgöngutæki til notkunar á sjó eða vatni.

Skip eru knúin áfram með mismunandi hætti. Þó má segja að þrjár meginflokka sé að ræða, Skip knúin áfram með handafli (árar), vindafli (segl) eðavélarafli. Einnig eru dæmi um að skip falli ekki undir þessa flokka, heldur fylgi þau sjávarstraumi eða vatnsrennsli í ám og fljótum. Það má deila um hvort slík samgöngutæki falli undir skilgreiningu orðsinsskip.

Handafl eðaáraskip eru til enn þann dag í dag. Þó má segja að í nútíðinni eigi þetta fyrst og fremst umárabáta. En fyrr á öldum og reyndar allt til tíma vélvæðingarinnar þá voru dæmi um skip sem voru knúin ýmist með bæði árum og vindi. Gott dæmi um það eruvíkingaskip og fyrir þann tímaGaleiðurRómverja.

Vindafl eðaseglskip voru vinsæl í gegnum aldirnar, þó má segja að með vélvæðingunni hafi þau orðið undir í samkeppninni. Þó eru þau mikið notuð enn þann dag í dag og þá sérstaklega smærri skip og bátar. Einkum er þó um að ræðaskemmtibáta og siglingakeppnir á seglbátum eru vinsæl iðja um heim allan. Hvað varðar stærriseglskip þá eru þau ekki mikið notuð í dag, helst er um að ræða að þau séu notuð til þjálfunar eða hafa verið varðveitt til minningar um sögu þeirra.

Vélarafl er sú aðferð sem er leiðandi til að knýja skip áfram í dag.Vélar eru mismunandi og hafa þróast í gegnum tíðina. Þær má flokka eftirfarandi:díselvélar,bensínvélar,gufuvélar (knúnar meðkolaorku) ogkjarnorkuknúnarvélar.

Flokkun skipa

[breyta |breyta frumkóða]

Skip eru flokkuð eftir notkun og stærð. Gildir sú almenna regla að nafn flokksins ræðst af notkunarheitinu sem síðað er skeytt fyrir framan orðið skip. Stærðin er síðan oftast notuð til að skilgreina á milli skips og báts. Þó ber að nefna að til eru undantekningar frá þessari reglu þar semkafbátur getur verið mun stærri heldur en hefðbundiðfiskiskip.

Helstu flokkar skipa eru:

Farþegaskip

[breyta |breyta frumkóða]

Farþegaskip kallast þau skip sem notuð eru til farþegaflutninga. Helstu undirflokkar eruferjur sem venjulega eru notaðar til styttri vegalengda, og almenn farþegaskip sem notuð eru til lengri ferða, helsti munurinn er gistiaðstaða um borð í skipinu.Skemmtiferðaskip ferðast um heimsins höf og bjóða farþegum upp á úrvals gistingu og afþreyingu um borð, auk þess að leggjast í höfn á ferðamannastöðum.

Flutningaskip

[breyta |breyta frumkóða]

Flutningaskip kallast þau skip sem notuð eru til flutninga á vörum. Þessum flokki má síðan skipta upp í undirflokka, sbr.olíuskip,gámaskip,hrávöruskip,lausavöruskip ogfrystivöruskip.

Herskip

[breyta |breyta frumkóða]

Síðan er þau skip sem notuð eru í hernaði, en þau kallast einu nafniherskip. Helstu undirflokkar eruflugmóðurskip,orrustuskip,orrustubeitiskip,þungt beitiskip,beitiskip,tundurspillir,freygátur af ýmsum gerðum,kafbátar ogstrandvarnarskip. Einnig eru til aðrir flokkar sem eiga fyrst og fremst við um smærri skip,tundurskeytabátar, fylgdarskip, (stundum kallað korvetta). Þess ber að geta að bæði freygátur og tundurspillar eru stundum sett undir þennan flokk en hefðin er sú að þá er orðinu „escort“ venjulega skeytt ýmist fyrir framan eða aftan flokksheiti viðkomandi skips, „Destroyer Escort“ eða „Escort Destroyer“,landgönguprammar, bæði hefðbundnir og einnigloftpúðaskip. Einnig eru til frekari skilgreiningar á undirflokkunum eftir því hver megin tilgangur viðkomandi skips er, hraði skipsins osf. Hafa ber í huga að skilgreiningar á flokkum hafa breyst í gegnum tíðina, hefðin er þó sú að flokka herskip eftir stærð skipsins og hversu öflug og mörg vopn það ber.

Fiskiskip

[breyta |breyta frumkóða]

Fiskiskip eða fiskveiðiskip nefnast þau skip sem sérhæfð eru til fiskveiða. Helstu undirflokkar erufrystitogarar,skuttogarar,togarar,nótaveiðiskip,fjölveiðiskip oglínuveiðaskip. Hingað flokkast líkatryllur.

Aðrir skipaflokkar

[breyta |breyta frumkóða]

Prammar (skip sem sjaldnast ganga fyrir eigin vélarafli),dráttarskip,ísbrjótar,dýpkunarskip,björgunarskip,loftpúðaskip,rannsóknarskip ogkapallagnaskip (skip sérhæfð til að leggja fjarskiptakapal á hafsbotn) hafa engan sérflokk. Önnur skip sem almennt eru ekki lengur í notkun eru t.d.víkingaskip,kútterar ogseglskip.


Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Skip&oldid=1607938
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp