| Skam | |
|---|---|
| Tegund | Unglingaþættir |
| Handrit | Julie Andem |
| Leikstjóri | Julie Andem |
| Leikarar | Lisa Teige Josefine Frida Pettersen Tarjei Sandvik Moe Iman Meskini |
| Tónskáld | Christian Wibe |
| Upprunaland | Noregur |
| Frummál | Norska |
| Fjöldi þáttaraða | 43 |
| Fjöldi þátta | 4 |
| Framleiðsla | |
| Framleiðandi | Marianne Furevold |
| Staðsetning | Osló |
| Lengd þáttar | 15-59 mín |
| Útsending | |
| Upprunaleg sjónvarpsstöð | NRK |
| Sýnt | 25. september2015 –24. júní2017 |
| Tenglar | |
| Vefsíða | |
| IMDb tengill | |
Skam (íslenskt heiti:Skömm) erunorskir sjónvarpsþættir sem fjalla um líf nemendaHartvig Nissen menntaskólans íOsló. Þættirnir voru framleiddir af norska ríkissjónvarpinu,NRK, en voru óhefðbundnir að því leyti að í stað þess að sýna nýjan þátt einu sinni í viku var þáttunum skipt upp í stutt brot sem varpað var yfirleitt daglega inn á heimasíðu þáttanna í vikunni fyrir sýningardag þar til loks öllum þættinum var varpað inn á heimasíðuna. Auk þess voru skapaðir aðgangar fyrir hverja pesónu á hinum ýmsumsamfélagsmiðlum og samtölum þeirra á þeim miðlum varpað daglega á heimasíðuna.
Hver sería einblínir á eina ákveðna persónu og er þá sagan sögð út frá sjónarhorni hennar en þættirnir taka gjarnan á flóknum málefnum s.s. átröskun, samkynhneigð, kynferðisofbeldi, kynþáttafordómum, geðvandamálum og fleira.
Þrátt fyrir litla sem enga kynningu slógu þættirnir strax frá fyrstu sýningu rækilega í gegn og slógu gjörsamlega öll áhorfsmet í Noregi sem og í nágranna löndunumSvíþjóð ogDanmörku. Þeir hafa einnig notið gríðarlega vinsælda meðal íslenskra unglinga en þeir voru til sýninga áRÚV. Þættirnir hafa síðan notið mikilla vinsælda um nær allan heim en tilkynnt hefur verið aðbandarísk útgáfa þáttana sé í vinnslu.
| Leikari | Persóna |
|---|---|
| Marlon Valdés Langeland | Jonas Noah Vasquez |
| Ulrikke Falch | Vilde Hellerud Lien |
| Ina Svenningdal | Christina "Chris" Berg |
| Herman Tømmeraas | Christoffer "Penetrator-Chris" Schistad |
| Cecilie Martinsen | Ingrid Theis Gaupseth |
| Kristina Ødegaard | Sara Nørstelien |
| David Alexander Sjøholt | Magnus Fossbakken |
| Thomas Hayes | William Magnusson |
| Carl Martin Eggesbø | Eskild Tryggvasson |
| Rakel Øfsti Nesje | Linn Larsen Hansen |
| Henrik Holm | Even Bech Næsheim |
| Sacha Kleber Nyiligira | Mahdi Disi |
| Ruby Dagnall | Emma W. Larzen |
| Yousef Hjelde Elmofty | Mikael Øverlie Boukhal |
| Cengiz Al | Yousef Acar |
| Simo Mohamed Elhbabi | Elias Bakkoush |
| Adam Ezzari | Adam Malik |
| Mutasim Billah | Mutasim Tatouti |