Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Sitjandi Tarfur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tȟatȟáŋka Íyotake.

Sitjandi Tarfur (lakóta:Tȟatȟáŋka Íyotake;enska:Sitting Bull; einnig þýtt á íslensku semSitjandi Naut eðaSitjandi Boli) (um183115. desember1890) var æðsti höfðingiHunkpapa-ættbálksins af þjóðSúindíána. Hann leiddi 1200Sjeyenne- og Súindíána gegn7. riddaraliðssveitinni undir stjórnGeorge Armstrong Custer íorrustunni við Little Bighorn25. júní1876. Eftir orrustuna flýði hann ásamt liði sínu tilKanada þar sem hann bjó til1881 þegar þau sneru aftur meðfriðhelgi.

Síðar ferðaðist hann meðBuffalo Bill Cody og tók þátt íVillta vesturssýningu hans þar sem hann kom gjarnan fram og bölvaði áhorfendum á tungumáliLakótaindíána.

Þegarandadansinn breiddist út meðal indíána sem tilraun til að reka hvíta manninn burt frá löndum þeirra tóku bandarísk stjórnvöld að líta á Sitjandi Naut sem ógnun og reyndu að handtaka hann á heimili hans. Til átaka kom með þeim afleiðingum að Sitjandi Naut og sonur hansKrákufótur voru drepnir.

  Þettaæviágrip erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Sitjandi_Tarfur&oldid=1862968
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp