Frá 11. öld hefur þetta landsvæði verið hluti af ýmsum ríkjum, þar á meðalRozvi ogMthwakazi, auk þess að vera þjóðleið fyrir verslun og fólksflutninga. Núverandi land Simbabve var fyrst afmarkað 1890 afBreska Suður-Afríkufélaginu undir stjórnCecil Rhodes þegar félagið lagði undir sigMashonaland og síðanMatabeleland 1893 eftir stríðsátök sem nefndustFyrsta Matabelestríðið.Félagsræði í Ródesíu lauk 1923 þegarSuður-Ródesía var stofnuð sem bresk nýlenda með heimastjórn. Árið 1965 lýsti hvít minnihlutastjórn nýlendunnar einhliða yfir sjálfstæði semRódesía. Landið var einangrað á alþjóðavettvangi auk þess sem þar stóð yfirborgarastyrjöld milli stjórnarhersins og skæruliðahreyfinga þeldökkra þjóðernissinna. Átökunum lauk eftir 15 ár meðfriðarsamkomulagi sem kom á almennum kosningarétti og viðurkenningu á sjálfstæði landsins 1980. Simbabve gerðist aðili aðBreska samveldinu en var rekið þaðan 2002 fyrir brot stjórnarRobert Mugabe á alþjóðalögum.
Í dag telst Simbabve lýðveldi meðforsetaræði. Fyrsti forsætisráðherra og síðar annar forseti landsins varRobert Mugabe sem var við völd allt frá því borgarastyrjöldinni lauk til ársins2017. Stjórn Mugabes einkenndist hin síðari ár af bágum efnahag ogóðaverðbólgu. Hún lá einnig undir ámæli fyrirmannréttindabrot. Óánægja vegna hruns hagkerfis þjóðarinnar, útbreiddrar fátæktar og atvinnuleysi leiddi til aukins stuðnings við LýðræðishreyfinguMorgan Tsvangirai og samþykkt var í kjölfar kosninga árið 2008 að hann myndi deila völdum með Mugabe sem forsætisráðherra, sem hann gerði á árunum 2009 til 2013. Mugabe var að endingu steypt af stóli árið 2017 ogEmmerson Mnangagwa gerður að forseta í hans stað.[1]
Heitið „Simbabve“ er dregið afsjónaheitiSimbabve miklu, fornrar borgar í suðausturhluta landsins. Leifar hennar eru nú varðveittar sem menningarminjar. Til eru tvær kenningar um merkingu nafnsins. Ýmsir telja að „Zimbabwe“ sé dregið afdzimba-dza-mabwe, sem í karanga-mállýsku sjónamáls merkir „steinhús“ (dzimba = „hús“ (ft.) ogmabwe = „steinar“).[2][3][4] Sjónar sem tala karanga búa í nágrenni við Simbabve miklu íMasvingo-héraði. FornleifafræðingurinnPeter Garlake setti fram þá tilgátu að „Zimbabwe“ sé stytting ádzimba-hwe, sem merkir „virðuleg hús“ á zezuru-mállýskunni og vísar oftast til heimila eða grafa höfðingja.[5]
Simbabve var áður þekkt semSuður-Ródesía (1898),Ródesía (1965) ogSimbabve Ródesía (1979). Simbabve var fyrst notað sem tilvísun í landið af þjóðernissinnanumMichael Mawema árið 1960,[6] en flokkur hans,Þjóðarflokkur Simbabve, tók fyrstur að nota nafnið opinberlega árið 1961.[7] „Ródesía“ var aftur dregið af ættarnafniCecil Rhodes sem átti upptökin að nýlendustofnun Breta á svæðinu seint á 19. öld, og þjóðernissinnum þótti þannig óviðeigandi.[6]
Samkvæmt Mawema héldu þjóðernissinnar fund árið 1960 til að velja landinu nýtt nafn. Þar komu fram uppástungur eins og „Matshobana“ og „Monomotapa“ áður en „Zimbabwe“ varð ofan á.[8] Þjóðernissinnar íMatabelelandi höfðu líka sett fram tillöguna „Matopos“ eftirMatopos-hæðum sunnan viðBulawayo.[7]
Í byrjun var óljóst hvernig ætti að nota nýja heitið. Í bréfi frá Mawema frá 1961 er talað um „Zimbabweland“[7]. Árið 1962 var „Zimbabwe“ orðið það viðurkennt að það var almennt notað af þjóðernishreyfingu þeldökkra íbúa landsins.[6] Í viðtalið árið 2001 minntistEdson Zvobgo þess að Mawema hafi nefnt þetta heiti á baráttufundi „og það hélst, og þannig var það“.[6] Hinar ýmsu þjóðernishreyfingar notuðu nafnið í framhaldinu í seinni herförum gegn stjórn Ródesíu íKjarrstríðinu 1964 til 1979. Helstu flokkarnir á því stigi voruZimbabwe African National Union (ZANU), semRobert Mugabe leiddi, ogZimbabwe African People's Union (ZAPU), semJoshua Nkomo leiddi.
Simbabve ermiðstýrt ríki sem skiptist í átta héruð og tvær borgir með stjórnsýslulega stöðu héraðs. Hvert hérað er með héraðshöfuðborg þar sem stjórnsýsla héraðsins er venjulega staðsett.[9]
Nöfnin á flestum héruðunum miðast við skiptinguna milliMashonalands ogMatabelelands á nýlendutímanum: Mashonaland var fyrsta landsvæðið sem Breska Suður-Afríkufélagið lagði undir sig, og Matabeleland er svæðið sem það náði eftirFyrsta Matabelestríðið. Þessi landsvæði svara nokkurn veginn til landaSjóna ogMatabelea, þótt aðrar þjóðir búi líka í þessum héruðum. Yfir hverju héraði er héraðslandstjóri sem er skipaður afforseta landsins.[10]
Héraðsstjóri leiðir héraðsstjórnina. Hann er skipaður af nefnd um almannaþjónustu. Önnur stjórnsýsla á héraðsstigi fer fram gegnum héraðsskrifstofur ríkisstofnana.[11]
Héruðin skiptast í 59umdæmi og 1.200sveitarfélög. Héraðsstjóri er skipaður af nefnd um almannaþjónustu. Auk þess er dreifbýlisráð sem skipar framkvæmdastjóra. Dreifbýlisráðið er skipað kjörnum sveitarstjórnarmönnum, héraðsstjóra og einum fulltrúa hefðbundinna ættbálkahöfðingja samkvæmt hefðarrétti.[12]
Á sveitarstjórnarstigi er þróunarnefnd sveitarfélagsins, sem skipuð er kjörnum sveitarstjóra, höfðingjum (hefðbundum leiðtogum) og fulltrúum þróunarnefnda þorpanna. Sveitarfélögin skiptast í þorp, og í hverju þorpi er þróunarnefnd og höfuðsmaður (hefðbundinn leiðtogi sem heyrir undir höfðingja).[13]
123Ndlovu-Gatsheni, Sabelo J. (2009).Do "Zimbabweans" Exist? Trajectories of Nationalism, National Identity Formation and Crisis in a Postcolonial State (First. útgáfa). Bern:Peter Lang AG. bls.113–14.ISBN978-3-03911-941-7.
↑„What's in a Name? Welcome to the 'Republic of Machobana'“.Read on. Harare: Training Aids Development Group: 40. 1991.