Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Silfur

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
 Kopar 
PalladínSilfurKadmín
 Gull 
EfnatáknAg
Sætistala47
EfnaflokkurHliðarmálmur
Eðlismassi10490,0kg/
Harka2,5
Atómmassi107,8682(2)g/mól
Bræðslumark1234,93K
Suðumark2435,0K
Efnisástand
(við staðalaðstæður)
Fast form
Lotukerfið

Silfur erfrumefni meðefnatákniðAg (skammstöfun álatneska orðinu yfir silfur,argentum) og sætistöluna 47 ílotukerfinu. Silfur er mjúkur, hvítgljáandihliðarmálmur sem hefur mestu raf- og hitaleiðni allra málma og finnst ísteindum og einnig í hreinu formi. Það er notað ímynt,skartgripi,borðbúnað ogljósmyndun.

Almenn einkenni

[breyta |breyta frumkóða]

Silfur er mjög sveigjanlegur og þjáll (aðeins harðara engull), eingildurmyntmálmur með skínandi hvítan málmgljáa. Það hefur mesturafleiðni allra málma, jafnvel meiri enkopar, en sökum verðs hefur það ekki náð sömu vinsældum og kopar í rafmagnsverki.

Hreint silfur hefur einnig mestuhitaleiðni, hvítasta litinn, mestuendurkasthæfni ljóss (það er samt slæmur endurkastariútfjólublás ljóss) og minnsta snertiviðnám allra málma. Silfurhalíð eru ljósnæm og eru markverð vegna áhrifa ljóss á þau. Silfur er stöðugt í lofti og vatni, en tærist í snertingu viðóson,vetnissúlfíð eða loft sem inniheldurbrennistein. Algengustuoxunarstig silfurs er +1, en nokkur +2 efnasambönd eru þekkt.

Notkun

[breyta |breyta frumkóða]

Aðalnot silfurs eru semeðalmálmur oghalíðsölt þess, þá sérstaklegasilfurnítrat, eru mikið notuð í ljósmyndun (sem er sú iðngreins mest notar af silfri).Sem dæmi um önnur not silfurs má nefna:

  • Rafmagns- og rafeindavörur, þar sem framúrskarandi rafleiðni silfurs, jafnvel þegar það hefur tærst, kemur að notum. Til dæmis eru prentaðar rafrásir gerðar með silfurmálningu og lyklaborð fyrir tölvur nota snertur úr silfri. Silfur er einnig notað í háspennusnertur, því það er eini málmurinn sem neistar ekki af á milli snerta, og er það þar af leiðandi mjög hættulaust í notkun.
  • Speglar sem nýta endurkastshæfni silfurs eru búnir til í ferli sem kallað ersilfrun. Nú á dögum eru speglar þó almennt búnir til úráli.
  • Silfur hefur verið notað í mynt síðan700 f. Kr., en þá hófuLydíubúar að nota það í formielectrum. Seinna var silfrið hreinsað og slegið í mynt í hreinu formi. Orðiðsilfur er stundum notað yfirpeninga.
  • Vegna fegurðar sinnar er silfur notað til framleiðslu á skartgripum og borðbúnaði. Oftast er þá notuð silfurmálmblanda sem kölluð erSterling silfur, en hún er um 92,5% silfur.
  • Sökum þess að það er þjált, óeitrað og fagurt er það nytsamlegt í tannsmíðamálmblöndur fyrir fyllingar og brýr.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Silfur&oldid=1903671
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp