Sigurboginn (franska:Arc de Triomphe) er minnisvarði íParís,Frakklandi og stendur hann í miðjuCharles de Gaulle-torgs sem er einnig þekkt undir nafninuPlace de l'Étoile eðaStjörnutorg. Torgið er við vestari endaChamps-Élysées. Sigurboginn var reistur til að heiðra þá sem börðust fyrirFrakkland sérstaklega ístríðum Napóleons. Á innanverðum boganum og efst á honum eru nöfn allra herforingjanna sem börðust svo og nöfn á öllum stríðunum. Undir boganum er gröf hins óþekkta hermanns.
Sigurboginn
Sigurboginn er miðja hins Sögulega áss (L'Axe historique) en það er röð minnisvarða og breiðgatna á leið sem teygir sig frá hallargörðumLouvre að útjaðriParísar. Minnisvarðinn var hannaður afJean Chalgrin árið 1806 og á honum eru myndir sem sýna á víxl hetjuleg, nakin, frönsk ungmenni og skeggjaða þýska hermenn í herklæðum. Hönnunin lagði grunninn fyrir almenna minnisvarða með sigursælum, þjóðernissinnuðum skilaboðum, fram aðfyrri heimsstyrjöld.
Minnismerkið er 49,5 metra hátt, 45 metra breitt og 22 metrar á þykkt. Það er næst stærsti sigurbogi í heimi. Hönnun þess tók mið af hinum rómverskaTítusarboga. Sem dæmi um stærð Sigurbogans má nefna að þremur vikum eftir sigurgönguna íParís 1919 sem markaði endalok fyrri heimstyrjaldarinnar, flaugCharles Godefroy áNieuport flugvél sinni gegnum bogann og var atburðurinn festur á filmu í fréttaskoti.
Í byrjun sjöunda áratungsins hafði kolasót svert minnisvarðinn mikið og á árunum 1965-1966 var Sigurboginn sandblásinn og hreinsaður vel. Árið 2007 mátti sjá að hann var farinn að dökkna á nýjan leik.
Aðgengi fyrir fótgangandi er um undirgöng. Mjög mikil og hættuleg umferð er á hringtorginu sem tengir breiðgöturnar umhverfis bogann og ekki er mælt með því að hætta sér út í hana. Ein lyfta er í Sigurboganum og með henni er hægt að komast á næstu hæð undir útsýnishæðinni sem er að utanverðu efst á minnisvarðanum. Þeim sem heimsækja bogann gefst kostur á að klifra upp 284 þrep til að komast efst upp á Sigurbogann eða að taka lyftuna og ganga því næst upp 46 þrep. Að ofan um dásamlegt útsýni yfirParís, yfir tólf aðal breiðgöturnar sem liggja aðPlace de l´Étoile eða Stjörnutorginu og hringiðunni á hringtorginu umhverfis Sigurbogann. Til að komast að Sigurboganum er hægt er að nota neðanjarðarlestarkerfið (RER eða Métro) að viðkomustaðnum Charles de Gaulle – Etoile.