Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Salman Rushdie

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Salman Rushdie
Rushdie árið 2024.
Fæddur19. júní1947 (1947-06-19) (78 ára)
RíkisfangIndland (til 1964)
Bretland (frá 1964)
Bandaríkin (frá 2016)
MenntunCambridge-háskóli (BA)
StörfRithöfundur, prófessor
StefnaTöfraraunsæi,ádeila,eftirlendustefna
Maki
Börn2
Vefsíðasalmanrushdie.com

Salman Rushdie (fæddur:Ahmed Salman Rushdie, أحمد سلمان رشدی á arabísku (þann19. júní1947 íBombay) er bresk-bandarískurrithöfundur af indverskum uppruna. Rushdie blandar gjarnantöfraraunsæi við sagnfræðilegar staðreyndir og gerast flestar skáldsögur hans á Indlandi og íPakistan.

Salman ólst upp í miðstéttarfjölskyldu í Bombay á Indlandi. Á unglingsaldri fluttist hann ásamt fjölskyldu sinni til Pakistan og seinna tilBretlands. Margar af bókum hans hafa verið þýddar og gefnar út á íslensku.

Vegna meintsguðlasts í bókinniSöngvum Satans eftir Salman hefurklerkastjórnÍrans lýst Salman réttdræpan meðalmúslima.[1][2]

Árið 2022 var ráðist á Rushdie og hann stunginn í hálsinn og á fleiri staði þegar hann var að flytja fyrirlestur íNew York.[3] Rushdie lifði árásina af en missti sjón á öðru auga og allan mátt í annarri hendi vegna áverka eftir hnífsstungurnar.[4]

Rushdie hlautbókmenntaverðlaun Halldórs Laxness árið 2024.[5]

Verk

[breyta |breyta frumkóða]
  • Grimus (1975)
  • Midnight's Children (Miðnæturbörn, 1981 (kom út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar 2003))
  • Shame (1983)
  • The Jaguar Smile: A Nicaraguan Journey (1987)
  • The Satanic Verses (Söngvar satans, 1988)
  • Haroun and the Sea of Stories (Harún og sagnahafið, 1990)
  • Imaginary Homelands: Essays and Criticism, 1981–1991 (1992)
  • East, West (1994)
  • The Moor's Last Sigh (Síðasta andvarp Márans, 1995)
  • The Ground Beneath Her Feet (Jörðin undir fótum hennar, 1999 (kom út í íslenskri þýðingu Árna Óskarssonar 2001))
  • Fury (2001)
  • Step Across This Line: Collected Nonfiction 1992–2002 (2002)
  • The East is Blue (ritgerð, 2004)
  • Shalimar the Clown (2005)
  • Two Years Eight Months and Twenty-Eight Nights (2015)
  • The Golden House (2017)
  • Quichotte (2019)
  • Victory (2023)

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
  1. Salman Rushdie kominn í stríð við Facebook Vísir. Sótt 15.11.2011
  2. Guðrún Margrét Guðmundsdóttir (8. nóvember 2006).„Af hverju var rithöfundurinn Salman Rushdie dæmdur til dauða?“.Vísindavefurinn. Sótt 21. apríl 2024.
  3. Ólöf Rún Erlendsdóttir (12. ágúst 2022).„Salman Rushdie stunginn á sviði í New York“.RÚV. Sótt 12. ágúst 2022.
  4. Viktor Örn Ásgeirsson (23. október 2022).„Blindur á öðru auga og mátt­­laus í hendi eftir á­­­rásina“.Vísir. Sótt 21. apríl 2024.
  5. „Salman Rushdie hlýtur Alþjóðleg bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness 2024“.bokmenntahatid.is. 2024. Sótt 1. febrúar 2026.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Salman_Rushdie&oldid=1944409
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp