Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Ron Paul

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ron Paul.

Ronald Ernest „Ron“ Paul (f.20. ágúst1935) erbandarískurstjórnmálamaður. Paul, sem errepúblíkani, sat ífulltrúadeild Bandaríkjaþings fyrir 14. kjördæmiTexas frá 1997 til 2013. Paul sóttist eftir tilnefningu sem forsetaframbjóðandi Repúblíkanaflokksins fyrirkosningarnar 2008 ogkosningarnar 2012. Sonur hansRand Paul bar sigur úr býtum í kosningunum2. nóvember 2010 semöldungadeildarþingmaðurKentucky.

Paul sem er menntaður læknir hóf fyrst afskipti af stjórnmálum þegar hann bauð sig fram til þings fyrir 22. kjördæmi Texas 1974. Paul tapaði þá fyrir demokratanum Robert Casey, sem hafði verið þingmaður kjördæmisins síðan 1959. Eftir að Casey lét af þingstörfum 1976 sigraði Paul sérstakar aukakosningar til að fylla sætið þar til næsta þing kæmi saman í janúar 1977. Paul tapaði kosningunum í nóvember 1977 naumlega en bar sigur úr býtum 1980 og 1982. Paul var fyrsti repúblíkaninn sem náði kjöri í þessu kjördæmi.

Í kosningunum 1984 bauð Paul sig fram til Öldungadeildarinnar fyrir Texas en beið lægri hlut fyrirPhil Gramm í prófkjöri Repúblíkanaflokksins. Eftirmaður Paul sem þingmaður 22. kjördæmis Texas varTom DeLay, sem síðar varð þingflokksformaður Repúblíkana í fulltrúadeildinni. Eftir ósigurinn sneri Paul sér aftur að læknisstörfum.

Íforsetakosningunum 1988 bauð Paul sig fram sem fulltrúiFrjálshyggjuflokksins. Paul sagði að tilgangur framboðsins hefði ekki endilega verið að sigra, heldur frekar að vekja athygli á hugmyndumfrjálshyggjumanna, sérstaklega meðal ungs fólks. Árið 1996 bauð Paul sig fram til 14. þingsætis Texas sem fulltrúi Repúblíkanaflokksins og bar sigur úr býtum. Paul tók þátt í prófkjöri Repúblíkanaflokksins fyrir forsetakosningarnar 2008 og kom mörgum á óvart fyrir það að afla sér mikilsstuðnings í gegnumgrasrótarsamtök og áinternetinu. Hann reyndi að fá tilnefningu repúblikana fyrir forsetaframboð árið 2012 en tapaði fyrirMitt Romney.

Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Ron_Paul&oldid=1720634
Flokkar:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp