Robert Swan Mueller III (f. 7. ágúst 1944) er bandarískur málafærslumaður sem var sjötti formaðurbandarísku alríkislögreglunnar frá 2001 til 2013.[1] Mueller er skráðurRepúblikani og var settur í embættið afGeorge W. Bush Bandaríkjaforseta.Barack Obama Bandaríkjaforseti framlengdi tíu ára embættistímabil hans um tvö ár og Mueller gegndi embættinu því lengur en nokkur formaður alríkislögreglunnar síðanJ. Edgar Hoover var og hét. Frá 2017 til 2019 var Mueller formaður rannsóknarnefndar um rússnesk afskipti afbandarísku forsetakosningunum árið 2016.
Mueller er útskrifaður úrPrinceton-háskóla og gegndi herþjónustu í bandaríska sjóhernum íVíetnamstríðinu. Þar hlaut hann Bronsstjörnuorðuna fyrir hugprýði og Purple Heart-orðuna sem sæmd er hermönnum sem hafa særst í átökum. Hann útskrifaðist úr lagaháskólanum í Virginíu árið 1973 og vann hjá lögfræðistöfu í San Francisco í þrjú ár þar til hann var útnefndur aðstoðarmálafærslumaður í sömu borg. Áður en hann var útnefndur formaður alríkislögreglunnar var Mueller ríkismálafærslumaður og aðalmálafærslumaður fyrir glæpadeild auk þess sem hann var varadómsmálaráðherra.
Í maí árið 2017 var Mueller útnefndur afRod Rosenstein varadómsmálaráðherra sem sérstakur saksóknari til að sjá um rannsókn á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum árið 2016. Rannsóknin sneri einnig að tengslum rússnesku ríkisstjórnarinnar og á kosningaherferðDonalds Trump[2] og möguleikanum á því að Trump hafi sem Bandaríkjaforseti gerst sekur um að hindra framgang réttvísinnar með því að rekaJames Comey, formann bandarísku alríkislögreglunnar.
Frá því að rannsókn Muellers var hleypt af stokkunum hafa a.m.k. 33 manns verið ákærðir, þar af fjórir samstarfsmenn Trumps.[3] Meðal annars var lögmaður Trumps til margra ára,Michael Cohen, dæmdur í þriggja ára fangelsi þann 12. desember 2018 fyrir að múta tveimur konum í nafni Trumps til að segja ekki frá kynferðislegu sambandi þeirra við Trump á meðan á kosningabaráttunni stóð.[4] Rannsóknin leiddi jafnframt til þess aðMichael Flynn, þjóðaröryggisráðgjafi Trumps, var dæmdur sekur fyrir að ljúga að lögreglunni í yfirheyrslu;[5]Paul Manafort, kosningastjóri Trumps, var dæmdur sekur fyrir banka- og skattsvik ásamt fleiri glæpum[6] ogRoger Stone, kosningaráðgjafi Trumps, var dæmdur í fangelsi fyrir að hindra framgang réttvísinnar með því að hóta vitnum í málinu.[7]
Rannsókn Muellers lauk í mars árið 2019. Í niðurstöðum rannsóknarinnar sagðist Mueller ekki hafa fundið sannanir fyrir því að kosningaherferð Trumps hefði átt samráð með afskiptum Rússa í kosningunum en tók þó ekki beina afstöðu með eða á móti því að Trump hefði hindrað framgang réttvísinnar.[8] Í vitnisburði sínum fyrir Bandaríkjaþingi í júlí 2019 hafnaði Mueller því að skýrsla hans hefði hreinsað Trump af ásökunum um síðari glæpinn.[9]