Robert Fico (f. 15. september 1964) erslóvakískur stjórnmálamaður. Hann hefur verið forsætisráðherra Slóvakíu frá 2023 og gegndi embættinu áður frá 2006 til 2010 og frá 2012 til 2018. Fico stofnaði stjórnmálaflokkinnStefnu – sósíaldemókrata (Smer–SD) árið 1999 og hefur verið leiðtogi flokksins frá upphafi. Fico var kjörinn á þing í fyrsta sinn árið 1992 (þá íTékkóslóvakíu) og myndaði fyrstu ríkisstjórn sína eftir sigur Smer–SD árið 2006. Alls hefur Fico verið forsætisráðherra Slóvakíu í rúman áratug og er því þaulsætnasti forsætisráðherra í sögu landsins. Stjórnmálastefnur Ficos eru gjarnan taldarpopúlískar.
Fico myndaði fyrstu stjórn sína árið 2006 eftir sigur Smer–SD í þingkosningum. Í fyrstu stjórnartíð Ficos varevra tekin upp sem gjaldmiðill í Slóvakíu. Fico tókst ekki að mynda nýja stjórn eftir þingkosningar árið 2010 og fór því aftur í stjórnarandstöðu. Hann komst hins vegar aftur til valda tveimur árum síðar eftir að hægristjórn landsins sprakk.[2]
Á tímaevrópska flóttamannavandans árið 2015 tók Fico harða aftöðu gegn innflytjendum og sagðist ekki vilja rýma fyrir stofnun „sérstaks samfélags múslima í Slóvakíu“. Hann lét jafnframt leggja niður flóttamannakvóta Evrópusambandsins í landinu. Árið 2016 gaf Fico kost á sér í forsetakosningum landsins en náði ekki kjöri. Hann hélt engu að síður áfram sem forsætisráðherra.[2]
Fico hrökklaðist frá völdum árið 2018 í kjölfar fjöldamótmæla sem brutust út eftir að rannsóknarblaðamaðurinnJán Kuciak var myrtur ásamt unnustu sinni á heimili þeirra. Stuttu fyrir dauða sinn hafði Kuciak skrifað grein þar sem hann fjallaði um tengsl Ficos viðítölsku mafíuna.[2]
Smer–SD vann sigur á ný í þingkosningum árið 2023 og Fico varð því forsætiráðherra í þriðja skipti. Í kosningabaráttunni hafði Fico lagt áherslu á bætt samband viðRússland og á að stjórn hans myndi hætta hernaðaraðstoð Slóvakíu við Úkraínu íyfirstandandi innrás Rússa í landið.[3] Fico tilkynnti stuttu eftir embættistöku sína að landið myndi hætta stuðningi við Úkraínu og hætta þátttöku í viðskiptabanni gegn Rússlandi.[4]
Þann 15. maí árið 2024 særðist Fico lífshættulega eftir banatilræði þar sem hann varð fyrir nokkrum byssuskotum. Fico var lagður inn á gjörgæslu og varð að gangast undir skurðaðgerð. Rúmlega sjötugur karlmaður var handtekinn fyrir árásina og ákærður fyrir morðtilraun.Robert Kaliňák, varnarmálaráðherra og varaforsætisráðherra, sagði tilræðið hafa verið af pólitískum toga.[5]