Risaeðlur (fræðiheitiDinosauria) voruhryggdýr sem drottnuðu yfir landrænuvistkerfijarðar í meira en 160 milljón ár. Þær komu fyrst fram á sjónarsviðið fyrir um 230 milljónum ára. Í lokkrítartímabilsins, fyrir 65 milljónum ára, varð hamfaraatburður sem olliútdauða þeirra og þar með endalokum yfirráða þeirra á landi.Fuglar nútímans eru taldir beinir afkomendur risaeðlanna.
Allt frá því að leifar fyrstu risaeðlunnar fundust á19. öld hafasteingerðar beinagrindur þeirra dregið að sér mikla athygli á söfnum um víða veröld. Risaeðlur eru orðnar hluti af heimsmenningunni og ekkert lát virðist á vinsældum þeirra, sér í lagi á meðal barna. Fjallað hefur verið um þær í metsölubókum og kvikmyndum á borð viðJúragarðinn, og nýjustu uppgötvanir um risaeðlur birtast reglulega í fjölmiðlum.
Enska orðiðdinosaur er einnig notað óformlega til að lýsa hvers kyns forsögulegum skriðdýrum eins ogpelycosaur Dimetrodon, hinum vængjaðapterosaur, og vatnaskriðdýrunum (ichthyosaur), svaneðlu (plesiosaur dolichodeirus) og mosaeðlu (mosasaur), þrátt fyrir að ekkert þeirra sé í raun risaeðla.