Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Rio de Janeiro

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rio de Janeiro

Rio de Janeiro eðaRíó (portúgalskaJanúaráin) erstórborg íBrasilíu með um 6,2 milljónir íbúa en um 12,3 milljónir búa á stórborgarsvæðinu (2022). Hún er önnur stærsta borg landsins á eftirSão Paulo og var höfuðborg þess til1960. Ríó er 2550 km sunnan við miðbaug og þekkt fyrirbaðstrendur, eins ogCopacabana ogIpanema, fallegt borgarstæði milli fjallanna við suðurströndGuanabaraflóa, og glæsilegakjötkveðjuhátíð þar semsambaskólar keppa sín á milli í að setja upp sem glæsilegastaskrúðgöngu. Ríó er einnig þekkt fyrir stórfátækrahverfi,favelas, í hæðunum umhverfis borgina. Árið2016 voru haldnirÓlympíuleikarnir í borginni.

Orðsifjar heitisins eru þær að 'rio' þýðir fljót, og 'janeiro' þýðir janúar, en Evrópumenn börðu fyrst Gwanabara-flóa, þar sem samnefnd á rennur til sjávar, augum fyrsta janúar árið 1502.

Borgarhlutar

[breyta |breyta frumkóða]
  • Centro
  • Copacabana
  • Lagoa Rodrigo de Freitas
  • Urca

Íþróttir

[breyta |breyta frumkóða]
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistRio de Janeiro.
  Þessilandafræðigrein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Rio_de_Janeiro&oldid=1926147
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp