Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Rijeka

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rijeka

Rijeka (ítalska:Fiume) eraðalhafnarborgKróatíu og þriðja stærsta borg landsins. Hún stendur viðKvarnerflóa íAdríahafi. Íbúar voru 128.624 árið 2011 en á stórborgarsvæðinu búa um 250 þúsund manns. Borgin á sér langa sögu enRómverjar endurbyggðu eldri borg og nefndu hanaFlumen. Borgin var um aldir ein mikilvægasta hafnarborg Adríahafsins og var oft tekist á um yfirráð í henni. ÞegarAusturrísk-ungverska keisaradæmið leystist upp í kjölfarFyrri heimsstyrjaldar varð borgin bitbeinJúgóslavíu ogÍtalíu en tveir þriðju íbúa voru þá ítölskumælandi. ÞegarÍtalski fasistaflokkurinn komst til valda á Ítalíu var Fiume/Rijeka innlimuð. Eftir ósigur Ítala og Þjóðverja íSíðari heimsstyrjöld fékk Júgóslavía yfirráð yfir borginni og ítölskumælandi íbúar voru markvisst hraktir burt eða teknir af lífi. Undir stjórn Júgóslavíu óx borgin mikið og var stærsta hafnarborg landsins.

Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengistRijeka.
  Þessi grein erstubbur. Þú getur hjálpað til með því aðbæta við greinina.
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Rijeka&oldid=1537837
Flokkur:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp