Ridley fæddist íSouth Shields,Tyne and Wear, og ólst upp í herfjölskyldu. Faðir hans var liðsforingi íCorps of Royal Engineers og eldri bróðir hans, Frank, hóf störf í breska kaupskipaflotanum þegar Ridley var enn ungur og höfðu þeir mjög lítið samband sín á milli. Á þessum tíma flutti fjölskylda hans oft og var aðsetur þeirra meðal annars íCumbria,Wales ogÞýskalandi. Eftirseinni heimstyrjöldina flutti fjölskyldan aftur á heimaslóðir sínar í Norðaustur-Englandi og settist að lokum að íTeesside (þar sem atvinnuhúsnæði var seinna notað í atriðum íBlade Runner). Honum finnst gaman að horfa á kvikmyndir, og uppáhaldsmyndir hans eruLawrence of Arabia,Citizen Kane ogSjö samúræjar.[1]
Fimm meðlimir Scott-fjölskyldunnar eru leikstjórar, og allir vinna þeir fyrirRidley Scott Associates (RSA).[2] Bróðir hans, Tony, er vinsæll kvikmyndaleikstjórii; synirnir, Jake og Luke, eru auglýsingaleikstjórar sem og dóttir hans, Jordan. Jake og Jordan vinna bæði í Los Angeles og Luke er staðsettur í London.
Núverandi sambýliskona hans er leikkonanGiannina Facio sem hefur leikið í öllum myndum hans síðan hann gerðiWhite Squall, að undanskilinniAmerican Gangster. Ridley býr ýmist í London, Frakklandi eða Los Angeles. Hann var sleginn til riddara af Bretadrottningu árið 2003.[3]
Scott stundaði nám frá 1954 til 1958 viðGrangefield Grammar School, Stockton og seinna meir viðWest Hartlepool College of Art, þar sem hann útskrifaðist með diplóma íhönnun. Hann lauk M.A.-gráðu í grafískri hönnun viðRoyal College of Art þar sem hann nam frá 1960 til 1962. Við RCA þá vann hann við skólablaðið,ARK og hjálpaði við að mynda kvikmyndadeildina. Fyrir seinasta verkefni sitt bjó hann til svarthvíta stuttmynd,Boy and Bicycle, þar sem,Tony Scott, og faðir hans léku hlutverk. Sjónræni hluti myndarinnar varð mikilvægur hluti af vinnu Scotts í framtíðinni. Myndin var gefin út sem aukaefni áThe Duellists DVD-disknum.
Scott fékk vinnu sem lærlingur í leikmyndahönnun hjáBBC eftir útskriftina árið 1963, sem leiddi til vinnu við hinn vinsælan sjónvarpsþáttZ-Cars og vísindasöguseríunaOut of the Unknown. Eftir að hafa komist inn hjá BBC endurgerði ScottPaths of Glory sem stuttmynd. Ridley vann sem hönnuður við aðra þáttaröðDoctor Who ogThe Daleks. Hjá BBC bauðst Scott að taka þátt í leikstjórnarverkefni og áður en hann yfirgaf fyrirtækið leikstýrði hann þætti afZ-Cars,Softly, Softly, og ævintýraseríunniAdam Adamant Lives!.
Scott yfirgaf BBC árið 1968 og stofnaði framleiðslufyrirtækið, Ridley Scott Associates (RSA), þar sem hann vann meðAlan Parker,Hugh Hudson,Hugh Johnson og réði líka Tony. Hann gerði sjónvarpsauglýsingar í Bretlandi á áttunda áratugnum, þar á meðal 1974 Hovis-auglýsinguna, „Bike Round“ (Symphony No. 9), sem var tekin upp íShaftesbury,Dorset.
The Duellists frá árinu 1977 var fyrsta kvikmynd Ridley Scott í fullri lengd. Hún var framleidd í Evrópu og vann verðlaun sem besta frumraun áCannes-kvikmyndahátíðinni. Myndin gerist íNapóleonsstríðunum þar sem tveir franskir húsaraliðsforingjar, D'Hubert og Feraud (leiknir afKeith Carradine ogHarvey Keitel), rífast yfir litlu slysi sem magnast með árunum, sem flækist saman við stærri baráttu sem gefur bakgrunninn í myndinni. Myndinni hefur verið hrósað fyrir sögulega rétta búninga og atferli hersins, sem og nákvæmni varðandi nítjándu aldar skylmingatækni, sem var þróuð af brelluhöfundinumWilliam Hobbs.
Scott hafði upprunalega ætlað að kvikmynda óperuna ,Tristan og Ísold, en eftir að hafa séðStjörnustríð: Ný von, þá var hann ákveðinn í að búa til mynd sem væri miklu stærri og með vel gerðum tæknibrellum. Þess vegna samþykkti hann að leikstýraAlien, hinni byltingarkenndu hryllings-/vísindaskáldsögumynd frá 1979 sem gerði hann heimsfrægan. Myndin var að mestu tekin upp árið 1978, en framleiðsluhönnun hans og hið sjónræna andrúmsloft, og áhersla myndarinnar á raunsæi í staðinn fyrir kvikmyndahetju hefur gefiðAlien varanlegt aðdráttarafl. Þó að Scott haf ekki leikstýrt framhaldsmyndunumAlien, var hann hluti af endurútgáfunni frá 2003 með viðtölum og kynningum. Á þessum tíma þá hafði Scott gefið til kynna að hann hefði hafið samræður um að gera fimmtu og síðustuAlien-myndina. Í viðtali árið 2006 sagðist hann hins vegar ósáttur meðAlien: The Director's Cut, þar sem honum fannst upprunalega útgáfan gallalaus og aukasenurnar voru aðeins til þess að auka söluna á myndinni.[4]
Eftir að hafa eytt um ári í að búa til myndinaDune byggða á bókinni, og eftir snöggt andlát Franks bróður hans, samdi Scott um að leikstýra kvikmyndaútgáfu af bókPhilip K. DickDo Androids Dream of Electric Sheep?, (sem var endurnefndBlade Runner eftir velgegni myndarinnar). Myndin var meðHarrison Ford í aðalhlutverki og tónlist eftirVangelis.Blade Runner náði ekki miklum árangri í kvikmyndahúsum árið 1982. Athugasemdir Scotts voru notaðar afWarner Brothers til þess að gera leikstjóraútgáfu árið 1991 þar sem talsetning var tekin út og endirinn lagaður. Scott sá persónulega um stafrænu endurgerðina afBlade Runner og samþykki lokaútgáfuna. Þessi útgáfa var gefin út í kvikmyndahúsum í Los Angeles, New York og Toronto þann 5.október 2007. DVD-útgáfan var gefin út 18. desember 2007.[5] Í dag erBlade Runner oft hátt skrifuð meðal gagnrýnenda og sem ein af mikilvægustu vísindaskáldsögumyndum 20.aldar.[6] Skrifað er um hana í bókinniNeuromancer eftirWilliam Gibson's sem fjallar um fyrstu stafrænu tegundina. Scott segir aðBlade Runner sé „fullkomnasta og persónulegasta mynd sem hann hefur gert“.[7]
Árið 1985 þá leykstýrði ScottLegend, fantasíumynd sem var framleidd afArnon Milchan. Þar sem hann hafði aldrei áður gert svona mynd ákvað hann að búa til „einu sinnu endur fyrir löngu“ sviðsetningu með heim fullan af álfkonum, prinsessum og púkum. Scott réðiTom Cruise sem hetjuna, Jack,Mia Sara sem prinsessuna Lily, ogTim Curry semSatan-Herra myrkursins. Mikil vandræði urðu við tökur: skógurinn varð eldi að bráð og eftirvinnslan (mikil klipping og breyting á tónlistinni eftirJerry Goldsmith með aukatónlist fráTangerine Dream) tafði útgáfu myndarinnar með þeim afleiðingum að hún fékk lélega dóma gagnrýnenda. Síðan þá hefur myndin orðið költmynd sem má þakka endurútgáfu hennar á DVD, sem er í meira samræmi við sýn Scotts.
Þar sem hann langði að gera fleiri stórmyndir ásamt því að fá þá viðurkenningu sem hann vildi, þar sem enn var litið á hann sem auglýsingaleikstjóra, ákvað hann að fresta öllum áformum um að búa til frekari vísindasagnamyndir og fara frekar út í dramamyndir, spennumyndir og jarðbundnar myndir.
Meðal þess sem hann gerði varSomeone to Watch over Me, rómantískt lögregludrama meðTom Berenger,Lorraine Bracco ogMimi Rogers frá 1987, ogBlack Rain, lögregludrama frá 1989 meðMichael Douglas ogAndy Garcia, sem var tekin upp í Tókýó og Osaka, Japan. Þrátt fyrir lélega miðasölu þá var Scott enn og aftur lofaður fyrir sjónrænar áherslur sínar, en var enn gagnrýndur fyrir að gera kvikmyndir sem voru aðeins lengri útgáfa af sjónvarpsauglýsingum hans.Thelma og Louise (1991) meðGeena Davis sem Thelma, ogSusan Sarandon sem Louise, fékk mjög góða dóma og naut velgengni í miðasölu, ásamt því að Scott var lofaður sem kvikmyndagerðarmaður. Samt sem áður gekk næsta verkefni hans ekki eins vel. Hann hafði umsjón með framleiðslu sjálfstæðrar myndar1492: Conquest of Paradise. Myndin er sjónrænt góð mynd um sögu Kristófers Kólumbusar og er talin vera hægasta mynd hans til þessa. Scott gaf ekki frá sér aðra mynd í fjögur ár.
Árið 1995, ásamt Tony bróður sínum, stofnaði Scott kvikmynda- og sjónvarpsframleiðslufyrirtækiðScott Free í Los Angeles. Allar myndir og þættir sem hann og Tony hafa gert hafa verið framleiddar af Scott Free. Einnig keyptu bræðurnirShepperton Studios, sem var síðan sameinaðPinewood Studios.
Eftir þá miklu velgegni semGladiator naut, ásamt því að margir segja hana vera þá mynd sem endurvakti„sverð og sandala“-myndirnar. Þá sneri Scott sér næst aðHannibal, framhaldsmyndLömbin þagna. Árið 2001 gerði hannBlack Hawk Down, stríðsmynd byggða á sannsögulegum atburðum sem gerðust íSómalíu árið 1993. Hún lyfti Scott frekar upp á stall sem kvikmyndagerðarmanni. Árið 2003 þá leikstýrði hannMatchstick Men, sem var byggð á bókEric Garcia þar semNicolas Cage,Sam Rockwell ogAlison Lohman léku aðalhlutverk. Árið 2005 leikstýrði hannKingdom of Heaven um krossferðirnar. Á meðan tökum stóð íMarokkó fékk Scott hótanir frá öfgamönnum. Yfirvöld í Marókkó sendu herflokk til þess að leika í bardagasenum. Þar sem hann var ósáttur með upprunalegu útgáfuna hafði Scott umsjón með leikstjóraútgáfunni afKingdom of Heaven, sem var gefin út á DVD árið 2006.[14] Þegar hann var spurður út í efnið í kynningarviðtali svaraði Scott:
„Það fer eftir því hver situr í ökusætinu. Ef þú hefur brjálæðing sem gerir vinnu mína, þá þarftu að hafa kynningarsýningu. En góður leikstjóri ætti að hafa þá reynslu sem þarf til þess að ákveða hvað honum finnst vera rétta útgáfa af myndinni áður en hún fer í kvikmyndahús.“[15]
Scott tók höndum saman við leikarannRussell Crowe þegar hann leikstýrðiA Good Year sem byggð er á samnefndri bók. Myndin var frumsýnd 10. nóvember 2006, með tónlist eftirMarc Streitenfeld.Rupert Murdoch, yfirmaðurNews Corp og dótturfyrirtækis20th Century Fox (sem studdi myndina) vísaði því á bug aðA Good Year væri „misheppnuð“ á hluthafafundi nokkrum dögum eftir að myndin var gefin út.[16] Næsta leikstjóraverkefni Scotts varAmerican Gangster, saga um raunverulegt líf eiturlyfjabarónsinsFrank Lucas. Hann var þriðji leikstjórinn sem reyndi við verkefnið eftirAntoine Fuqua ogTerry George.Denzel Washington ogBenicio del Toro höfðu verið ráðnir upphaflega í tengingu við Steven Zaillian-handritið að nafniTru Blu. Eftir að George hætti tók Scott við í byrjun ársins 2006. Scott sótti Zaillian aftur til þess að endurskrifa handritið til þess að einbeita meira sögunni að sambandinu á milli Frank Lucas og Richie Roberts. Washington skrifaði aftur undir sem Lucas og Crowe skrifaði undir sem Roberts. Myndin var frumsýnd í nóvember 2007 og fékk jákvæða dóma og gott gengi í miðasölunni.
Scott vann enn á ný með Crowe, ogLeonardo DiCaprio við gerð myndarinnarBody of Lies árið 2008. Árið 2010 vann Scott aftur með Crowe og núna réðust þeir aðRobin Hood sem fjallar um uppruna og þjóðsögninan á bakvið hetjuna. Lék CroweRobin Hood á meðanCate Blanchett lék ástarefni hans.
Ridley og bróðir hans Tony framleiddu kvikmyndinaThe A-Team meðLiam Neeson,Bradley Cooper ogJessicu Biel í aðahlutverkum.[17][18]
Þann 31. júlí 2009 komu fram fréttir um að gera átti tvær myndir sem áttu að gerast á undan myndinniAlien[19] og átt Scott að leikstýra þeim.[20] Verkefnið breyttist í aðeins eina myndPrometheus, sem Scott leikstýrði og var myndin meðal annars tekin upp á Íslandi. Myndin var gefin út í júní 2012.
Þann 6. júlí 2010 tilkynnti YouTube að þeir myndu sýnaLife in a Day, heimildarmynd sem framleidd var af Scott. Myndin var sýnd áSundance kvikmyndahátíðinni þann 27. janúar 2011. Myndin nýtir sér efni sem tekið var upp 24. júlí 2010 af notendum YouTube alls staðar af úr heiminum.[21]
Árið 2012 framleiddi Scott auglýsingu fyrir nýtt ilmvatnLady Gaga.
Í febrúar 2012 var Scott í viðræðum varðandi verkefniðThe Counselor sem byggt er á handriti Cormac McCarthy.[22] Kvikmyndatökur hófust í júlí 2012 íLondon og eru leikaranirMichael Fassbender ogBrad Pitt í aðalhlutverkunm.[23]
Í nóvermber 2012 var tilkynnt að Scott myndi framleiða heimildarmyndinaSpringsteen & I sem er leikstýrð af Baillie Walsh.
Til að byrja með þá var Scott varla þekktur sem leikara leikstjóri en varð meira opinn fyrir tillögun frá leikurum sínum þar sem ferill hans var að þróast. Dæmi um þetta er vísbending Susan Sarandon að persóna hennar Louise pakkaði skónum sínum í plastpoka í einni senunni íThelma & Louise, og hin vísbendingin var að persóna hennar skiptir skartgripum út fyrir hat og aðra hluti, sem og samvinna Tim Robbins með Scott og Susan Sarandon til að endurvinna lokasenuna til þess að gera betri endi. Russell Crowe hefur sagt, „Mér líkar að vera á setti Ridleys þar sem leikarar geta starfað [...] og fókusinn er á leikarana.“[24] Paul M. Sammon, í bók sinniFuture Noir: The Making of Blade Runner, segir í viðtali við Brmovie.com að samband Scotts við leikara sína hefur batnað yfir árin.[25] Samt sem áður, þá getur hann verið mjög kröfuharður og erfiður leikstjóri til að vinna með. Hann fékk gælunafnið „Guvnor“ við tökur áBlade Runner. Nokkrir starfsmenn klæddust stuttermabolum með slagorðunum „Yes Guvnor, my ass“ ogWill Rogers sem aldrei hefur hitt Ridley Scott, í sambandi við tilvitnun frá Will Rogers, „Ég hef aldrei hitt mann sem ég hef aldrei líkað við“.[26] Var þetta í tengslum við viðbrögð við því hvernig Scott leikstýrði fyrsta bandaríska starfsliðinu, sem margir telja að hafi verið dálítið harkalegt. Sjónræna sýn hans, ásamt nákvæmni í hönnum og lýsingu hefur verið mikill implástur fyrir yngri kvikmyndagerðarmenn – sem margir hafa byrjað að notast við. Scott hægir ofast nær senurnar stuttu áður en aðalbardaga senurnar byrja, sem einkennast af tíðum fljótum klippingum. Dæmi um þetta má sjá íAlien ogBlade Runner;LA Times gagnrýnandinn Sheila Benson, kallar til að mynda Blade RunnerBlade Crawler „vegna þess hversu hæg hún er. Önnur tækni sem hann notar er að nota hljóð og tónlist til þess að byggja upp spennu, sem má sjá íAlien með hissandi gufu, pípandi tölvum og hávaða frá vélabúnaði.
Þó að Scott er þekktur fyrir leikstjórastíl sinn, þá hafa aðrar aðferðir komið sterklega fram hjá honum:
- Sterk kvenpersóna.[27][28]
- Sumar myndir myndir hans innihalda átök á milli föðurs og sonar, sem endar með drápi sonarins (Blade Runner,Gladiator) eða slysförum (Black Hawk Down), vitni að atburði (Kingdom of Heaven). ÍGladiator, þá faðmar sonurinn föðurinn með ástúð sem endar með kæfingu og dauða föðursins. Samskonar sena íBlade Runner.
- ÍGladiator,Blade Runner ogKingdom of Heaven, sonurinn kynnist föður sínum í æsku. Annað sem sést að móðirin er ekki til staðar, og annaðhvort faðirinn eða sonur sjást gera eitthvað í seinasta sinn. Til að mynda, Roy Batty er að deyja vegna þess hann bjargaði Deckard, Maximus deyr eftir að hafa drepið Commodus og Godfrey of Ibelin drepur óvini eftir að hafa verið særður illa með ör. Þar að auki, hetjan er bjargað frá dauða áður en hann öðlast dáð sína: Deckard er bjargað af Rachel, Maximus er bjargað af þræli og Balian er bjargað af múslimskum óvini. Samskonar aðstæður má sjá í mynd Tony Scott'sMan on Fire.
- Her og liðsforingja pesrónur endurspegla feril föður hans, til að myndaG.I. Jane,Black Hawk Down ogKingdom of Heaven.
- Söguborð kvikmynda hans eru ítarleg. Þessar teikningar gerir hann sjálfur, hafa verið kallaðar "Ridleygrams" á DVD útgáfum.
- Eins ogStanley Kubrick, þá var Scott einu sinni þekktur fyrir að biðja um margar góðar tökur. Þetta má sjá íBlade Runner: starfsliðið nefndi myndina „Blood Runner“ vegna þess.
- Notar mikið klassíska tónlist (Hovis auglýsingin,Someone to Watch Over Me).
- Mikil notkun af reyk og öðru andrúmslofti (Alien,Blade Runner ogBlack Rain), auk vifta og viftuhluti (Blade Runner,Black Rain og stór Boeing þota í1984 sjónvarpsauglýsingunni). Viftur eru einnig notaðar íHannibal.
- Samkvæmni í notkun á tónlistarhöfundum,Jerry Goldsmith (Alien andLegend),Vangelis (Blade Runner og1492: Conquest of Paradise) eðaHans Zimmer (Black Rain,Thelma & Louise,Gladiator,Hannibal,Black Hawk Down ogMatchstick Men). Scott hefur tvisvar sinnum notast við Sting í kvikmyndalistum („Valparaiso“ forWhite Squall og „Someone to Watch Over Me“).
Scott er þekktur fyrir að nota mismunandi DVD framsetningar, eins ogtal lýsing og viðtöl fyrir myndir sínar. Í júlí 2006 útgáfunni afTotal Film tímaritinu,þá segir hann:
Eftir alla þá vinnu sem við förum í gegnum, myndin fer í gegnum kvikmyndahús og síðan hverfa alveg er algjör synd. Til þess að gefa myndinni aukið líf sem er flott fyrir þá sem misstu af henni eða þeir sem elskuðu hana.[15]
Sérstakar útgáfur af myndum Scotts eru þekktar fyrir hágæðamynd og hljóð, sem og velgerðar heimildarmyndir og lýsingar, framleitt af félaga hans, DVD framleiðandanum Charles de Lauzirika.
Meðfram áhuga sínum á DVD, Scott er oft talinn vera „faðir“ leikstjóraútgáfunnar. Hin jákvæðu viðbrögð á leikstjóraútgáfunni afBlade Runner Director's Cut hvatti Scott til þess að endurklippa nokkrar myndir sem höfðu fengið vonbrigði á sínum tíma (Legend andKingdom of Heaven).