Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Raunhyggja

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
John Locke, faðir breskrar raunhyggju

Raunhyggja eðareynsluhyggja er viðhorf íþekkingarfræði ogvísindaheimspeki sem leggur áherslu á hlutverkreynslu í tilurðþekkingar.

Upprunalega voru raunhyggjumenn hópurforngrískra lækna en frægastur þeirra erefahyggjumaðurinnSextos Empeirikos. Á17. öld varbreski heimspekingurinnJohn Locke helsti upphafsmaður nútíma raunhyggju. Locke hélt því fram að hugurinn væritabula rasa (latína: bókstaflega „skafin tafla“; „óskrifað blað“) sem reynslan fyllti út. Slík raunhyggja hafnar því að fólk hafi „meðfæddar hugmyndir“ eða að eitthvað sé þekkjanlegt án tilvísunar til reynslu.

Raunhyggju er oft stillt upp andspænisrökhyggju, sem kveður í grófum dráttum á um að þekking á grundvelli skynseminnar einnar og óháð allri reynslu sé möguleg. Ágreiningur raunhyggju- og rökhyggjumanna var þó flóknari en slík einföldun gefur til kynna enda voru allir helstu málsvarar rökhyggjunnar (René Descartes,Baruch Spinoza ogGottfried Leibniz) einnig málsvarar raunhyggju sem vísindalegrar aðferðar á sínum tíma. Enn fremur taldi Locke, fyrir sitt leyti, að suma þekkingu (til dæmis á tilvist guðs) væri hægt að öðlast gegnum innsæi og skynsemina eina.

Meðal heimspekinga, sem venjulega eru taldir til raunhyggjumanna, eruEpikúros,stóumenn,Francis Bacon,Thomas Hobbes,John Locke,George Berkeley,David Hume,John Stuart Mill ogBertrand Russell.

Tengt efni

[breyta |breyta frumkóða]

Tenglar

[breyta |breyta frumkóða]
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Raunhyggja&oldid=1494584
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2025 Movatter.jp