Movatterモバイル変換


[0]ホーム

URL:


Fara í innihald
WikipediaFrjálsa alfræðiritið
Leit

Ragnarök

Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
kústur
Þessi grein þarfnasthreingerningar svo hún hæfi betur sem grein hér á Wikipediu. Mögulega er vandamálið við síðuna skráð áWikipedia:Stílviðmið.
Óðinn berst viðFenrisúlf ogFreyr berst viðSurt á málverki af lokaorrustu goðanna eftir Emil Doepler (1905).

Ragnarök kallastheimsendir ínorrænni goðafræði og merkir „örlög goðanna“. Spáð er fyrir um stóra orustu þar sem ýmis goð deyja (svo semÓðinn,Þór, ogLoki), miklar nátturuhamfarir, og flóð. Þar á eftir mun jörðin rísa á ný og þær tvær mannverur sem lifðu af (Líf og Lífþrasir) munu fjölga mannkyninu.

Aðalheimildir um ragnarök eruEddukvæðin:Völuspá ogVafþrúðnismál. Á það hefur verið bent, að margar hugmyndir norræna manna um ragnarök séu til orðnar vegna áhrifa annarra trúarbragða, sérstaklega austrænna.

Orðsifjar

[breyta |breyta frumkóða]

Orðið „ragnarök“ merkir bókstaflega goðadómur eða endalok guðanna. Það kemur frá orðunumregin (sem merkir „guðir“, „goð“) ogrök (sem merkir „endalok“ eða „eitthvað ákveðið“). Snorra-Edda notar líka orðiðragnarökkur til að vísa til þessa atburðar.

Um ragnarök

[breyta |breyta frumkóða]

Ragnarök munu þó bera boð á undan sér. Í 51. kaflaSnorraeddu,Gylfaginningu stendur: „Þau hin fyrstu að vetur sá kemur er kallaður erFimbulvetur. Þá drífur snær úr öllum áttum frost eru þá mikil og vindar hvassir. En áður ganga svo aðrir þrír vetur að þá er um alla veröld orrustur miklar. Þá drepast bræður fyrir ágirni sakir, og engi þyrmir föður eða syni í manndrápum eða sifjalist. Svo segir íVöluspá.“

45. erindi Völuspár:
Bræður munu berjast
og að bönum verðast,
munu systrungar
sifjum spilla.
Hart er með höldum,
hórdómur mikill,
skeggjöld, skálmöld,
skildir klofnar,
vindöld, vargöld
áður veröld steypist."

Úlfurinn sem eltir sólinna nær henni og gleypir, sá er elti tunglið nær því einnig, stjörnurnar hverfa af himni. Jörðin öll skelfur, svo fjöll brotna og tré rifna upp með rótum, allir fjötrar og öll bönd slitna svoFenrisúlfur losnar. Hafið ræðst á landið og við það ferMiðgarðsormur í jötunham og skríður upp á land þar sem hann blæs eitri yfir loft og öll vötn.Fenrisúlfur opnar skoltinn sem er svo ógurlegur að efri kjafturinn er við himinn og sá neðri liggur við jörðina, eldur brennur úr augum hans og nösum. Þeir bræður fara hlið við hlið. Í öllum þessum látum rifnar himininn ogMúspellssynir ríða inn meðSurt fremstan en á undan honum er mikill eldur, en þegar þeir synir ætla yfirBifröst brotnar brúin, eins og fyrir var spáð, fara þeir því á völl þann erVígríður heitir en þar eruLoki ásamt öllum óvinum ásaHrymi, skipstjóraNaglfars, ogHrímþursarnir komnir. Stuttu á eftirMúspellssonum komaMiðgarðsormur ogFenrisúlfur.Heimdallur blæs íGjallarhorn og vekurgoðin,Óðinn ríður tilMímisbrunns og fær ráð hjáMími.Æsir gera sig tilbúna til orustu og ganga fram á völlinn.Óðinn fer fremstur með gullhjálm og spjót sittGungni og stefnir hann til móts viðFenrisúlf sem tekur sig til og gleypirÓðin. Við hliðÓðins ferÞór og berst hann viðMiðgarðsorm sem hlýtur bana, sjálfur deyr Þór vegna eiturs sem ormurinn blæs á hann.Freyr berst viðSurt og verður Surtur honum að bana. HundurinnGarmur er þá orðin laus og berstTýr við hann, báðir falla.Víðar berst svo viðFenrisúlf og stígur í gin hans með skó þeim sem tekið hefur hann allar aldir að smíða, með annarri hendi tekur hann í efri kjaft úlfsins og rífur í hann í sundur.Surtur slær eldi yfir jörðina og brennir allan heiminn.

Þó eru nokkrir staðir sem komast af,Hoddmímisholt,Gimlé sem er á himnum en þangað fara góðir menn ogNáströnd í norðri. Jörðin rís aftur úr hafinu og er þá grænni og fegurri en hún var áður. Einn maður og ein kona,Leifþrasi ogLíf, lifa af með því að fela sig íHoddmímisholti, af þeim eru allir menn komnir.

Þeirgoðanna sem lifa af eruHænir,Víðar ogVáli,Móði ogMagni Þórssynir og hafa þeirMjölni.Baldur ogHöður koma fráHel. Þeir setjast niður áIðavelli þar semÁsgarður stóð, til að ræða það sem gerst hefur. Þeir finna þar gulltöflurnar semæsir áttu. Sólin hafði getið af sér eina dóttur sem ekki var ófegurri en móðirin og tekur hún við hlutverki móður sinnar.

Heimildir

[breyta |breyta frumkóða]
ÁWikiheimild er að finna texta sem tengist

* Edda Snorra Sturlusonar, útgáfa: Iðnú 1998

Helstu goð
Æsir
Ásynjur
Vanir
Aðrir
Jötnar
Dvergar
Skepnur
Aðrir
Staðir
Hlutir
Atburðir
Rit
Goðakvæði og sögur
Trúfélög
Sótt frá „https://is.wikipedia.org/w/index.php?title=Ragnarök&oldid=1907946
Flokkar:
Falinn flokkur:

[8]ページ先頭

©2009-2026 Movatter.jp